Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 39
Úr gamla hólmanum a Rifl. Allt skjót er vel nýtt.
Ljósm. Árni Snæbjörnsson.
Úr gamla hólmanum á Rifi. Bíldekkin eru vinsæl.
Ljósm. Árni Snæbjörnsson..
er þannig búið að byggja upp
myndarlegt æðarvarp sem ætla má
að eigi enn eftir að vaxa.
Tilvísanir:
1. Smári Lúðvíksson, 2000. Per-
sónulegar upplýsingar.
2. Smári Lúðvíksson, 2000. Sjá 1.
3. Smári Lúðvíksson, 2000. Sjá 1.
4, Smári Lúðvíksson, 2000. Sjá 1.
5, Smári Lúðvíksson, 2000. Sjá 1.
6, Morten Frederiksen & Sverrir
Thorstensen, óbirt. An analysis
of survival of adult common
eiders in Iceland - dealing with
heterogeneous capture proba-
bilities.
7, Coulson, J. C., 1984. The popu-
lation dynamics of the Eider
Duck Somateria mollissima and
evidence of extensive non-
breeding by adult ducks. IBIS
126(4); 525 - 543.
Grein þessi er samhljóða grein í
vœntarlegu riti ÆÍ, „Æðarfugl og
œðarrœkt ú Islandi“.
Mon
Vinna gegn spillingu
Tíu spilltustu Iönd í heimi,
að því er talið er, hafa yf-
ir að ráða 15% af nýtan-
legri olíu í jörðu og fast
af því 50% af nýtanlegu jarðgasi.
Þetta kom fram í erindi sem
Michael Price, verkefnisstjóri hjá
norska olíufyrirtækinu Statoil, hélt
á námskeiði um siðfræði og þjóð-
félagsábyrgð í Ósló nýlega. Hann
varaði við eftirgjöf varðandi spill-
ingu á þeim forsendum að hún
væri hluti af þjóðfélagsástandi
viðkomandi lands þar sem erlend
olíufélög rækju starfsemi. Jafn-
framt varaði hann við þeim hugs-
unarhætti að Noregur væri sér-
staklega varinn gegn spillingu,
svindli tengdu samningagerð og
leka á verðmætum upplýsingum.
Mestur hluti þeirra þjóða, sem
búa í spilltu löndunum, búa við
sárustu örbirgð. I mörgum þessara
landa hefur forréttindastétt efnast
á því að selja völd og áhrif til
hæstbjóðenda og á spillingu. Stöð-
um og embættum innan efnahags-
lífsins, stjónmála og embættis-
mannakerfisins hefur verið fléttað
saman með greiða á móti greiða,
sagði Michael Price.
Spilling er ekki bundin ákveðinni
menningu í viðkomandi landi. I
langflesturm þjóðfélögum em op-
inberar gjafir gefnar fyrir opnum
tjöldum. Leynireikningar í erlend-
um löndum em ekki hluti af menn-
ingararfi nokkurs lands. Og hinn
almenni borgari sættir sig ekki við
spillinguna. Mútur em næstum því
alltaf ólöglegar og refsiverð verk,
einnig þar sem fullyrt er að þær séu
hluti af menningararfmum.
Baráttan gegn spillingunni hefst
í eigin ranni hvers og eins fyrir-
tækis. Hver og einn verður að gera
hreint fyrir sínum eigin dyrum.
Statoil hefur þá eindregnu stefnu
að þola hvergi spillingu þar sem
fyrirtækið kemur nærri, en leitast
aftur á móti við að dreifa þekkingu
og móta skoðanir fólks þar sem
því verður komið við.
Það er brýnt að koma þessu skýrt
og greinilega á framfæri fyrir
opnum tjöldum við yfirvöld, við-
skiptamenn, samstarfsaðila, birgja
og umboðsaðila. A þann hátt
sköpum við skilning og virðingu
fyrir því sem við emm að gera.
Michael Price dregur ekki dul á,
að spillingarmál innan Statoil sem
fyrirtækið hefur staðið í fyrir dóm-
stólum og snert hafa starfsemi
þess, hafi íþyngt því. Við skynjum
það hins vegar að þessi íþynging
er að snúast yfir í virðingu fyrir
fyrirtækinu, þar sem við höfum
sýnt festu og ákveðni þegar reynt
hefur á þessar meginreglur.
(Profil nr. 2/2001,
útgefandi Norsk Hydro).
FR6VR 8/2001 - 39