Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2001, Page 25

Freyr - 01.06.2001, Page 25
ingarstofnanir virkja starfs- krafta ungs fólks og heldri borg- ara byggðalagsins og þær leita markvisst að leiðum til að hafa jákvæð áhrif á það samfélag sem þær starfa í. Lifandi menn- ingarstofnanir hafa margfeld- isáhrif og nýta hugvit, mannauð og menntun sem býr í fólki í byggðalaginu til góðra verka. Menning til sýnis og sölu Eins og víða hefur komið fram í ræðum og ritsmíðum virðast felast umtalsverðir möguleikar fyrir dreifbýlið í uppbyggingu menningartengdr- ar ferðaþjónustu. I því efni er lykilatriði fyrir íbúa á hverjum stað að hugsa í auknum mæli um menningu og sögu sem söluvarning. Ef þessir þættir eiga að skipta einhverju veru- legu máli fyrir byggðaþróun og atvinnulíf nægir ekki að líta þannig á að merkisstaðir og sér- staða séu fróðleikur sem gaman sé að ferðamenn hafi áhuga á, heldur verður að finna leiðir til að breyta honum í tekjur fyrir heimamenn. Ólíklegt er að vísu að upp- bygging ferðaþjónustu, sem byggir á menningararfi eða mannlífi, skili skjótfengnum gróða, hér verður að horfa á málin í víðara samhengi. Ávinningurinn er oft fyrst og fremst óbeinn og felst í fjölgun ferðamanna, kaupum á öðrum vörum og þjónustu og bættri ímynd svæða. Margfeldisáhrifin fyrir hvert svæði af því að ná að stöðva ferðamenn, selja þeim vörur og þjónustu og fá þá til að dvelja deginum lengur eru þó sennilega meiri en flestir gera sér í hugarlund. Rannsóknir hafa líka sýnt að þar sem áhersla er lögð á menningar- tengda afþreyingu og ferðaþjónustu skilur at- vinnugreinin meira eftir í kassa heimamanna en aðrar tegundir /' Kirkjubólsfjöru. Minjar um sögu og afrek ferðamennskunnar. genginna kynslóða er víða að finna á Ströndum. Framtak þar sem byggt er á sögu og menningararfi hefur líka oftast margvísleg jákvæð áhrif á samfélagið. Sumt af því liggur í augum uppi, en á öðru er dýpra. Slíkt framtak: * Stuðlar að jákvæðri byggða- þróun * Eykur fjölbreytni í atvinnulífi, skapar ný störf * Skapar ný tækifæri fyrir ungt fólk til atvinnu á sumrin * Skapar íbúum svæðisins margvíslega möguleika á aukatekjum, t.d. með hand- verksframleiðslu * Er liður í að byggja upp og styrkja ímynd svæðisins * Hefur jákvæð áhrif á viðhorf heimamanna til byggðarinnar * Er framlag til menningarmála og minjaverndar * Er heppileg leið til að skemmta og fræða * Hentar vel þeim hópi ferða- manna sem hefur sérstakan áhuga á inenningararfi og sögu * Eykur veltu ferðaþjónustufyr- irtækja * Hefur margfeldisáhrif á svæðinu. Félagslegur ávinningur af öflugu menningarlífi og mark- vissri vinnu með menningararf og samtímamenningu sveitanna er líka töluverður. Aukin vitund og vitneskja um menningu, sögulega sérstöðu og landið sjálft stuðlar að bættri ímynd svæðisins meðal heimamanna og styrkir þannig sjálfsmynd íbúanna og eykur almenn lífsgæði. Það verður að hafa í huga að blómstrandi mann- og menningarlíf, sem trauðla verður metið til fjár, er oft meira virði en sá ávinningur sem telja má í krónum og aurum. Menningararfurinn sem atvinnutækifæri En það er vissulega unnt að hugsa sér menningararfinn sem atvinnutækifæri á margvíslegan FR€YR 8/2001 - 25

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.