Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2001, Qupperneq 9
UNDIR FÁVÍSIFELDI JQHN RAWLS ÁTTRÆÐUR _____________EFTIR _____________ ANDREAS FÖLLESDAL JOHN Ravvls, áhrifaríkasti stjórn- málaheifnspekingur 20. aldar, varð áttræður 21. febrúar. Rawls var pró- fessor í heimspeki við Harvardhá- skóla frá 1962 þar til hann lét af störfum 1991. Hann var ráðinn til starfa á grundvelli einungis þriggja birtra ritgerða. En hugmyndirnar í þeim urðu grunnurinn að bókinni A Theory of Justice [Kenning um réttlæti], sem setti kúrs- inn bæði meðal heimspekinga og annars staðar þegar hún kom út 1971. Siðfræðingar og stjórnmálaheimspekingar gerðu sér fljótlega grein fyi'ir því, að nú varð maður annaðhvort að vinna samkvæmt kenningu Rawls eða útskýra hvers vegna maður kaus að gera það ekki. Rawls hefur haft gífurleg áhrif á vitsmuna- og stjórnmálalíf á Vesturlöndum, í heimspeki, lögfræði, sálfræði, stjórnmálafræði og hag- fræði. Réttlátt samfélag Spurningin sem vegur þyngst hjá Rawls er hvaða kröfur þurfi að gera til að samfélag sé réttlátt. Hugmynd Rawls er í stuttu máli sú, að það sem ráði úrslitum um réttlátt sam- félag sé það hvernig þeir verst settu hafa það. Hann setur fram nokkr- ar grundvallarreglur um það hvernig lífsgæðum og réttind- um skuli skipt á milli þegna með ólíkar lífsskoðanir. I fyrsta lagi verður að tryggja öllum jöfn pólitísk og borgara- leg réttindi. Einnig verður að tryggja jöfn tækifæri; fólk með samskonar hæfileika og undir- búning verður að hafa jafnan aðgang að hinum ýmsu störf- um í samfélaginu. Þegar kemur að dreifingu efnahagslegra gæða hafnar Rawls bæði algeru frelsi á formi markaðsfrjálshyggju og algerum jöfnuði á formi jafnra launa. í staðinn telur hann að stofnanir samfélagsins verði að tryggja jafnar ævitekjui- óháð samfélagsstöðu, nema hagur þeirra verst settu verði bættur með því að einhverjir hafi hærri laun og stækki þannig „þjóðarkökuna". Hærri laun fyrir sum störf eru því réttlætanleg, en aðeins ef slík- ur launaauki er nauðsynlegur til að gera minnstu sneiðina af þjóðarkökunni eins stóra og hægt er. Þessi grundvallarregla kallastójöfnuðargrundvallarreglan. Fávísifeldurinn Þessar grundvallarreglur tjá margt af því sem er sameiginlegt með mörgum trúarlegum og flokkspólitískum lífsskoðunum, og er að finna í meginviðhorfum bæði sósíaldemókrata og kristilegi-a demókrata. Rawls skýtur nýjum stoðum undir þessar grundvallarreglur, eftir því sem hægt er án þess að grípa til umdeildra trúarlegra og heimspekilegra forsendna. Til að henda reiður á hugmyndum okkar um réttláta skiptingu stingur Rawls upp á eftirfar- andi hugsunartilraun: Imyndum okkur að mað- ur þurfi að ákveða hvaða kröfur skuli gera svo að samfélagið sé réttlátt, en það verði að gerast í byrjunarstöðu undir fávísifeldi. Enginn veit hvaða hæfileika og lífsskoðanir þeh- sjálfir hafa, og heldur ekki hver staða þeirra sjálfra verður í samfélaginu. Hvaða forsendur skipt- ingar myndi maður þá velja? Nytjastefnan, hefð sem réð lögum og lofum í siðfræði í 150 ár, myndi samþykkja að lítill minnihluti myndi sæta sífelldri kúgun ef þetta leiddi til hámarksnytja fyiir heildina. En Rawis telur að undir fávísifeldinum