Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 18

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 18
Ataksverkefnið Fegurri sveitir Tilurð verkefnisins, störf si. sumar og áætlanir fyrir sumarið 2001. Forsaga Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra átti hugmyndina að átaks- verkefninu Fegurri sveitir. Það er áhugamál hans og annarra forystu- manna landbúnaðarins að sveitir landsins verði hvarvetna til fyrir- myndar. Verkefnið er á vegum landbúnaðarráðuneytisins í umboði ríkisstjórnarinnar. Landbúnaðar- ráðherra skipaði fimm manna fram- kvæmdanefnd haustið 1999 og í henni eiga sæti: * Fulltrúi landbúnaðarráðuneytis- ins og formaður nefndarinnar: Níels Árni Lund, deildarstjóri. * Fulltrúi Bændasamtaka Islands: Signður Jónsdóttir, bóndi. * Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga: Þórunn Gestsdótt- ir, sveitarstjóri. * Fulltrúi umhverfisráðuneytisins: Sigríður Stefánsdóttir, deildar- stjóri. * Fulltrúi Kvenfélagasambands íslands: Guðrún Þóra Hjaltadótt- ir, hússtjórnarkennari og nær- ingarráðgjafi. Ragnhildur Sigurðardóttir, verkefnastjóri, Álftavatni, Staðarsveit Markmið I upphafi var lagt af stað með eftirfarandi markmið: „Fegurri sveitir" er átaksverkefni um hreinsun á landi og fegrun mannvirkja með áherslu á sveitir landsins. Tilgangur þess er að koma í veg fyrir mengun og slysa- hættu, auk þess að bæta ásýnd dreifbýlisins og ímynd þess. Það eru ekki aðeins bændur held- ur allt dreifbýlið, sem fellur undir markhóp verkefnisins, og mörg sveitarfélög hafa t.d. tengt iðnaðar- hverfi og/eða hesthúsabyggð við aðgerðir sínar. Núverandi ástand Þó að víða megi ferðast um fall- egar sveitir og horfa heim að vel hirtum bæjum er það of algengt að umgengni sé áfátt til sveita. Ásýnd sveitabæja skiptir mikiu máli fyrir markaðssetningu land- búnaðarafurða og hefur án efa áhrif á sjálfsvirðingu og líðan ábúenda. Á nokkrum stöðum má sjá brota- jám, jafnvel heilu bílakirkjugarð- ana, blasa við og að spilliefnum, s.s. geymum, hafi ekki verið komið fyrir á forsvaranlegan hátt. Oft er um að ræða „gamlar synd- ir“, bílhræ frá þeim tímum þegar erfiðara var að nálgast varahluti en nú og hugsunarhátturinn var annar. Plastdrasl hangir víða á girðingum og fjörur þurfa hreinsun. Nokkuð er um útihús í niðumíðslu og eðli- legt viðhald hefur sums staðar setið á hakanum, oft vegna lélegrar af- komu. Á mörgum eyðijörðum þarf að taka til hendinni og það sama gildir um eignir ýmissa opinberra aðila, fyrirtækja og félagasamtaka. Viðhorfin eru að breytast, skiln- ingur og vilji til að huga að um- hverfinu hefur aukist, bæði í þétt- býli og dreifbýli. Gæðastjómun og umhverfisstjórnunarkerfi, vottun og rekjanleiki afurða eru sá raun- vemleiki sem við annað hvort bú- um við eða erum að sigla inn í. Margir eru þó uggandi yfir þeim tíma og kostnaði sem fylgir hreins- un. Flutningskostnaður er aðal kostnaðarliðurinn við tiltekt og hreinsun í sveitum. Félagslegur og fjárhagslegur stuðningur er for- senda þess að hægt sé að taka á þessum uppsafnaða vanda. Uppbygging verkefnisins og söfnun upplýsinga Aðsetur verkefnisstjóra er á heimaskrifstofu í Staðarsveit. Verk- efnisstjóri ferðaðist um landið í fyrrasumar og heimsótti þátttak- Hamar í Eyrarsveit, einn af mörgum fyrirmyndarbæjum um umgengni.. (Myndir tók Ragnhildur Sigurðardóttir). 18 - f R€YR 8/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.