Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 15

Skátablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 15
dauðaleit og foringjanámsskeiði „Vær- ingja“ í Lækjarbotnum. Stjórn fjelagsins skipuðu: Jón Mat- hiesen, formaður, Guðni Tómasson, gjaldkeri, og Sigurgísli Malberg, ritari. „Vösungar“, Sandi, sveitarforingi Jens Vigfússon. I skátafjelaginu „Völsungar" voru 22 skátar um áramótin, og hafa þeir far- ið í 10 útilegur í tjöldum með 15 þátt- takendum og í 14 gönguferðir. Þeir hafa haldið nokkra fundi og tekið nokkur próf. Auk þess söfnuðu þeir kr. 311,15 í landskjálftasjóð. Stjórn fjelagsins skipuðu: Jens Vig- fússon, Jón Magnússon og Elís Hann- esson. ,,Samherjar“, Eskifirði, sveitarforingi Sveinn Ólafsson. Fjelag þetta er stofnað 31. október 1933 (viðurkent af B. í. S. 1934) og tel- ur 5 fjelaga um áramótin. Farnar hafa verið 4 gönguferðir og haldnir nokkrir fundir. Stjórn fjelagsins skipuðu: Sveinn Ólafsson, Árni Helgason, Halldór Frið- riksson og Víkingur Jóhannsson. „Væringjar“, Akranesi, deildarforingi Jón Hallgrímsson. Skátafjelagið „Væringjar“ á Akra- nesi taldi um áramótin 24 skáta og 11 ylfinga, alls 35 fjelaga. Þeir hafa tekið 3 nýliðapróf, farið í 4 útilegur í tjöld- um með alls 41 þátttakenda. Á árinu hjeldu skátarnir hlutaveltu til ágóða fyrir húsbyggingu sína, aðstoðuðu slysavarnasveitina með sölu merkja, höfðu umsjón með hátíð sveitarinnar síðastliðið sumar, aðstoðuðu tvívegis við kappleiki og einnig aðstoðuðu þeir Hallgrímsnefnd bygðarlagsins. Fjelags- SKÁTABLAÐIÐ fundir voru haldnir mánaðariega og stjórnarfundir þrír. Fjelagið á hús á Akranesi til móts við kvenskátafjelagið á staðnum. Stjórn fjelagsins skipuðu: Jón Hall- grímsson, Hans K. Jörgensen og Guð- jón Bjarnason. „Valur“, Borgarnesi, sveitarforingi síra Björn Magnússon. Skátafjelagið „Valur“ er ungt, stofn- að 18. mars 1934 með 11 skátum, en einn þeirra hætti á árinu, svo að nú eru þeir 10 og hafa allir lokið nýliða- prófi. Flokkar eru tveir, og hafa þeir æfingar ýmist á heimilum foringja eða í barnaskólanum. En þar sem fjelagið er svona ungt, hafa aðeins verið haldnir 3 sveitarfundir og 8 flokksfundir og far- ið í eina útilegu með 4 skátum. Fjelagið hefir haldið eina skemtun til ágóða fyrir sjóð sinn, ennfremur hef- ir það safnað allríflega í landskjálfta- sjóð. Byrjunin lofar góðu um árangurinn, og vonum við, að eftir 2—3 ár megi tala um 30—40 skáta í Borgarnesi, auk ylf- inga. Stjórn fjelagsins skipa: síra Björn Magnússon, Þorkell Magnússon, Krist- ján Magnússon og Sigurgeir Ásbjörns- son. „Andvarar“, Sauðárkróki, deildar- foringi Frank B. Michelsen. Skátafjelagið „Andvarar“ taldi 28 skáta og 8 ylfinga, eða alls 36 fjelaga. Próf hafa verið tekin sem hjer segir: 8 sárfætlingapróf, 10 nýliðapróf og 5 sjerpróf. Haldnar voru 14 hópæfingar, 37 flokksæfingar og 2 stjórnarfundir. Farið var í eina útilegu í tjaldi með 5 þátttakendum og eina í skála með 14 þátttakendum. Gönguferðir voru farn- 13

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.