Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1935, Side 6

Skátablaðið - 01.07.1935, Side 6
ÖRIN. Skátasaga frá Nýja-Sjálandi. Óli B. Guðmundsson íslenskaði. „Hrói Höttur hafði ekki betri boga en þennan!“ hrópaði Bob, þegar Tom vinur hans sýndi honum boga, sem hann var nýbúinn að smíða. Þeir voru báðir skátar úr Kiwi-flokki í Taranaki-sveit á Nýja-Sjálandi. Bob hafði komið upp ána á mótorbát föður síns til að heimsækja Tom vin sinn, sem tók á móti honum við landgöngubrúna. „Hvaða trje notaðir þú í hann?“ spurði Bob, á meðan hann var að reyna bogann. „Það er mjög seigt og fjaður- magnað“. „Lensutrje", svaraði vinur hans. „Það var það seigasta, sem jeg fann; jeg leit- aði hálfan daginn áður en jeg fann nokk- uð, sem mjer líkaði“. „Hefir þú tekið eftir reykjarmekkin- um þarna hjá Matai-gljúfrinu?“ Bob benti á stóran, gráan reykjarstrók, sem gaus upp á milli hárra kletta í ca. 1 km. fjarlægð. „Hardy brendi burt lágskóg í gær“, svaraði Tom. „Það hefir verið heldur snemt“. „Já, en það hafa verið þurkar lengi og hann hjelt, að það væri líklega betra að nota tækifærið áður en það rigndi aftur. Svo er það líka nauðsynlegt að hreinsa dálítið til annað slagið, svo að það er ekkert við þetta að athuga“. „Það er mjög mikil áhætta. Ef það hvessir snögglega, þá er ómögulegt að vita, hvenær eldurinn stöðvast". „Komdu með mjer hjerna upp eftir og reyndu bogann. Mig langar til að sjá, hve hittinn þú verður“. Þeir bundu nú bátinn og gengu upp á 4 grasbala þar stutt frá. Síðan tók Tom nokkrar örvar úr örvamæli sínum og fjekk Bob. Því næst tók hann bauk og setti hann á girðingarstaur í hæfilegri fjarlægð. „Getur þú hitt þetta, Bob!“ hrópaði hann. Bob reyndi þrisvar, en hitti aldrei. „Láttu mig nú sjá, hvað þú getur“, sagði hann og hló. „En jeg verð víst að æfa mig betur, ef jeg á að verða góður bogamaður“. Tom tók við boganum og valdi sjer ör. Fyrsta örin hæfði staurinn rjett fyr- ir neðan baukinn. En næsta ör þeytti bauknum langar leiðir út í loftið. „Vel skotið!“ hrópaði Bob. „Lof mjer að reyna aftur---------“. Hann þagnaði skyndilega. „Nú, hvað er þetta?“ Dynj- andi hófaskellir, sem stöðugt færðust nær, heyrðust greinilega á hörðum veg- inum. „Þetta hlýtur að vera einhver, sem þarf að flýta sjer“, sagði Tom um leið og þeir hlupu niður að veginum. Maðurinn var nú kominn næstum alla leið, og faðir Toms, sem líka hafði heyrt hófaskellina, kom nú hlaupandi heiman að frá húsinu. „Hvað gengur á, William?“ spurði hann, þegar hann sá hræðslusvipinn á andliti nágranna síns. „Eldurinn frá báli Hardys hefir breiðst út og kveikt í skóginum!“ hróp- aði William. „Það er kviknað í báðum endum brúarinnar, svo Jones og fjelagi hans eru þar eins og mýs í gildru. Þeir SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.