Fylkir - 23.12.1997, Síða 3
FYLKIR jólin 1997
Guðbiörg Matthíasdóttir
Hátíð
fagnaðar,
ljóss og friðar
Desembermánuður er
genginn í garð. Á marg-
víslegan hátt erum við minnt
á komu jólanna. Ég held, að
það fari ekki fram hjá
neinum að jólin em að koma.
Hvert sem litið er getum við
séð merki hátíðanna. Jóla-
skreytingar, auglýsingar um
allt og ekkert. Við verðum
vör við ysinn og þysinn og
spennuna hjá bömunum sem
eru eftirvæntingarfull og
tilhlökkun þeirra mikil þar
sem þau vænta mikils á
jólahátíðinni. Við þurfum
líka að muna að það er
nauðsynlegt að hlakka til og
gleðjast yfir því sem fram-
undan er. Margir byrja á
aðventunni að undirbúa
komu jólanna, baka, skreyta
oghugaaðjólagjöfum. Jólin
með jólaundirbúningi varpa
birtu á hversdagslífið.
En látum samt ekki amstur
og veraldlegan undirbúnað
jólanna villa okkur sýn. Við
emm að fagna fæðingu frels-
arans þessi jól eins og öll
önnur jól. Minnug þess ætt-
um við að njóta aðventunnar
með frið í sálinni og leiða hjá
okkur jólastreituna. Hinn
raunverulegi jólaboðskapur
sem engillinn sagði við
fjárhirðana hljóðar svo:
„Verið óhræddir, því sjá ég
boða yður mikinn fögnuð,
sem veitast mun öllum lýðn-
um. Yður er í dag frelsari
fæddur, sem er Kristur
Drottinn í borg Davíðs. Og
hafið þetta til marks: Þér
munuð fínna ungbam reifað
og liggjandi í jötu. Og í
sömu svipan var með engl-
inum fjöldi himneskra her-
sveita, sem lofuðu Guð og
sögðu: Dýrð sé Guði í upp-
hæðum og friður með þeim
mönnum, sem hann hefur
velþóknun á.“ (Lúk. 2: 10-
14).
Jólaboðskapur Biblíunnar
er fluttur um gjörvallan krist-
inn heim. I þessum boðskap
felst friður og fögnuður enda
jólin hátíð fagnaðar, ljóss og
friðar.
Allt of margir eru
hræðilega einmana í dag.
Margir sjá aðeins tómleika
og tilgangsleysi. Of fáir
mega vera að því að sýna
þessu fólki skilning og
umhyggju. Reynum að ýta
frá okkur þeirri svartsýni,
sem ríkt hefur hér í
bæjarfélaginu. Égtekundir
orð séra Bjama Karlssonar í
Fréttum 27. nóv. sl. en þar
sagði hann „ef eitthvert
byggðarlag utan suðvestur-
hornsins á framtíð fyrir sér
eru það Vestmannaeyjar.
Kirkjan er vettvangur mann-
ræktar og tilbeiðslu.“ Hér er
öflugt safnaðarstarf og kirkj-
an opin hvem dag.
Við megum aldrei missa
vonina og um leið trúna á
lífið. Við eigum að njóta
hverrar stundar í lífinu á
hvaða árstíma sem er ef
heilsan er fyrir hendi. Jólin
eru fjölskylduhátíð og þér
gefst tilefni til að styrkja
fjölskylduböndin. Gott er á
þessum tímamótum að
staldra við og hugleiða með
sjálfum okkur líf okkar og
hvers við væntum af lífínu.
Með lífi sínu, breytni og
kenningum gaf Jesús Kristur
okkur til eftirbreytni hina
einu og sönnu fyrirmynd
mannlegs lífs.
Megi jólahátíðin flytja þér
og þínum birtu og yl og
komandi ár verða öllum til
heilla.
Guðbjörg
Matthíasdóttir
Höfundur er húsmóðir og
kennari og situr í sóknarnefnd
Landakirkju
3
Bls 3 Jólahugvekja
eftir Guðbjörgu Matthíasdóttir
Bls 5 Þekking og djörfung eru lykillinn
að framförum og farsæld á íslandi
Árni Johnsen ræðir við Pál Sigurjónsson frá
Ofanleiti, forstjóra ístaks
Bls I I Jólahald í Katalóníu
Úlfar Steindórsson ogjóna Osk
Pétursdóttr skrifa frá Barcelona.
Bls 12 Að komast heim um jólin
Sigtryggur Helgason skrifar um minnisverða
atburði, um horfinn heim og breytta tíma
í samgöngum.
Bls 14 í hita og sól rétt fyrir jól
Kristín Inga Grímsdóttir skrifar frá Phoenix í
Arizona.
Bls 16 Raunverulegur möguleiki
eða draumur?
Grímur Gíslason skrifar hugleiðingar í tilefni
þess að 30 ár eru liðin frá komu svifskipsins
SR N6 til Vestmannaeyja.
Bls 19 Vígbúnaður á Skansinum
1586 - 1997
Halldór Baldursson dr. med. skrifar um
byggingarsögu og viðbúnað á Skansinum
fyrr og nú.
Bls.23 KFUM&K íVestmannaeyjum
Skapti Örn Ólafsson skrifar um starfsemi
félagsins
Bls.26 Látnir kvaddir
Myndir af fólki sem búið hefur í
Vestmannaeyjum í lengri eða skemmri tíma
og lést á árinu
Bls.30 Helgihald á jólum og áramótum
ÚTGEFANDI:
RITNEFND:
FORSÍÐUMYND:
PRENTVINNA:
UPPLAG:
Eyjaprent hf. fyrir hönd
Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum
Arnar Sigurmundsson ábm.,Magnús Jónasson.Grímur Gíslason
Sigurður Einarsson og Guðmundur Eyjólfsson.
Álsey og Brandur í kvöldkyrrðinni. Ólafur E Lárusson / Odda.
Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum
2400 eintök
BLAÐINU ER DREIFT í ÖLL HÚS í VESTMANNAEYJUM OGAUK ÞESS SELT ÁSKRIFENDUM VÍÐA UM LAND OG í
LAUSASÖLU í VESTMANNAEYJUM OG REYKJAVÍK.