Freyr - 01.06.2001, Side 22
hirðuleysi, t.d. eyðijarðir, skip í
tjöru, bifreiðar, ónýtar girðing-
ar) og skilað Náttúruvernd ríkis-
ins greinargerð þar að lútandi.
Verkefnisstjóri vill gjaman vera
sveitarfélögum innan handar við
þessa úttekt.
A ð lokum
Það er komið sumar og nú hefj-
um við starf Fegurri sveita þar sem
frá var horfið í fyrra, undir yf-
irskriftinni: „Tökum til á hlaðinu“.
Markmiðið er að fjarlægja allt laust
rusl og drasl fyrir júnílok og að
áætlun liggi fyrir um stærri og fjár-
frekari verkefni í lok sumars; hve-
nær eigi að ráðast í þau, hvemig og
hver beri ábyrgð á því að verkið sé
unnið. Ataksverkefni eiga ekki að
standa lengi en við náðurn góðum
árangri í fyrrasumar og landbúnað-
arráðherra ákvað að verkefnið héldi
áfram. Það virðist vera ríkur vilji
um allt land til að halda starfinu
áfram, m.a. var samþykkt sam-
hljóða ályktun þess efnis á síðasta
Búnaðarþingi, þar sem sérstaklega
Gunnar Árnason
Frh. af bls. 4.
ars kom hvað best fram í snjöllum
tækifærisvísum hans við ýntis tæki-
færi. í þeim vísum og vísum ann-
arra góðra hagyrðinga, svo sem
Bjarna Ásgeirssonar, lengi for-
manns BÍ, og Ragnars Ásgeirsson-
ar garðyrkjuráðunautar, lifa enn
margar kátlegar sögur hjá starfs-
mönnum BI.
Félagsmálastörf Gunnars beind-
ust einkum að tveimur sviðum; fé-
lögum búfræðikandídata, og að
áfengisvamarmálum, þó að víðar
legði hann hönd á plóginn. Hann
var formaður Islandsdeildar
Norræna búfræðifélagsins, NJF,
árin 1958-1967 og var einn af
liðsmönnum þess, sem beittu sér
fyrir stofnun Skógræktarfélags
íslands 1930. Eftir að Gunnar lét af
störfum fyrir BI tók hann að vinna
enn meira að málum templara og sá
var tekið fram að nauðsynlegt væri
að finna lausn á förgun landbúnað-
arplasts og þrifum á strandlengjum.
Tengiliðum við verkefnið fjölgar
jafnt og þétt, nú eru sveitarfélögin
t.d. orðin 58. Verkefnisstjórnin hef-
ur samþykkt að gefa út nokkurs
konar „veiðileyfi" á verkefnisstjór-
ann, og ákveðið hefur verið að
byrja heimsóknir á Austurlandi í
júníbyrjun. Forsenda þess að vel
takist til er að fá að vita frá ykkur,
eins fljótt og unnt er, hvers þið ósk-
ið og hvenær þið viljið fá heim-
sókn.
Fegurri sveitir snúast um að
benda á það hvað þarf að gera,
hvers vegna og hvernig eigi að
standa að verki. Við viljum líka
vera samnefnari fyrir öll þau góðu
verk, sem verið er að vinna að urn
allt land, og kynna þau öðrum til
eftirbreytni.
Mörg þau verkefni, sem ráðist
hefur verið í undir formerkjum
Fegurri sveita, hefðu orðið að
veruleika hvort sem átaksverkefn-
ið hefði komið til eða ekki. Það er
um skeið um reikningshald fyrir
Templarahöllina, hús Stórstúku
Islands í Reykjavík.
Árið 1927 kvæntist Gunnar Olgu
Spgaard frá Austurdal í Noregi.
Þeim varð fjögurra barna auðið.
Þau eru: Árni skólastjóri fæddur
1929, Helga Lísa bankastjóri í
Bandaríkjunum fædd 1933, Sólveig
bankafulltrúi fædd 1935 og Gunnar
búfræðikandídat og leiðsögumaður
fæddur 1939. Olga lést árið 1981.
Þau félög sem Gunnar starfaði
mest fyrir gerðu hann bæði að heið-
ursfélögunt sínurn; Búnaðarfélag
íslands og Stórstúka íslands.
Gunnar Ámason er enn ern og
sér um sig sjálfur á Grundarstíg 8 í
Reykjavík, þar sem hann hefur
lengi búið. Honuin eru nú færðar
ámaðaróskir og alúðarþakkir fyrir
góð og skemmtileg kynni frá
Bændasamtökum Islands og fyrr-
um samstarfsmönnum, sem hann
muna svo vel.
Jóncts Jónsson.
þó mikið fengið með sameiginleg-
um vettvangi fyrir hreinsunarstörf
og að menn fylgist með því sem er
að gerast í umhverfismálum hjá
öðrum en það sýnir sig að
vandamálin eru víða af svipuðum
toga. Landsátak getur vakið fólk
og minnkað vandamálin sem stafa
af þeirri nálægð sem óneitanlega
er fyrir hendi á smærri stöðum.
Vert er að ítreka það að umgengni
til sveita er síst verri en gerist og
gengur annars staðar í þjóðfélag-
inu. Góðar viðtökur bænda og
annarra þátttakenda í verkefninu
skýrast af því að landbúnaðurinn,
hvaða nafni sem hann nefnist, ætl-
ar sér, á að vera og þarf að vera í
fremstu röð í umhverfismálum.
Sveitirnar eru fagrar. Það er ástæð-
an fyrir því að við erum að vinna
að Fegurri sveitum.
Kjarninn í verkefninu Fegurri
sveitir er fræðsla og markmiðið er
að hjálpa heimamönnum, og vinna
með þeim, að því að finna lausnir
sem henta á viðkomandi stað frekar
en að koma með stöðluð svör við
fyrirfram ákveðnum spurningum.
Vonandi gengur okkur vel í
sumar.
Allar frekari upplýsingar veitir:
Heimasíða Fegurri sveita:
www.simnet.is/wnhverfi
Ragnhildur Sigurðardóttir
verkefnisstjóri
Álftavatni, Staðarsveit
356 Snæfellsbær.
Netfang:
ragnhildur.umhverfi @ simnet.is
Sími 435 6695
NMT: 851 1646/GSM: 848 2339.
Ólína Guruilaugsdóttir
Ökrum Breiðuvík
356 Snæfellsbæ.
Netfang: akrar@simnet.is
Sími 435 6751
NMT: 898 7152.
Ragnhildur Sigurðardóttir er
verkefnisstjóri „Fegurrí sveita“ og
lektor við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri.
22 - pR€VR 8/2001