Elektron - 01.07.1916, Side 14
56
ELEKTRÖN
til þess að verka á talsímamóttökutækið mun
vera 1 rétlu hlutfalli við fjarlægðina milli
hæzta og lægsta öldulags, hvar sem er á
línunni. Ef talsímahringrásir okkar hefðu
aðeins fyrirstöðu, myndi öldulagið vera hið
sama við móttökuendann sem við sendi-
endann, en áhrif stöðurafmagnsrýmisins og
eiginíleiðslunnar aflagar öldulag útsenda
straumsins.
í öðru lagi er öldulag móttekna straums-
ins 1 langri talslmahringrás ekki eingöngu
mjög veikt heldur einnig aflagað. Veiklunin
kemur aðeins fram í því, að hljóðmagnið 1
móttökutækinu er minna; en áhrif aflögun-
arinnar koma fram 1 framburði orðanna
(articulation). Eins og margir starfrækjendur
vita, eru til hringrásir þar sem móttekna
hljóðmagnið er mikið, en framburðurinn
slælegur. Eins ber það oft við, að framburð-
urinn sé lýtalaus, en hljóðmagnið mjög
lítið. Á mjög löngum loftlínum mun hins
fyrra verða vart, en hins síðara á sumum
tegundum jarðsíma.
Áhrifabreytileiki stöðurafmagnrýmis og
eiginíleiðslu í talsímahringrásum var upp-
götvaður þegar í byrjun talsímaverkfræði
starfsins. Það var sýnt fram á, að þessi á-
hrif voru gagnstæð og það var sannað
stærðfræðislega, að hægt væri að afmarka
svo stöðurafmagnsrými og eiginíleiðslu tal-
símahringrásar, að hægt yrði að tala eftir
henni eins og hringrás, sem hefði hvorugt
þessara einkenna. I reyndinni (practice)
hefir það viðtangsefni verið leyst á þann
hátt, að eiginíleiðslan hefir verið aukin í
talsímahringrásum sem hafa mikið stöðuraf-
magnsrými, og þaðan kemur orðið „hleðsla".
Eg þykist hafa orðið þess var, að orðið
„hleðsla“ hafi verið misskilið af ýmsum,
sem ekki eru vel heima í talsímaverkfræði,
sökum þess, að í daglegu tali táknar það
að fylla eitthvað, hvort sem það er notað
um vagn eða byssu. En þegar orðið er
notað 1 talsimaverkfræði (og við með
hleðslunni i raun og veru aukum þunga
hringrásarinnar) þá hægjum við ekkert á
henni i sama skilningi og þegar vagnlest
hægir á sér ef þungi hennar er aukinn með
þvi að bæta vögnum aftan við. Það er mjög
erfitt að taka nokkuð hliðstætt, auðskilið
dæmi, og samlikingar við vísindalegar
fræðisetningar eru sjaldan réttar, enda þótt
þær geti stundum komið að notum. Eg held
samt að eg ætti í þessum fyrirlestri að
reyna að taka hliðstætt dæmi.
Ef eg tek eins yards langan streng, held
í annan enda hans og sveifla honum í hring
yfir höfði mér, mun eg þurfa töluvert afl
til þess að láta strenginn yfirbuga fyrirstöðu
loftsins. Ef eg nú festi einhvern lítinn þunga
við annan endann, verður ef til vill dálítið
erfitt að koma honum á hreyfingu, en eftir
að það er einu sinni búið, þarf lítið til þess
að halda ferðinni við. Svo er, að þunginn
hefir aukið hreyfimagn strengsins og gerir
mér léttara að sigra fyrirstöðu loftsins.
Þetta sýnir að nokkru leyti, þótt ófull-
komlega sé, hvað á sér stað í talsímahring-
rás þegar við hlöðum hana. I raun og veru
aukum við hreyfiafl straumsins og stuðlum
þannig að hreyfingu hans gegn fyrirstöðu
hringrásarinnar.
Hér í landi*) hefir hleðsla aðeins verið
notuð á neðanjarðarhringrásum, með þvt
að hennar er slður þörf á loftlínum. Neð-
anjarðar talsímahriugrásir hafa tiltölulega
mikið stöðurafmagnsrými og mjög litla eig-
inlleiðslu. Áhrif stöðurafmagnsrýmisins
aleins, í talsímahringrás eru þau, að safna
fyrir orku straumsins eitt augnablik og
sleppa henui síðan. Það hvorki drekkur i
sig né eyðir orkunni, en áhrifin af þessari
fyrirsöfnun og lausn orkunnar á víxl verka
á móti straumnum, sem veitt er inn í hring-
rásina frá sendiendanum. Stöðurafmagns-
rými neðanjarðarhringrása er óhætt að ætla
jafn dreift eftir allri lengd hennar, og áhrif
þau sem eg einmitt hefi lýst eiga sér stað
eftir allri lengd hringrásarinnar. x
Ennfremur. I 25 mílna langri hringrás
gæti straumurinn, sem t sendiendanum
hefði aflfylli táknaða með t. d. 100, haft í
móttökuendanum aflfylli, sem 1 hlutfalli við
hina yrði sex. Þetta virðist nú furðuleg
rýrnun, en hún á sér einmitt stað á meðal-
línu milli London og Liverpool, þar sem
samtöl þó ganga vel. I langri talstmhring-
rás, þar sem rétt er á takmörkunum að
heyrist, er móttekni straumurinn minni en
1 af hundraði af þeim útsenda.
Eins og eg hefi áður tekið fram, hafa
neðanjarðarhringrásir mjög litla eigin-
lleiðslu, en áhrif hennar leitast þó við að
koma 1 veg fyrir að orka safnist fyrir 1
rými hringrásarinnar, og tilgangurinn með
að hlaða er sá, að auka eiginíleiðsluna og
á þann hátt að varna því enn frekar, að
rýmið taki upp mikið af orkunni. íleiðsla
hringrásar er aukin með því að setja 1-
*) í Englandi. — Ritstj.