Fylkir - 23.12.1997, Blaðsíða 23
FYLKIR jólin 1997
23
• • /
Skapti Om Olafsson
KFUM & K í Vestmannaeyjum
Greinarhöfundur fyrir miðri mynd ásamt þátttakendum í
óvissuferð á vegum KFUM&K nú í haust.
Kristilegt félag ungra manna og
kvenna var stofnað af sr. Friðrik
Friðriksyni þann 2. janúar árið
1899 hér á Islandi. Og er hann
upphafsmaðurinn að öllu skipu-
lögðu æskulýðsstarfi á Islandi.
Hinn 30. nóvember árið 1924
var Kristilegt félag ungra manna
stofnað hér í Vestmannaeyjum af
sr. Friðrik Friðriksyni og fór
stofnunin fram í Landakirkju.
Stofnendur vom 62 í eldri deild og
66 í yngri deild. I stjóm félagsins
skipaði sr. Friðrik þá Sigurjón Þ.
Ámason, sóknarprest, Pál.V.G.
Kolka, lækni, Stein Sigurðsson,
Þorbjöm Guðjónsson bónda á
Kirkjubæ og Bjama Jónsson,
verslunarmann á Svalbarða. Var
sr. Sigurjón Ámason kjörinn
formaður félagsins.
Svo var Kristilegt félag ungra
kvenna stofnað hér í Eyjum árið
1926, hinn 14. mars, með 95
stofnfélaga. Héldu bæði félögin
fundi sína í Landakirkju eins og
enn er gert á sunnudögum, ýmist í
sitt hvom lagi eða sameiginlega.
Fljótlega sá félagið þörf sína á því
að koma sér upp samkomuhúsi og
var von bráðar farið að hugsa um
það að safna saman fé til
húsbyggingar bæði með frjálsum
samskotum innan félagsins og svo
ríflegum árstillögum félagsmanna
eins og efni hvers og eins og geta
leyfði.
Starf félaganna var misöflugt en
það lagðist að nokkm leyti í dvala
fyrir nokkmm ámm en var
endurvakið með öflugu
unglingastarfi í samvinnu við
söfnuð Landakirkju 21. mars 1992.
Aðal hvatamaður og driffjöður í
endurlífgun á starfi KFUM & K í
Vestmannaeyjum var Hreiðar Öm
Stefánsson þá æskulýðsfulltrúi hjá
Landakirkju.
En þess má geta að nýr
æskulýðsfulltrúi hefur tekið til
starfa, Hulda Líney Magnúsdóttir.
Tók hún við af Aldísi Atladóttur
sem vann með Hreiðari þegar hann
var hér í Eyjum. En eftir að hann
fór til annarra starfa í
höfuðborginni þá tók Gylfi
Sigurðsson við og hefur komið
sterkur inn í starfið ásamt Huldu
Líney.
KFUM & K starfið í
Vestmannaeyjum hefur oft verið
mjög blómlegt. í dag er starfsemin
enn í fullu fjöri eftir að Hreiðar
Öm reif starfið uþp. Var mjög
mikill fengur í því að fá hann
hingað til Eyja, hann starfar nú í
Bústaðakirkju sem umsjónarmaður
safnaðarstarfs. Á þeim ámm kom
uþþ áhugi á því að koma KFUM &
K húsinu í betra horf. En það
kostar sitt að gera svona gömul hús
upþ. En strax sumarið 1994 var
byrjað að múra, smíða, mála og
gera við hina ýmsustu hluti í
húsinu. En það hefur tekist með
hjálp góðs fólks hér í bæ. KFUM
& K húsið var svo endurblessað til
starfs KFUM & K 14. október
1994.
Þegar unnið var að þessum
endurbótum sumarið 1994 þá vom
það unglingamir í KFUM & K
sem unnu í húsinu að mestu leyti
en að sjálfsögðu vom líka fagmenn
sem sáu um að gera
aðskiljanlegustu hluti. Þetta var
mjög svo skemmtilegur tími,
maður var þama alla daga
vikunnar og stundum langt fram á
kvöld við það að mála og fleira.
Fjölbreytt starfsemi
Starf KFUM & K í dag er mjög
virkt, á sunnudagskvöldum kl.
8:30 eru fundir í yngri deild f
Safnaðarheimilinu og svo er „oþið
hús“ á miðvikudagskvöldum kl.
8:30 í KFUM & K húsinu.
Á fundum á sunnudagskvöldum
er ýmislegt brallað. Fundirnir em
þannig uþþ byggðir að við bytjum
alltaf uþpi í kirkju. En þar er
byrjað á signingu og bæn svo er
einhver af leiðtogunum eða þrestur
sem er með hugleiðingu. Svo er
auðvitað sungið og endað er á bæn.
En við höfum haft þá reglu að
krjúpa við altarið þegar við endum
stundina uppi í kirkju, þá er flutt
stutt bæn sem leiðtogi eða þrestur
flytur.
Eftir stundina uþþi sem tekur
yflrleitt svona 20 mínútur er farið
niður í Safnaðarheimili þar sem
farið er í leiki, verkefni unnin, eða
þá að gestur sem við höfum fengið
í heimsókn á fund flytur stuttan
fyrirlestur. Eða þá að eitthvað
óvænt er gert. Núna í vetur hafa að
meðaltali mætt um 35 - 40
unglingar á fundi og oþnu húsin.
Oþnu húsin hafa verið ívið
vinsælli hjá unglingunum en
fundimir á sunnudögum. En á
oþnu húsunum er hægt að spila
borðtennis, horfa á sjónvarp,
spjalla saman, spila og svo emm
við með fótboltaspil sem mikið er
notað.
