Fylkir - 23.12.1997, Qupperneq 14
14
FYLKIR jólin 1997
S
I híta og sól
rétt fyrir jól
Kristín Inga Grímsdóttir skrifar frá Phoenix í Arizona
í Bandaríkjunum
Kristín Inga brunar á línuskautum eftir Venice Beach í Los
Angeles. „Og hvor sem þið trúið því eða ekki þá datt ég
ekki“ segir Kristín.
Mér finnst ótrúlegt að hugsa til
þess, þar sem ég sit hér á
stuttbuxum í hitanum og skrifa
þessar línur, að jólin séu að koma.
Þetta er talsvert öðruvísi aðventa
en ég er vön. Hér í Phoenix í
Arizona er sól og yfir 20 stiga hiti f
desember og því ekki sá kuldi sem
égervön áþessum árstíma.
Þegar ég ákvað fyrir tveimur
árum að fara sem Aupair til U.S.A.
vonaðist ég til að lenda á stað þar
sem væri sumar allt árið, þó að ég
hafí ekki sótt neitt sérstaklega um
það. Vonir mínar í þeim efnum
rættust þó því ég var svo heppin að
lenda hér í Phoenix.
Phoenix er staðsett í
Arizonafylki, inni í miðri
Arizonaeyðimörkinni, þannig að
hér allt í kring er eyðimörk, enda
eru hér yfir 300 sólardagar á ári
og yfír háveturinn fer hitinn ekki
mikið niður fyrir 20 stig. Og ég bý
hér í nýju húsi í nýbyggðu hverfi
einum útjaðri borgarinnar og
handan við bakgarðinn hjá okkur
er eyðimörk svo langt sem augað
eygir, enda koma sléttúlfar,
„Coyotes“, og snákar hér að
húsgarðinum um nætur.
Eg lagði af stað í þessa ársdvöl
mína í Bandarikjunum 4. júní sl.
og óhætt er að segja að þessi tími,
sem liðinn er, hafi verið rnjög
viðburðaríkur. Ég var full tilhlökk-
unar og mér fannst eins og ég væri
bara að skreppa í létt sumarfrí. Ég
dvaldi í nokkra daga í Washington
á námskeiði á vegum Aupair-
samtakanna en 7. júní hélt ég
þaðan til Phoenix í Arizona. Ég
hafði fengið fjölskyldu þar og átti
að passa eina stelpu, Elisabeth,
sem er 2ja ára. Fjölskyldan sem ég
er hjá er alveg yndisleg og hefur
reynst mér vel. Húsmóðirin, Susan,
er sölumaður fyrir Johnson &
Johnson og húsbóndinn, Jim, er
íþróttafréttamaður á sjónvarpsstöð
og umboðsmaður fyrir hafna-
boltaspilara. Svo er hér yndislegur
hundur sem heitir Morgan.
Ég kunni strax vel við mig hér
og mér líður mjög vel. Hér hef ég
upplifað margt skemmtilegt og
fengið að kynnast svo ótal mörgu
og sjá hluti sem voru svo fjarlægir
mér fyrir nokkmm mánuðum. Ég
hef ferðast talsvert um í frítíma
mínum og hef því náð að sjá mig
vel unt hér í kring.
Meðal stjarnanna í
Hollywood
Ég er búin að fara nokkrar ferðir
til Los Angeles og einnig er ég
búin að fara þrisvar sinnum til Las
Vegas. Að heimsækja þessa staði
er eins og að ganga inn í ævintýri
og þar fær maður að sjá það sem
hefur verið manni svo fjarlægt
hingað til.
I einni ferð minni til L. A. fór ég
meðal annars „baseball“ eða
hafnaboltaleik og sá L.A. Dodgers
leika við Cincinati Reds. Það var
mikil upplifun að fara á svona
leik. Fyrir leikinn var Hollywood
stjömuleikur þar sem margir frægir
leikarar fóm á kostum. Ég hefði
ekki trúað því að það gæti verið
svona skemmtilegt á hafna-
boltaleik en ég verð að segja að
þetta var algjör toppur.
Stemmningin var svo ótrúleg að ég
hef aldrei kynnst öðm eins.
Úr því að ég var komin til L.A.
var ekki hægt að sleppa því að
kíkja í Hollywood og sjá með
eigin augum margt af því sem
maður hefur séð á skjánum
undanfarin ár. Staðir sem ég
þekki vel vegna framhaldsþátta í
sjónvarpinu, Beverly Hills og
Melrose, voru heimsóttir og
ýmislegt annað skoðað. Ég varð
vitni að upptöku á mynd þar sem
Nicholas Cage var að leika. Mér
fannst merkilegt að sjá þessa
upptöku og ég verð að segja að
mér fannst þetta minna í sniðum en
ég hafði gert mér í hugarlund og
umstangið í kringum þetta var ekki
mikið.
Las Vegas er toppurinn
Las Vegas er ævintýraheimur út
af íyrir sig og þar er óhætt að segja
að fínna megi öfgana í Ameríku í
öllum sínum myndum. Þó Vegas
sé þekktust fyrir spilavítin þá er
þar margt að sjá og nóg við
tímann að gera, hvort sem er á
degi eða nóttu enda er Vegas nefnd
Borgin sem aldrei sefur. í Vegas er
hvert hótel heilt ævintýri. Hótelin
eru flest byggð í einhverjum
sérstökum stfl. Þar er hótel sem
heitir New York, New York og er
það byggt upp eins og Empire
State og framan við hótelið er
nokkurra tuga metra há eftirlíking
af Frelsisstyttunni. Annað hótel,
Luxor, er byggt eins og pýramídi
og allt þar er í fomegypskum stfl
og eitt hótelið heitir Cesars Palace
og þar er allt í fornrómverskum
stfl. Þannig mætti áfram telja.
