Skátablaðið - 01.07.1935, Qupperneq 9
Samkeppni skáta í stundvísi.
Á síðastliðnu ári tók stjórn B. í. S.
upp þá eftirtektarverðu nýbreytni að
hafa samkeppni milli allra skátaflokka
á landinu. Keppt var um það, hvaða
flokkur væri stundvísastur í skátastarf-
inu.
Samkeppnin hófst fyrsta sumardag
1934, samkvæmt sjerstakri reglugerð,
er stjórn B. í. S. sendi öllum skátafje-
lögum á landinu, og skyldi samkeppn-
inni lokið fyrsta sumardag 1935.
Nú hefir stjórn B. 1. S. kveðið upp
dóm sinn um það, hvaða flokkur hafi
reynst stundvísastur, og tilkynti sjálf-
ur skátahöfðinginn úrslitin í samkvæmi
því, er skátarnir hjeldu honum á sjö-
tugsafmæli hans. Verðlaunin — sem
voru fimtíu krónur — hlaut 2. flokkur
í 3. Væringjasveit í Reykjavík. Þessi
stundvísasti flokkur landsins heitir
Nú heyrðist brak og brestir; brúin
var að gefa eftir öðrum megin gjárinn-
ar. Hinir stóru, þungu bjálkar svign-
uðu, en litli mótorbáturinn þaut áfram
með fullum hraða og var aðeins kom-
inn nokkra metra frá brúnni, þegar hún
f jell og hin mikla vatnsbylgja, sem hrun
hennar orsakaði, var nærri búin að
hvolfa bátnum.
Nú sigldu þeir öruggir heim aftur
undir stjórn Bobs, sem stýrði liðlega
fram hjá öllum hinum hættulegu skerj-
um og grynningum í ánni. Fölir og þög-
ulir störðu þeir á eyðilegginguna, þang-
að til bugða á ánni huldi hana sjónum
þeirra.
(Væbneren.)..
„Smirlar" og er núverandi foringi hans
Sigurgeir Jónsson.
Skátablaðið hefir snúið sjer til Hen-
riks W. Ágústssonar, sem er í stjórn
B. í. S., og hefir átt mikinn þátt í því
að koma þessari samkeppni á, og spurt
hann um ýmislegt þessu viðvíkjandi.
Fyrst spyrjum vjer, hvort þátttakan
hafi verið góð.
„Því miður“, svarar Henrik, „var hún
mjög ljeleg, aðeins þrjár flokksbækur
komu utan af landi, frá Isafirði, og
fimm frá „Væringjum" í Reykjavík.
Þar með er það upptalið, og má það
merkilegt kallast, að fleiri f jelög skyldu
ekki senda bækur, þegar þess er gætt,
að samkeppni þessi var vel tilkynt með
skipulegri reglugerð, og allir skátaflokk-
ar landsins höfðu jafna aðstöðu til að
geta tekið þátt í henni“.
„En úrslitin — hvað um þau?“ spyrj-
um vjer.
„Um úrslitin er það að segja, að þrír
flokkar, þ. e. „Spóar“ frá ísafirði og
„Svanir“ og „Smirlar“ frá Væringjum
báru mjög af og voru allir nokkuð jafn-
góðir, en eftir nákvæma athugun óvil-
hallra manna komumst við að þeirri
niðurstöðu, að „Smirlum“ bæri verð-
launin — fimtíu krónur —, sem ætlaðar
eru til áhaldakaupa fyrir flokkinn. Um
„Svani“ og „Spóa“ er það eitt að segja,
að þeir voru mjög jafnir“.
„Hyggst bandalagsstjórnin að hafa
fleiri samkeppnir á næstunni?"
„Það má vel vera, að við komum með
nýja samkeppni, en alt er þó óákveðið
með það enn, og þori jeg því engu að
lofa, en sannarlega væri það æskilegt,
7
SKÁTABLAÐIÐ