Freyr - 01.06.2001, Síða 21
Ur Svínavatnshreppi, ónotaðar byggingar horfnar og hesturinn kominn í stað
vélanna.
þar sem þátttakendur verkefnisins
fræðast um það sem er að gerast, fá
hagnýtar upplýsingar og hugmynd-
ir, auk þess að læra hver af öðrum.
Þeir, sem eru ekki nettengdir geta
fengið póstsendingar með hefð-
bundnu sniði. Nú hefur verkefnið
fengið heimasíðu; slóðin er
simnet.is/umhverfí. Þar er hægt að
skrá þátttöku, nálgast upplýsingar
og skiptast á skoðunum.
Staðbundin kynning
Það er mikilvægt að kynna vel
alla þá þjónustu og aðstöðu sem að
gagni getur komið við fegrun sveita
á hverjum stað, t.d. staðsetningu
gámasvæða, hvaða úrgangur á að
fara hvert, móttökustað spilliefna
o.s.frv. Fundir, fréttatilkynningar í
héraðsfréttablöð eða dreifibréf eru
þægilegar lausnir. Eins er mikil-
vægt fyrir fyrirtæki og stofnanir að
kynna aðgerðir til hreinsunar og
fegrunar vel hjá starfsmönnum sin-
um og tryggja þannig þátttöku
þeirra. Nýtt kynningarefni Fegurri
sveita; bæklingur og veggspjald er
væntanlegt í byrjun júní.
I sumar verður lögð áhersla á:
* Aðstoð við þátttakendur.
* Aróður fyrir bættri umgengni.
* Að tengja verkefnið við nýju
náttúruvemdarlögin, en í bráða-
birgðarákvæði III segir að
sveitastjórnir skuli eigi síðar en
árið 2002 hafa lokið úttekt á
ástandi skv. 44. grein (eignir í
* Málning
Allar málningarverksmiðjurnar
veittu afslátt til þátttakenda í fyrra
og margir nýttu sér tilboðin. Nú
hefur borist tilboð sumarsins frá
Hörpu og hinar málningarverk-
smiðjumar ætla að vera með á
sömu forsendum og í fyrra.
* Möl/ofaníburður
Nokkur sveitarfélög auglýstu
opnar námur fyrir íbúa sína og létu
jafnvel ýta upp efni til þess að gera
það aðgengilegra. Dráttarvélar og
önnur landbúnaðartæki verða stöð-
ugt stærri og þyngri þannig að plön
og slóðar vilja vaðast upp í rigning-
artíð. Snyrtilegt malarborið plan
hefur jákvæð áhrif á ásýnd sveita-
bæja.
* Umhverfisstefna
Eyjafjarðarsveit er dæmi um
sveitarfélag sem hefur komið sér
upp vel útfærðri umhverfisstefnu.
Umhverfisstefnu þarf að skipta í
langtíma- og skammtímamarkmið.
* Umhverfisverðlaun
Umhverfisverðlaun, t.d. fyrir
snyrtilegasta sveitabæinn eða
snyrtilegasta fyrirtækið, virka
hvetjandi á menn. Merki Fegurri
sveita er eftir Sigríði Kristinsdóttur.
Ef þátttakendur óska eftir að nota
merkið þá þarf að sækja um það til
nefndar um Fegurri sveitir. Merkið
hentar vel ef veita á umhverfísverð-
laun eða merkja þá sem standa und-
ir ákveðnum kröfum. Það er þátt-
takendum að sjálfsögðu að kostn-
aðarlausu.
Fegurri sveitir
www.simnet.is/umhverfi
Sumarið 2001
Flæðibanki Fegurri sveita
Flæðibankinn er tölvupóstlisti
FR€VR 8/2001 - 21