myndi eng- inn hætta á samfélag þar sem einungis heild- arnytsemd skiptir máli, án tillits til skiptingar lífsgæða. Enginn myndi hætta á að verða með- al þeirra verst settu í slíku samfélagi ef þeir ættu möguleika á að tryggja sér jöfn pólitísk réttindi og ævitekjur samkvæmt ójöfnuðar- grundvallarreglunni. Undir fávísifeldinum myndu menn því taka grundvallarreglur hans fram yfir nytjahyggjuna. Rawls telur einnig að menn myndu hafna því að skipting lífsgæða í byrjunarstöðunni ætti að vera hallkvæm tilteknum hæfileikum eða til- teknum lífsskoðunum, þar eð þeir myndu ekki vita hvort þeir hefðu sjálfir þessa hæfileika eða deildu þessum lífsskoð- unúm. Réttlæting siðferðisins Auk þess að færa rök fyrir þessum réttlætisgrundvallar- reglum út frá upphugsaðri sáttmálastöðu veitir A Theory of Justice einnig innsýn í aðra mikilvæga spurningu, um hvernig hægt sé að réttlæta siðferð- ishugmyndir. Hugmyndir okkar um hvað sé rétt og hvað sé rangt við tilteknar að- stæður byggjast oft á almenn- um siðferðisreglum um hvað sé gott og rétt, um hvað þurfi að taka með í reikninginn og svo framvegis. En hvernig er aftur á móti hægt að réttlæta þessar reglur? Rawls heldur því fram, að siðferðishug- myndir okkar réttlæti hver aðra í endurskoð- uðu jafnvægi. Við aðlögum bæði raunverulegar siðferðishugmyndir okkar og gi-undvallarregl- ur okkar í ljósi hvor annarra, þannig að þær verða á endanum að forsendum og niðurstöð- um í hagnýtri kenningu. Þá veita þær hvor annarri gagnkvæma réttlætingu. Mat okkar á raunverulegum aðstæðum fær réttlætingu sína „ofanfrá“, en almennu reglurnar sem við fylgj- um fá aftur á móti réttlætingu sína „neðanfrá", með því að sýna fram á að þetta séu þær grund- vallarreglur sem eigi best við allar þær tilteknu hugmyndir sem við höfum um raunveruleg til- vik og hvernig við bregðumst við í siðferðisefn- um. Rawls réttlætir þannig grundvallarreglur sínar í tveim skrefum. Fyrst sýnir hann fram á að grundvallarreglurnar yrðu fyrir valinu ef taka þyrfti ákvörðun undir fávísifeldi. Þessi feldur er tákn fyrir það sem við teljum að taka þurfi með í reikninginn varðandi spurninguna um réttláta skiptingu á milli jafnra borgara. Síðan er samfélagssáttmálinn réttlættur með því að sýna fram á að niðurstöðurnar eru í sam- ræmi við yfirvegaðar siðferðishugmyndir okk- ar um jafna virðingu, réttlátan launamun, póli- tískt vald og jöfn tækifæri. Sameiginlegar hugmyndir um réttlæti í seinni ritgerðum og bókinni Political Lib- eralism [Frjálslyndisstefnan] (1993) hefur Rawls verið ákaflega upptekinn af því hversu mikilvægt það sé að í samfélaginu ríki sameig- inlegar hugmyndir um réttlæti. Samfélag sem einkennist af fjölbreyttum lífsviðhorfum verð- Höfundur er prófessor í hagnýtri heimspeki við Óslóarhóskóla og við ARENA sem er rannsóknar- verkefni um Evrópuvaeðingu þjóðríkisins. Hann skrifaði doktorsritgerð í stjórnmálaheimspeki undir handleiðslu Johns Rawls við Harvardháskóla. ur að eiga slíkan sameiginlegan grundvöll til að öruggt sé að þar ríki traust og að stofnanir samfélagsins njóti stuðnings til lengri tíma. Rawls heldur því fram að réttlæting sín á grundvallarreglum um skiptingu gæða taki mið af gefnum