Skátablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 5
Lærið að kasta björgunarlínu.
Allir góðir skátaflokkar verða að eiga
björgunarlínu og helst ætti hver ein-
stakur skáti að eiga sína eigin línu.
Þær fást tilbúnar úr góðu fljettuðu efni
og með sandpoka á öðrum endanum fyr-
ir 6—7 krónur. En ef keypt er efni í
þær í veiðarfæraverslunum (15 metr.
af venjul. logglínu kostar það um 3
krónur, og sandpokann geta allir lagn-
ir skátar búið til sjálfir.
Það er skemtilegra en margur hygg-
ur að æfa sig í því að kasta björgunar-
línu, en það er talsverður vandi og verð-
ur því að æfa það með kostgæfni og fara
eftir vissum reglum.
Tilvalið er að æfa slík köst, þegar
flokkarnir fara í útilegur á sumrin, því
að þá er oftast hægt að finna góðan
grasblett til æfinga. Hlaðið litla vörðu
úr hnausum eða grjóti eða rekið niður
hæl í ca. 12 mtr. fjarlægð, ímyndið ykk-
ur að þetta sje maður, sem þið sjeuð að
kasta til og reynið að hitta sem næst
markinu.
í næstu útilegu, þegar þið byrjið að
æfa ykkur, þá munið að æfa ykkur ekki
einungis í því að kasta línunni stand-
andi, en líka liggjandi, því að slíkt er
nauðsynlegt að geta, ef þið t. d. þurfið
að liggja á ís og kasta þannig frá ykk-
SKÁTABLAÐIÐ
ur björgunarlínu. Einnig ættuð þið að
æfa ykkur í því að kasta með blautri
línu. Þetta hvorttveggja er mikið erfið-
ara og krefst því meiri þjálfunar.
Hjer á myndinni sjáið þið knáan
skáta, sem auðsjáanlega kann tökin á
því að kasta línu. Gefið gaum að því,
hvernig hann heldur á línunni og æfið
ykkur svo eftir reglum þeim, sem hjer
fara á eftir og teknar eru eftir Skáta-
bókinni:
1. Línan er „gerð upp“ í vinstri hönd,
sólarsinnis, í jafnar lykkjur, fljótt.
2. Hæfilega margar lykkjur eru tekn-
ar í hægri hönd; rjett er, að merkja
hinar frá og halda þeim frá með
einum fingri, þegar gert er upp;
kastendinn þar með og svo nærri
hendinni, að hann geti ekki þvælst
í lykkjurnar.
3. Hægri handlegg, útrjettum en ekki
stinnum, er sveiflað fram og aft-
ur, og búkurinn fylgir sveiflunum
með mjúkum hnjebeygjum.
4. Eftir nokkrar sveiflur er lagt afl
í hreyfinguna og hægri hönd slepp-
ir taki; vinstri hönd gefur lykkjur
sínar eftir, en heldur í enda lín-
unnar.
Joj.
3