Freyr - 01.06.2001, Side 32
Hjalti
Þórðarson,
Héraðssetri
Landgræðslu
ríkisins,
Hólum í Hjaltadal
Gerð jarðkorta
firðinga (áður Ræktunarfélag
Norðurlands) um þessa vinnu og þá
í tengslum við innsetningu gagna á
tölvutækt form. Þetta samstarf hélst
óbreytt til ásloka 1999 og hefur all-
ur gagnainnsláttur farið fram á Hól-
um síðan. Nú er til mikið magn
upplýsinga um bújarðir í Skagafirði
enda búið að teikna upp hátt í 180
jarðir í héraðinu. Vegna framsýni
og dugnaðar Búnaðarsambands
Skagfirðinga og Landgræðslu rík-
isins og annarra aðila hefur verið
hægt að halda verkinu gangandi.
Farið var af stað með verkefni
þetta á sínum tíma vegna þess að
lítið var vitað um stærð og ástand
heimalanda jarða í héraðinu. Til-
gangur verksins var m.a. annars sá
að reyna að koma í veg fyrir hvers
konar ofnotkun á landi, ná fram
sem hagkvæmastri nýtingu lands,
geta skipulagt landbætur, beit og
ræktun og auka afrakstur lands með
skipulögðum hætti.
Upphaf þessarar vinnu má rekja
aftur til áranna kringum 1990 en
þá voru gerðir uppdrættir af
nokkrum jörðum í héraðinu, unnið
í samstarfi við Ræktunarfélag
Norðurlands. Áður höfðu verið
gerð túnkort fyrir stóran hluta
bænda í héraðinu og var því í raun
um framhald og útvíkkun á því
verki að ræða, ekki aðeins að
kortleggja ræktað land heldur gera
kort af bújörðinni allri. Þessi
fyrstu skref gáfu það góða raun að
ákveðið var að með tíð og tíma og
betri tækni skyldi verkinu haldið
áfram.
í fyrstu var lagt upp með að á
kortunum kæmi fram stærð heima-
landa og landamerki, stærð og gerð
gróins og ógróins lands, ræktað
land, skurðir, vegir, girðingar og
byggingar. Unnið er á loftmyndir
frá Landmælingum Islands sem eru
Góður og uppskerumikill hagi á Hólum. (Ljósmynd: Broddi Ft. Hansen).
AHéraðssetri Land-
græðslu ríkisins að Hól-
um í Hjaltadal hefur um
nokkurt skeið verið unn-
ið að gerð jarðakorta fyrir bændur í
Skagafirði.
í ársbyrjun 1997 var gerður
samningur milli Landgræðslu ríkis-
ins, Skógræktar ríkisins, Hólaskóla
og Búnaðarsambands Skagfirðinga
sem fjallar m.a. um gerð jarðakorta
af bújörðum í Skagafirði. Ráðinn
var starfsmaður til verksins sem
í Skagafirði
skyldi sjá um gróðurgreiningu og
kortlagningu og vinna það verk á
Héraðssetri Landgræðslunnar á
Hólum í Hjaltadal. Unnið var í
samstarfi við Búnaðarsamband Ey-
32 - FR6VR 8/2001