Mikil ferðalög
Tvisvar til þrisvar sinnum á ári
eru haldin mót á vegum KFUM &
K félaganna á landinu. I byrjun
vetrar í seþtember eða október em
haldin svokölluð Landsmót þar
sem öll félög á landinu hittast og
eiga góðar stundir saman. Á
Landsmótum em yfirleitt 200 - 300
unglingar og leiðtogar og annað
starfsfólk samankomið á einn stað
sem undantekningarlaust hefur
verið Vatnaskógur sem er um 90
km frá Reykjavík. Það er ýmis-
legt gert sér til gamans á
Landsmótum svo sem keþpt og
leikið sér í hinum ýmsustu
íþróttagreinum. En í Vatnaskógi er
afar fullkomið íþróttahús og að
mig minnir þrir grasvellir til að
spila fótbolta þá er aðstaða til þess
að iðka hinar fjölmörgu greinar
frjálsra íþrótta. Svo em þar
vatnabátarnir vinsælu sem óspart
em notaðir á mótunum. Svo er
náttúrulega líka bara hægt að
spjalla saman. En markmiðið með
svona mótum er meðal annars að
unglingamir hittist og kynnist
hvort öðru og svo auðvitað það
sem K-ið rnerkir í KFUM & K, en
það er kristileg fræðsla. Á mótum
sem þessum hefur það tíðkast að
skipta mannskapnum niður í
nokkra hópa sem vinna úr
ákveðnum verkefnum. Eg get
nefnt dæmi um hópa svo sem
leiklistarhóp sem undirbýr einhvert
leikrit sem unnið er út frá þema
mótsins, sönghóp sem æfir lög sem
flutt eru síðan á kvöldvökum,
kvikmyndahóp sem tekur upp
stuttmyndir sem sýndar em á
kvöldvöku og svo myndlistarhóp
sem býr til listaverk eða skraut sem
skreytt er með. Eins og ég sagði
að framan þá em alltaf einhver
þema á mótum sem síðan er unnið
út frá, þema hafa til dæmis verið
„vináttan", „ástin“, „kærleikur“ og
„er Guð til?“ svo ég nefni dæmi.
Svona mót hafa mælst rnjög vel
fyrir hjá unglingunum og hafa þeir
kynnst fullt af nýjum vinum frá
ýmsum landshornum á þessum
mótum.
í febrúar eru haldin svokölluð
Febrúarmót en þar er svipað uppi á
teningnum og á Landsmótum. Þau
mót eru yfirleitt smærri í sniðum
með um 150 - 200 þátttakendur.
Svo um mitt sumar, í júní eðajúlí
eru haldin svokölluð Sumarmót,
og er reynt að halda þau mót aldrei
á sama staðnum frá ári til árs. Þau
hafa verið haldin að Seljavöllum
undir Eyjafjöllum, að Hruna í
Hrunamannahreppi og svo síðast í
Ölveri undir Hafnarfjalli. Á svona
mótum hefur yfirleitt verið tjaldað
og búnar til stórar tjaldbúðir.
Sumarmótin eru frekar laus í
skorðum eða ekki eins stíf dagskrá
eins og t.d. á Landsmótum. Engu
að síður eru sumarmótin frábær
mót.
Danmerkurferð 1995
Púff! miklar fjáraflanir en engu
að síður frábær skemmtun og
ógleymanleg ferð. En í júlí 1995
þá réðumst við í KFUM & K hér í
Eyjum í það að fara til Danmerkur
ásamt félögum frá Keflavík og
Reykjavík.
70 manna hópur, þar af 28 frá
Eyjum lagði af stað frá
Vestmannaeyjum með Herjólfi
þann 20. júlí til Reykjavíkur, en á
áætluninni var að fara til
Danaveldis daginn eftir. En í
Reykjavík hittum við unglinga úr
félögunum ofan af landi áður en
við lögðum af stað.
Strax og við komum til
Kaupmannahafnar þann 21. júlí,
tók á móti okkur hópferðabifreið
sem síðan flutti hópinn á mótstað
sem var í bænum Sæby. Þegar á
mótstað var komið fór restin af
deginum í það að koma sér fyrir og
skoða okkur um á staðnum.
Daginn eftir var mótið sett með
glæsilegri kvöldvöku. Á mótið
komu rétt um 400 unglingar,
leiðtogar og annað starfsfólk
víðsvegar að úr Evrópu. Mótið var
í fullum gangi dagana 22. - 28. júlí,
og rnikið fjör. Mótið var haldið í
skóla sem heitir Herby ungdoms-
skole og er þetta heimavistarskóli.
Á mótinu var ýmislegt hægt að
gera, skipt var í hina ýmsustu hópa
og verkefni unnin. Farið var í
svokallaða „surviving“ göngu, sem
var þannig að skipt var í fjölmarga
hópa og þeir síðan látnir ganga 25
- 30 km. og á leiðinni voru hinar
ýmsu þrautir leystar, mjög svo
skemmtilegt. Þrautimar voru
meðal annars að klifra upp í tré á
leiðinni og ná í eitthvað og svo
höggva tré niður og margt fleira.
En þessi „göngutúr“ tók að mig
minnir 6-7 klukkutíma. Einnig
var á mótinu fullt af keppnum á
Þáttakandi í Danmerkurferð sumarið ‘95 reynir fyrir sér í bílferð í
LEGO iandi.
Á kvöldvöku á landsmóti KFUM&K í Vatnaskógi haustið 1995.