Freyr

Volume

Freyr - 01.06.2001, Page 33

Freyr - 01.06.2001, Page 33
| 3An»a«rtl; »ot»ut og imtui «t jaml« b«3»t«mtlnu. tltt itnn vtt þ«c tún og «T»lbýll. Eignarhald Gcrö og slærð gróöurlcnda SKYRINGAR □ I I Ratkltð lind I I Anntö Itnd y//A ByoflmQ«r Jtrðtmörk Vigir Slóðir Girðingar Skurðir . 1 i ■ . : JARÐAKORT - SKAGAFJÖRÐUR Gerðir gróðurlenda Lagnir í jörðu Byggingar Stærö túnspilda Hluti af bújörð í Skagafirði. skannaðar inn og teiknað ofan á þær í tölvu. Þessar sömu myndir eru notaðar í vettvangsvinnu og gagnaöflun um gróðurfar, land- gerðir og önnur atriði sem koma fram á kortunum. Með tilkomu kortanna opnuðust nýir möguleikar á að hafa yfirsýn yfir stærð og gróðurfar hverrar jarðar og meta þörf og möguleika á úrbótum. Kortin hafa verið að not- uð á margan hátt og geta m.a. verið til að: * skipuleggja ræktað land, beit, skógrækt og uppgræðslu * athuga gróðurfar og fylgjast með breytingu þess * skipuleggja ógróið land * skrá inn landamerki og eignar- hald * skrá fornleifar, ömefni, sögu- staði o.fl. sem hefur menningar- sögulegt gildi * stuðla að almennri og aukinni þekkingu um notkun lands. Allar upplýsingar, sem fram koma á kortunum, eru tengdar við landfræðilegt upplýsingakerfi (LUK), tölvukerfi sem geymir staðbundnar, hnitbundnar upplýs- ingar. Hver innsleginn flötur, lína eða punktur hefur ákveðna land- fræðilega staðsetningu. Hugbúnað- ur kerfísins tengir myndræn gögn við önnur gögn s.s. tölur, texta, töflur o.fl. Einnig er mögulegt að skrá, vista, meðhöndla, greina og kynna tölvugögnin á fjölbreyttan hátt. A kortinu af bújörð í Skagafirði er hægt að sjá stærð og gerð gróð- urlenda, akvegi, slóðir, girðingar, byggingar, eignarhald á landi, nokkur ömefni, vatns- og síma- lagnir. Bak við hvert atriði á kort- inu geta svo verið alls kyns upplýs- ingar sem liggja geymdar í töflu og hægt er að kalla þær fram þegar þess er óskað. Hér að ofan er t.d. búið að kalla fram upplýsingar varðandi ömefnið Jónsgerði og er búið að skrifa um það nokkur orð í gagnagrunninn. Þetta kerfí gefur því næstum óteljandi möguleika. Hægt er að skrá inn í þetta kerfi upplýsingar um sjáanlega hluti á yfirborði jarðar. Eins er auðvelt að koma fyrir í gagnagrunninum upp- lýsingum um menningu og sögu, örnefni sjáanleg og horfin, sel, gamlar götur og þjóðleiðir. Styrk- urinn liggur því í að samfara því að hlutimir eru skráðir þá eru þeir sett- ir inn í áðurnefnt landfræðilegt upplýsingakerfi. Heimildir: Lillesand,T.M og Kiefer.R.W 1994: Remote sensing and image interpreta- tion. (New York), John Viley and Sons, Inc., 750 bls. Samstarfssamningur milli Hóla- skóla, Landgræðslu ríkisins, Búnaðar- sambands Skagfirðinga og Skógræktar ríkisins um starf á Héraðssetri Land- græðslunnar að Hólum í Hjaltadal 1996. Tillöguaðili LUK-hópur tilrauna- verkefnisins um kortagerð 1995: LUK Landfræðileg upplýsingakerfi, 4 bls. pRGVR 8/2001 - 33

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.