hugmyndum um gildi einstak- linga og hlutverk samfélagsins, sem sköruð samstaða geti verið um, þvert á margar mis- munandi lífsskoðanir. Kenningin getur verið sameiginlegur þáttur í ólíkum lífsskoðunum. A Theory of Justice kom út í Bandaríkjunum á þeim tíma er borgararéttindahreyfingin, Víetnamstríðið og átök ólíkra lífsskoðana vöktu spurningar um réttmæti stjórnmálaforystunn- ar. Við þurfum einnig á að halda, í samfélagi nútímans, framlagi heimspekinnar til opin- berrar umræðu. Við þurfum sameiginlegan grundvöll fyrir mælikvarða á réttlátt samfélag til að geta tekist á við þær spurningar er vega þyngst. Framtíð almannatiygginga, notkun markaðsaðferða í opinbera geiranum, áhrif Evrópusambandsins á lýðræðishugmyndir, og grundvöllur og takmörk umburðarlyndis eru allt málefni sem takast þarf á við með þeim hætti að öllum sé sýnd sama virðing. Kenning Rawls er ítarlegt og kerfisbundið svar við mikilvægri gnmdvallarspurningu í stjórnmálum: Hvernig geta sameiginlegar þjóðfélagsstofnanir okkar komið fram við alla sem frjálsa og jafna einstaklinga, þrátt fyrir það hversu ólík við erum? Ekki er þar með sagt að tillögur hans séu óumdeildar. Hann tilheyi-ir rökgreiningarhefðinni í heimspeki, þar sem reynt er eftir megni að gera grein fyrir for- sendum og röksemdafærslum á sem skýrastan hátt. Það gerir auðveldara um vik að benda á umdeilanlegar forsendur, veikleika og galla. Imyndum okkur aö maðurþurfi aö ákveöa hvaöa kröfur skuli gera svo aö samfélagiö sé réttlátt, en þaö veröi aö gerast í byrjunarstööu undirfávísifeldi. Eng- inn veit hvaöa hœfi- leika og lífsskoöanirþeir sjálfir hafa, ogheldur ekki hver staöaþeirra sjálfra veröur í sam- félaginu. Hvaöa for- sendur skiptingar myndi maöurþá velja f Og gagnrýnin hefur ekki látið á sér standa, þótt margir gagnrýnendanna hafi ekki verið jafnvinsamlegir í túlkun sinni á [Rawls] og hann hefur ætíð reynt að vera í túlkun sinni á öðrum. Vinsamlegur, uppbyggilegur en gagnrýninn lestur Rawls á öðrum er eftirbreytniverður. Hann leggur ætíð áherslu á það að hann hafi sjálfur staðið á öxlunum á risum, bæði við að setja í formúlur spurningar sem eru mikilvæg- ar fyrir samtímann, og við að finna vel ígnmd- uð svör. Gagnrýnin hefur meðal annars leitt til þess að Rawls hefur útvíkkað, endurskoðað og betrumbætt kenningu sína. Hann hefur skrifað um alþjóðlegt réttlæti í bókinni Law of Peoples [Lög þjóðanna] (1993), og endurskoðaði A Theoi-y of Justice 1999. Styttri bók, Justice as Fah-riess [Réttlæti sem sanngimi], verður gef- in út síðar á þessu ári. Verkefnin sem nú bíða okkar krefjast þess að við spyrjum hvernig samfélagið geti sýnt öllum manneskjum jafna virðingu, þrátt fyi'ir það hvað við erum mismunandi. Burtséð frá því hvað okkur kann að finnast um grundvallaregl- ur Rawls um skiptingu gæða getur verið akkur í því að taka þátt í umræðu líkt og maður væri undir fávisifeldi. Endurskoðað jafnvægi og sköruð samstaða sýna hvemig hægt er að rétt- læta gildisdóma, jafnvel í samfélagi þar sem lífsviðhorf eru fjölbreytt. Kristján G. Arngrímsson þýddi. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 24. FEBRÚAR 2001 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.