Fylkir


Fylkir - 23.12.1997, Blaðsíða 13

Fylkir - 23.12.1997, Blaðsíða 13
FYLKIR jólin 1997 13 Helgi Helgason VE með fullfermi af síld á leið til hafnar. í Skógum, sonur Sigurjóns sagði mér síðar við upprifjun á þessari ferð að hann hefði alltaf farið til kirkju á aðfangadag. Hann var að sjálfsögðu mættur til að aðstoða föður sinn og áhöfnina við að koma til skila pósti og vörum og komu þeir því seint heint þennan aðfangadag. Ingvar sagði við mig: „Sigtryggur, þetta vom jólin þegar ég komst ekki í aðfanga- dagsmessu. En mikið skelfíng þólti honum pabba vænt um whiskyflöskuna , sem hann Helgi pabbi þinn sendi honum sent smá þakklætisvott“. Eg má til með að geta þess, að Sigurjón og Isleifur Ingvarsson voitj bræður. Þau hjón, ísleifur og Guðmunda kona hans, bjuggu á Goðafelli sem var næsta hús við Grímsstaði, æskuheimili okkar. Við bræðumir vorum þar heima- gangar og vom þau okkur sem aðrir foreldrar. Þau búa enn í Eyjum í hárri elli. Fæ ég þeim seint fullþakkað kærleikann, sem þau sýndu mér ungum dreng. Misstum góðan leikvöli þegar Tangafjaran hvarf Ar var liðið og komið fram að jólurn 1947. Ég hafði lokið landsprófi um vorið og innritaðist í 3. bekk í Menntaskólanum í Reykjavík um haustið. Vestmannaeyjar vom gjörólíkar því sem þær em nú. Byggðin náði upp að kirkju við Skólaveginn og Kirkjuveginn, en Brekastígurinn var líkur því sem hann er enn í dag. Fyrir sunnan og vestan við Bamaskólann voru stakkstæði. Byggðin til vesturs endaði við Heiðaveginn, en fyrstu húsin við Hólagötu og Brimhólabraut vom í byggingu. Einnig var byrjað að byggja verkamannabústaðina við Heiðaveg. íbúafjöldinn var 3.478 og hafði fækkað um 110 frá 1945. Fiskibátaflotinn á þessum ámm var um 80 bátar, yfirleitt af stærðinni 15-35 lestir. Aðalbryggjumar vom Básaskersbryggjan, sent var nýbyggð, Bæjarbryggjan og Edin- borgarbryggjan. Ennfremur var byrjað að dæla sandi inni í botni og kominn þar vísir að því sem nú heitir Friðarhöfnin. Þá var einnig nýlokið við að dæla sandi suður fyrir Brattagarð og fylla þar með fjömna milli Bæjarbryggju og Tangans og upp að Strandvegi. Þar með urðu Pallamir, fisk- kræmar við Strandveg, á þurru og fjótlega var byrjað að rífa þær. Seinna var Fiskiðjan byggð á þessu svæði. Við strákamir misstum mikið við það að Tangafjaran hvarf. Hún var góður leikvöllur. Þar sigldum við bátum, byggðum kastala og flóðgarða. Við vissar aðstæður myndaðist mikið sog í höfninni svo að sjórinn lyftist allt að einum metra í mestu sogunum. Þá fannst okkur gaman að byggja stóra flóðgarða, standa inni í þeim og bíða aðsogsins. En stundum bmstu þeir undan hæð sogsins og þá vom það blautir og sneyptir strákar sem fóm heim til mömmu. Einnig var vinsælt að veiða ufsa við bryggjumar á vetuma. Við kölluðum þá murta og þá stærstu jasa. Jólaferð meðm/sHelga Helgasyni VE til Eyja. Sagan endurtekur sig. Það var komin Þorláksmessa og veður hafði verið óhagstætt til flugs undanfarna daga. Ekki var útlit fyrir að flogið yrði á aðfangadag. Pabbi var einnig staddur í Reykjavík á þessum tíma og var veðurtepptur ásamt fjölda fólks. Vegna veðurs var ófært til Stokkseyrar. Ms. Helgi Helgason var þá í Reykjavíkurhöfn og átti að vera þar yfir hátíðamar, en hann var þá við síldveiðar í Hvalfirði. Vestmannaeyingamir í áhöfninni, þeir Emil Andersen stýrimaður, Ingólfur Matthíasson l.vélstjóri, Magnús Jónsson 2. vélstjóri, Armann Bjarnason matsveinn og Gunnar Eiríksson háseti voru einnig veðurtepptir. Ms. Helgi Helgason var þá nýbyggður, 188 lestir og er hann stærsta tréskip sem byggt hefur verið hér á landi. Bygging hans hófst 1943 og lauk um sumarið 1947. Fór hann á síldveiðar fyrir Norðurlandi undir skipstjóm Amþórs Jóhannnssonar, mikils aflamanns frá Siglufirði. Helgi Helgason var byggður í fjörunni þar sem þrær Fiskimjölsverksmiðjunnar eru nú. Þegar átti að sjósetja hann þurfti að draga hann unt 70 metra niður í fjöruna. Byrjað var á