Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Síða 24

Freyr - 01.06.2001, Síða 24
nátttröll sem lítur dagsljósið þó að það hafi vissulega ekki gerst á einni nóttu. Smám saman hafa þau hætt að gera samfélaginu það gagn sem þau ættu að gera og geta gert. Astæðurnar eru fjöl- þættar og ábyrgðin liggur alls ekki eingöngu hjá starfsmönnum eða stjórnendum, heldur einnig hjá sveitarstjórnum og íbúum á hverjum stað. Skilningur á starf- seminni og samfélagslegum ávinningi félaganna er alls ekki alltaf fyrir hendi. Þegar nýir menn koma til starfa, kappsamir ofurhugar, færist stund- um tímabundið líf í tuskumar en reynslan virðist sýna að fyrr en var- ir fellur allt í sama horfið. Skortur á stefnumótun, yfirsýn og víðsýni, stundum samhliða auraleysi, setur starfseminni skorður og minna verður úr framkvæmdum og kynn- ingu á því sem þó er gert en heppi- legt væri. Þetta hefur þau áhrif að skilningur félagsmanna, íbúa og sveitarstjómarmanna á möguleik- um og hlutverki félagsins eða menningarstofnunarinnar minnkar heldur en hitt og fjárveitingar drag- ast saman. Þetta hefur aftur í för með sér að enn minna fer fyrir framkvæmdum og enn dregur úr skilningi og vilja til að snúa vöm í sókn. Möguleikamir eru þó vissulega fyrir hendi ef stjórnendur brestur ekki úthaldið og vel unnin verkefni fá myndarlegan stuðning í orði og á borði. Og ávinningurinn af því að gamalgróin félög og menningar- stofnanir í sveitum landsins séu sprellilifandi tröll, en ekki stein- runnin og stirðnuð, getur verið ómetanlegur. Lifandi menningar- stofnanir standa fyrir rannsóknum og menningarstarfi, sýningahaldi, málþingum, útgáfu- og kynninga- starfi, upplýsingamiðlun, átthaga- fræðslu, skipulögðum ferðum, há- tíðahöldum og skemmtunum. Lif- andi menningarstofnanir efna til samvinnu við ferðaþjónustuaðila og atvinnulíf, skóla og aðra sem vinna á sama sviði. Lifandi menn- Kirkjuból við Steingrímsfjörð á Ströndum. Þar eru nú rekin tvö fyrirtæki, Sögusmiðjan og Ferðaþjónustan Kirkjuból, en hefðbundinn búskapur aflagður. hreint ekki lítið unnið ef hægt er að kynna borgarsamfélaginu land- búnað og lífið í dreifbýlinu nú til dags á jákvæðan og athyglisverð- an hátt með atvinnuskapandi verk- efnum. Félög og menningarstofnanir Nú er það svo að framkvæmd margra verkefna, sem tengjast menningu og sögu, eru varla á færi einstaklinga. Oftast krefjast þau samvinnu ólíkra aðila. Þá liggur beint við að líta til þeirra margvís- legu félaga og stofnana í dreifbýl- inu sem fást við menningu sveit- anna og menningararfinn. Þar mætti nefna gamalgrónar stofnanir eins og minjasöfn, héraðsskjala- söfn, bókasöfn, sögufélög og sókn- amefndir sem allar fást að hluta til við menningararfinn. Önnur félög huga frekar að mannlífi og menn- ingu dagsins í dag og jafnvel dag- legu amstri, búnaðarfélög, kvenfé- lög, ferðamálafélög, ungmenna- og íþróttafélög, svo að dærni séu tekin. Því miður er það víða svo að mörg þessara félaga og menning- arstofnana hafa smátt og smátt stirðnað og steinrunnið eins og / Kirkjubólsrétt haustið 2000. Skemmtun sem þarf að nýta betur f ferðaþjónust- unni. 24 - pR€VR 8/2001

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.