Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 20

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 20
Gömul malarnáma fyrir og eftir tiltekt. óunnið við að fjarlægja gamlar girðingar. Ef gagn á að vera af girð- ingum þá þurfa þær stöðugt við- hald. Mýrdalshreppur er með vel útfært viðhaldskerfi, þar ýtir hreppsnefndin við veggirðingareig- endum á hverju sumri, Búnaðarfé- lögin annast úttekt að liðnum ákveðnum fresti og Vegagerðin greiðir þátttakendum umsamið verð. * Gömul ónýt hús Víða standa gömul ónýt hús og önnur mannvirki sem eru til lýta og af stafar slysahætta. Vissulega get- ur verið um menningarverðmæti að ræða en þá ber að gera þeim hátt undir höfði. Annars vex mörgum í augum kostnaðurinn og vinnan við að rífa mannvirki. Venjulega er lít- ið mál að rífa gömul ójámabundin hús. Sveitarfélög geta gert samning við verktaka, boðið íbúum sínum að skrá þátttöku og sent stórvirka vinnuvél um sveitina á umsömdum tíma. Þannig má ná niður kostnaði. Samfara fækkun sauðfjár hefur ónotuðum húsum fjölgað. Mörg eru byggð úr varanlegu efni og kostnaðarsamt getur verið að rífa þau. En viðhald þeirra er líka dýrt og auk þess þarf í flestum tilfellum að borga af þeim gjöld, t.d. fast- eignagjöld. Einhver eru í eigu þétt- býlisbúa eða annarra brottfluttra íbúa sveitanna og þau, ekki síður en önnur, þarfnast árlegs viðhalds. * Spilliefni, t.d. rafgeymar. Sveitarfélög hafa flest tekið vel við sér við söfnun spilliefna eftir gildistöku spilliefnalaganna. Starf- andi er sérstök spilliefnanefnd á vegum ríkisins og hefur hún verið dugleg að kynna starfsemi sína á fundum og ráðstefnum. Þátttakend- ur eru hvattir til þess að leita sér nánari upplýsinga um þau lög og þær reglugerðir sem gilda um förg- un spilliefna. Samkvæmt upplýs- ingum frá nefndinni má t.d. ætla að rúmlega 5000 tonn af rafgeymum séu í umferð á hverjum tíma. Of mikið af rafgeymum eru í reiðu- leysi úti í sveitum landsins og það er mikilvægt að koma til móts við landeigendur við að safna þeim saman. Það er óraunhæft að ætla mönnum að fara með þá á næsta þéttbýlisstað, t.d. í áhaldahús sem opið er á ákveðnum tímum. Ein söfnunarferð á ári, vel kynnt þar sem rafgeymar eru sóttir heim á bæi skilar árangri. Mörg sveitarfé- lög hafa komið sér upp söfnunar- kerfi og þartilgerðum gámum. * Úrgangsolía Með álagningu spilliefnagjalds á olíuvörur hinn 15. mars 1999 kom til framkvæmda þjónustusamning- ur milli Spilliefnanefndar og ís- lenskra olíufélaga. Olíufélögin sækja úrgangsolíuna til allra sem hafa olíuna í tönkum, í það minnsta 400 lítra hverju sinni. Olíunni er ekið til móttökustöðvar félaganna í Örfirisey, eða í geyma sem standa við hafnir þaðan sem olíuskip flytja olíuna í Örfirisey. Smáflát fara hins vegar í sama farveg og önnur spilli- efni og þeim ber að skila til söfnun- arstaða eða Efnamóttökunnar hf. Hér er mikilvægt að koma til móts við landsbyggðarfólk og bændur, þeir þurfa hentug ílát sem sótt yrðu heim, t.d. um leið og fyllt er á olíu- tankinn og/eða að tankur fyrir úr- gangsolíu yrði staðsettur miðsvæð- is á hverjum stað. Margir nota það mikla olíu að hentugar 200 - 400 lítra tunnur ættu að leysa það vandamál að úrgangsolía standi lengi í lélegum ílátum. 20 - pR€VR 8/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.