Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 17

Skátablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 17
þar. Énnfremur hafa þeir aðstoðað við guðsþjónustu og annast móttöku skóla- barna frá Þingeyri að mestu leyti. Eitt merkilegasta verk „Einherj- anna“ var, að þeir buðu hingað til lands 14 norskum skátum og höfðu með þeim mót í Kaldalóni. Tóku 12 ísfirskir skát- ar þátt í því. En heimboðið kostaði pen- inga, eins og nærri má geta, en þeirra öfluðu þeir, sem með voru í Lóninu, með hlutaveltu. Á árinu sýndi f jelagið skátakvikmynd til fjárafla, til að greiða með gamlar og nýjar skuldir. Á árinu voru líka námsskeið í hjálp í viðlögum, og skíðabrenslu, því að ís- firsku skátarnir eru miklir skíðagarp- ar, eins og menn muna frá skíðavikunni í vor. Ennfremur starfaði foringjaskóli mestallan veturinn, og var þar kent, hvernig best mætti haga sjer við úti og inni skátaæfingar. Flokkakeppni hefir verið við sölu merkja B. 1. S. o. fl. Unnið hefir verið talsvert við skálann og „Grenið“, sem verið var að flytja um áramótin í kjall- ara hins nýja Alþýðuhúss. Stjórn fjelagsins er í höndum for- ingjafundar og fjelagsins sjálfs. Deild- arforingi er Gunnar Andrew, en sveit- arforingi Halldór Magnússon. Á Siglufirðí var stofnað skátafjelag í janúar síð- astliðnum. Formaður þess er Sverre Tynes. Fjelagið heitir „Fylkir“ og voru stofnendur 14. Starfið gekk vel í vetur og lærðu þeir alveg undir II. fl. próf. Þeir eru nú að ljúka við byggingu á skátaskála, er annað fjelag, sem nú er hætt, hafði byrjað á. Fjelagið hefir enn ekki gengið í B. í. S„ en gerir það að öllum líkindum í haust. SKÁTABLAÐIÐ Klútalitir skátafjelaga, staðfest af stjórn B. í. S. „Andvarar“, Sauðárkr. Grár klútur. „Einherjar“, ísafirði. Brúnn klútur. „Ernir“, Reykjavík. Blár klútur. „Skátafjel. Hafnarfj. Rauður klútur. „Væringjar“, Akranesi. Ljósgrænn klútur. „Væringjar“, Reykjavík. Dökkgrænn klútur. „Framherjar“, Flateyri. Fjólublár klútur. „Fálkar“, Akureyri. Ljósblár klútur. Samkvæmt ákvörðun stjórnar B. I. S. er skátum þeim, sem sótt hafa „Jam- boree“, leyfilegt að bera Jamboree- merkið í klúthorninu að aftan. Þó má enginn bera fleiri en eitt slíkt merki í senn. Samsæti. í tilefni af 70 ára afmæli A. V. Tuli- niusar, skátahöfðingja, hjeldu skátafje- lögin hjer í Reykjavík honum samsæti að Garði. Alls tóku um 100 skátar og gestir þátt í því. 1 samsætinu var fjör- ugt mjög, sungið mikið og sýndur smá skátasöngleikur. Þá voru og haldnar ræður og töluðu auk skátahöfðingjans þeir Sigurjón Pjetursson, Ben. G. Waage og Jón Oddgeir. Að lokum fylgdu skátarnir höfðingja sínum heim, fylktu liði. Skátafjelagið „Ernir“ í Reykjavík hefir nú aftur byrjað á að gefa út blað sitt „Skátinn“. — Það er mjög ánægjulegt er ný málgögn bæt- ast við í hinn fátæklega hóp íslenskra skátablaða og óskum vjer þessum nýja fjelaga allra heilla. 15

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.