sjósetn- ingunni á fimmtudegi, en gekk brösulega, því hann sat fastur í bakkastokkunum sem vom undir kilinum. Hugkvæmdist mönnum þá að setja fallbyssuvaselín í bakkastokkana, en Sigurjón Ingvarsson í Skógum hafði fundið tunnu með því. Gekk þá allt vel og þegar hann fór fyrst af stað rann hann eina 11 metra í einu kasti og hékk bara á toppstögunum og rambaði til. „Þá varð ég hræddur“, sagði Brynjólfur Einarsson skipasmiður sem smíðaði skipið. Hinn 7. júní klukkan 23 að kveldi á afmælisdegi Brynjólfs flaut Helgi Helgason. Ég fékk að vera um Á þessu ári voru liðin 50 ár frá því smíði Helga Helgasonar VE 343 lauk hér í Vestmannaeyjum. En báturinn er stærsta tréskip sem smíðað hefur verið hér á landi. Helgi Benediktsson og kona hans, Guðrún Stefánsdóttir. Myndin er tekin við Landakirkju árið 1962. niður á bryggju og biðja um far. Var það sjálfsagt og engurn neitað. Um borð vom 10 kojur í lúkar og 4 kojur í káetu. Svo voru 2 káetur með 2 kojum hvor, fyrir stýrimann og matsvein, svo og báða vélstjórana. Auk þess var skip- stjórakáeta undir brúnni. Það var ótrúlegur Ijöldi sem streymdi niður að höfn til að fá far, yfir 50 manns. Ahöfnin reyndi að koma fólkinu fyrir. Voru tveir skipaðir í hverja koju eða samtals 36 manns. Ahöfnin gaf eftir sínar kojur. Eins og ég sagði hafði verið slæntt veður undanfarna daga, austlægar áttir með 8 - 9 vindstigum og ekkert flugveður. Við lögðum af stað um kl. 19.30 að kveldi Þorláksmessu eins og fyrr segir. Við Hanni í Svanhól, sem var einn farþeganna, stóðum aftur á dekki og horfðum á bæjarljósin dofna eftir því sem við ijarlægðumst. Þar sem ég er mjög sjóveikur fór ég fljótlega niður að ftnna mér afdrep. Ég fékk enga koju, en fékk að liggja á bekknum fyrir framan eina kojuna í káetunni og hafði björgunarbelti fyrir kodda. Veður gerðist slæmt og þar sem skipið var tómt valt það allnokkuð að Munktell vélinni. Vélarhljóðið virkaði á mig eins og taktfastur hjartsláttur. Komum heim tveimur stundum fyrir jól. Loks klukkan 4 á aðfangadag komum við til Eyja og lögðumst að Básaskersbryggjunni vestan- verðri eins og árið áður. Ingólfur Matthíasson sagði mér seinna að taldir hefðu verið 56 farþegar í land og enginn rukkaður um fargjald. Að sjálfsögðu voru bræður mínir mættir til að ná í okkur og keyra okkur heint. Mikið var nú notalegt að koma heim í eldhúsið á Heiðaveginum til mömmu og fá kaffi, jólaköku og smákökur. Hún var að undirbúa jólamatinn. Það var venja hennar að hafa grjónagraul með rúsínum og möndlum og steikt lambalæri með brúnuðum kartöflum. Veðrið var gengið niður og komin hæg norðanátt. Sjaldan hafa klukkur Landakirkju hljómað jafn fagurt í mínum eyrum og þetta aðfangadagskvöld þegar þær kölluðu kirkjugesti til tíða. borð og mér er minnisstæður sá mikli mannfjöldi sem var á Básaskersbryggjunni og fagnaðar- lætin er hann flaut. Jæja, pabbi talaði við áhöfnina og það varð að ráði að þeir myndu sigla Helga Helgasyni til Eyja með okkur feðga. Fréttin um að Helgi Ben. ætlaði að láta skipið fara með sig og strákinn til Eyja barst með undraverðum hætti til þeirra Eyjamanna sem voru veðurtepptir í Reykjavík. Akveðið var að leggja úr höfn milli kl. 19-20 á Þorláksmessukvöld og áætlað að siglingin til Eyja tæki um tólf tíma. Upp úr klukkan 6 fór fólk að konta mati landkrabbans. Sjóveiki sótti á fólk. en þeir hraustu aðstoðuðu eftir mætti og gáfu fólki að drekka. Ferðin gekk hægt því að brim var og fyrst austan átt en síðan ssv. 8 vindstig. Lítið varð unr svefn hjá mér og mikið var tíminn lengi að líða. Ég man að ég ældi löngum ljórum sinnurn á klukkutíma. Gott var að fá vatnssopa á milli. Þeir sem ekki hafa verið sjóveikir hafa misst af mikilli lífsreynslu, finna hvernig maður svitnar, maginn ólgar og svo kernur ælan og síðar beiskt gallið. Þó að hægt gengi miðaði þó áfram og notalegt var að heyra slögin í 500 hestafla June

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.