Nánast hvert sem litið er eitthvað
merkilegt að sjá . I Vegas fór ég í
hroðalegasta tæki sem ég hef
komist í. Það er uppi á háum tumi
sem heitir Stradosphere. Farið er
með lyftu upp á 108. hæð og
þaðan er farið upp á þak
byggingarinnar. Þar er rússíbani og
tæki sem heitir; Big shoot. Það em
sæti sem eru á braut utan á mastri
sem stendur einhverja tugi metra
upp úr turninum. Sætunum er svo
skotið upp eftir mastrinu og tekur
það þrjár sekúndur að þeytast
einhvetja tugi metra upp í loftið en
síðan fellur maður niður í fríu falli
niður undir tumþakið og þeytist þá
aftur upp. Þannig gengur þetta
nokkrum sinnum og ég segi það
satt að þetta er hrikalegt.
Las Vegas er alveg meiriháttar
staður og ég held að það sé erfitt að
finna einhvern annan stað sem
toppar Vegas.
í leit að Tori Spelling
Mamma, pabbi og systkini mín
komu hingað út í heimsókn í
október. Þau dvöldu á heimilinu
mínu meðan þau vom hér í
Phoenix en síðan fékk ég frí til að
fara í smá ferðalag með þeim. Við
keyrðum mikið um og komum við
í Vegas og L. A. Einnig fómm við í
Grand Canyon, Miklugljúfur, sem
eru bæði hrikaleg og ofboðslega
falleg enda talin eitt af sjö undmm
veraldar.
á ferðalagi okkar í L.A.
heimsóttum við bæði Disneyland
og Universal Studio og var það
ákaflega skemmtilegt. Eftirminni-
legast úr ferðinni er þó þegar við
fómm í skoðunarferð um
Hollywood til að beija augum alla
frægu staðina. Pabbi var bflstjórinn
og því miður fyrir hann þá
keyptum við kort af Hollywood
þar sem inn var merkt hvar allar
helstu stjömumar búa. Það var því
keyrt beint inn í Beverly Hills með
kortið fína og reynt að finna
eitthvað af húsunum sem fræga
fólkið býr í. Við keyrðum þama
fram og aftur og við stelpurnar
vomm rosalega spenntar yfir
þessu. Við sem alltaf höfum fylgst
vel með Beverly Hills 90210,
urðurn að sjá húsið hennar Tori
Spelling, Donnu úr 90210. Við
ætluðum að vísa bflstjóranum
veginn eftir kortinu en fljótlega
villtumst við og keyrðum þama
um í einn og hálfan tíma á mesta
umferðartímanum og komið var
svarta myrkur. Bflstjórinn og
bróðir minn voru orðnir frekar
pirraðir á þessari keyrslu og fannst
lítið til þess koma að sjá einhver
hús sem einhverjir leikarar byggju
í. Pabbi sagði reyndar að hann hafi
nú aldrei þolað Beverly Hills
þættina en eftir þennan bfltúr þá
hataði hann þá og vildi ekki heyra
minnst meira á þetta hverli.
„Trick or treat“
Halloween, eða Hrekkjavakan,
var meðan fjölskyldan mín var hjá
mér í heimsókn. Það var frábært að
vera þátttakandi í því. Öll húsin
voru skreytt og fyrir Halloween
vorum við búin að skera út andlit í
grasker og setja kerti inn í þau.
Graskerin vom síðan sett út framan
við húsin og kveikt á kertunum
þegar fór að dimma. Allir fóru
síðan í grímubúninga og svo var
gengið í húsin í hverfinu og
bankað upp á. Þegar opnað var, var
hrópað: „Trick or treat“, hrekk eða
sælgæti, og þá voru húsráðendur
alltaf tilbúnir með nammiskál til að
gefa. Það var rosalega gaman að fá
að upplifa þetta sem maður hafði
bara séð í bíómyndum til þessa.
Gaman að kynnast nýju
fólki og nýjum siðum
Síðasta fimmtudaginn í
nóvember var svo „Thanksgiving",
þakkargjörðardagurinn. Þá var
eldaður kalkúnn á heimilinu og
mér fannst bara eins og það væm
komin jól. Strax eftir Thanks-
givings var síðan jólatréð sett upp
og skreytt og stendur þannig í
stofunni fram yfir jól. Þetta er eitt
af því sem maður þekkir ekki og
því er gaman að kynnast því og sjá
hvað siðimir eru ólíkir því heima
er maður ekki vanur því að jólatréð
sé komið skreytt inn í stofu í lok
nóvember.
Ég er nú búin að vera hér í
Phoenix í hálft ár og mér finnst það
í raun ótrúlegt að dvöl mín hér sé
hálfnuð því enn finnst mér bara
eins og ég sé í hálfgerðu sumarfríi.
Hér er gott að vera og hér hef ég
kynnst mjög mörgum. Mikið af
íslendingunt býr hér, mest er það
fólk sem er hér í skóla, og hef ég
kynnst mörgu af þessu fólki en
einnig hef ég kynnst mörgum
Stórfjölskyldan: Grímur, Elísabeth, Jim, Kristín Inga, Erna
Osk, Gísli stendur fyrir framan og Susan situr.