Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.06.2001, Qupperneq 26

Freyr - 01.06.2001, Qupperneq 26
Á leiði Fjalla-Eyvindar á Hrafnseyri við Hrafnsfjörð. annan hátt en sem hluta af upp- byggingu ferðaþjónustu. Möguleik- arnir eru engan veginn algjörlega bundnir við þá atvinnugrein. Þeir eru heldur ekki bundnir við menn- ingarstofnanir reknar af opinberum aðilum. Sjálfur hef ég nú í sjö ár framfleytt mér og minni fjölskyldu með fræðistörfum og hugmynda- vinnu og síðastliðin þrjú ár hef ég rekið fyrirtæki senr gerir út á og ein- beitir sér að miðlun sögu og þjóð- fræða og margvíslegum menningar- verkefnum á landsbyggðinni. Það er nóg að gera - íslenskur menning- ararfur er óþrjótandi og lítið notuð auðlind. Þekktir einstaklingar, atburðir frá öllum öldum, sögustaðir, náttúru- perlur, kirkjur, alþýðufræðimenn, bókmenntir og skáld af svæðinu, einstakar Islendingasögur, búskap- arhættir, skógamir, steinamir, fugl- amir, fjaran, sauðféð, hreindýrin, þokan, rigningin, stríðsárin, þjóð- sögur, galdrar, vatnaskrímsli og huldufólk. Allt eru þetta athyglis- verðir þættir í menningararfinum. Allt eru þetta þættir sem geta orðið auðlind í höndunr heimamanna. Allt eru þetta þættir sem hægt er að afmarka, rannsaka og gera að sölu- vöru á margvíslegan hátt. Hvem og einn af þessum þáttum má nýta á ólíkan hátt, miðla og selja á ólíkan máta. Það er hægt að framleiða hand- verk og matvöru sem byggir á ein- stökum þáttum í sögulegri sér- stöðu hvers svæðis. Það er líka hægt að hugsa upp og selja þjón- ustu sem byggir á einstökum þátt- um menningararfsins, t.d. selja leiðsögn í gönguferð eða hesta- ferð. Það er hægt að skrifa um þá grein eða bók, kannski sérstaka bók fyrir ferðamenn eða útbúa kennsluefni, gera listaverk, gefa út póstkort, selja ljósmyndir, búa til vefsíður, halda kvöldvöku eða ráðstefnu, sýna leikrit, setja upp minja- eða myndasýningu, gera útvarpsþátt, sjónvarpsþátt eða kvikmynd. Allt þetta er hægt að gera á grundvelli eins afmarkaðs atriðis í menningararfsins. Það er líka hægt að stofna og reka fyrir- tæki sem einbeitir sér að einhverri einni af þessum aðferðum en hefur menningararfinn allan undir - t.d. útgáfustarfsemi, handverksfram- leiðslu, heimildamyndagerð eða skipulögðum ferðum. Allt þetta er líka hægt að gera sem aukagetu við hefðbundinn landbúnað og þá í smærri sniðum. Þessi störf eða aukastörf geta orðið dreifbýlinu mikilvæg í framtíðinni, fólkið sjálft skiptir hverja byggð miklu meira máli en svo að menn geti leyft sér að einblína á einstakar at- vinnugreinar. Stofnkostnaður við fyrirtæki, sem glímir við miðlun og sölu menningararfsins, getur verið furðu lítill - hugvit, menntun, góður tölvubúnaður og símasamband er stundum allt sem til þarf. Það er vissulega nú þegar vaxandi eftir- spurn eftir og þörf fyrir þjónustu á þessu sviði og slíkur rekstur getur verið staðsettur hvar sem er á land- inu. Og í framtíðinni verður hann örugglega fyrst og fremst þar sem vel er búið að honum og þar sem — Við Ósvör í Bolungarvík. 26 - pR€YR 8/2001

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.