Skátablaðið - 01.07.1935, Page 11
Landsmótið 1935.
Fjórða landsmót ísl. skáta var haldið
á Akureyri dagana 23. til 27. júní s.I.
Mótið sóttu skátar frá þessum félögum:
Væringjum Rvík 29, Örnum s. st. 6,
Væringjum Akranesi 8, Andvörum
Sauðárkróki 1 og frá Fálkum Akureyri
um 30.
Landsmót þetta var frábrugðið und-
anförnum mótum að því leyti, að það fór
ekki fram á sama stað, heldur var að
mestu ferðast um.
Allir þátttakendur mótsins utan Ak-
ureyrar komu í bílum þangað laugar-
dagskvöldið 22. júní, og tóku Fálkar á
móti þeim á Ráðhústorgi. Strax um
kvöldið reistu þeir tjaldbúðir sínar á
Gleráreyrum. Morguninn eftir var farið
snemma á fætur, og fengu allir sjer bað
í sundlaug Akureyrar. Og stuttu síðar
var lagt af stað austur að Goðafossi og
stansað nokkra stund við fossinn. í
bakaleið var komið við í Vaglaskógi og
stansað þar lengi og síðan haldið til Ak-
ureyrar. Um kvöldið var haldin skáta-
skemtun í Templarahúsinu og var dans-
að á eftir.
Næsta dag (24.) var einnig farið
snemma á fætur og tjaldbúðirnar tekn-
ar niður. Síðan var lagt af stað út í
Svarfaðardal og tjaldbúðirnar reistar
við sundlaug Svarfdælinga, þar sem
nær allir fengu sér bað í hinni ágætu
laug. Seinni hluta dagsins var rigning
og þess vegna lítið aðhafst, en annars
var meiningin að fara í fjallgöngu. Um
kvöldið var haldin skemtun í einu tjald-
inu, sem var svo stórt, að það rúmaði
alla. En „þröngt máttu sáttir sitja“.
Næsta dag (25.) var enn farið
snemma á fætur og farið í laugina. Um
kl. 11 var svo lagt af stað út í Dalvík
á hestum postulanna. Þar stönsuðum
við nokkra stund og hjeldum svo aðtjald-
búðunum aftur, sem nokkru síðar voru
teknar niður, og var nú haldið til Akur-
eyrar. En ekki var stansað þar lengi,
heldur lagt af stað að Grund og kirkjan
skoðuð. Síðan var farið til Akureyrar,
höfð stutt viðdvöl þar og svo lagt af
stað kl. 23 upp að Fálkafelli og Skíða-
stöðum, þar sem verið var um nóttina.
Morguninn eftir (26.) var gengið á
Súlur, sem eru 1144 metrar á hæð. Veð-
ur var gott, en útsýni var ekki sem best.
Er komið var til Akureyrar aftur, var
tilbúinn handa öllum matur, og var
hraustlega tekið til matar, því að lítið
hafði verið borðað á fjallgöngunni. —
Litlu síðar var farið niður í bæ í skrúð-
göngu, og var Ólafur Magnússon sund-
kennari hyltur, sem þennan dag átti 25
ára starfsafmæli sem sundkennari. Síð-
an var gengið víða um bæinn í skrúð-
göngu. Að skrúðgöngunni lokinni var
kveiktur varðeldur utan við bæinn, og
voru þar mörg hundruð manns saman-
komin. Við varðeldinn komu fram mörg
skemtiatriði, og ljetu áhorfendur og
skátar hið besta yfir varðeldinum, enda
var veður gott, eins og altaf var á með-
an við vorum á landsmótinu.
Næsti dagur (27.) var frídagur, og
notuðu aðkomuskátarnir hann til að
heimsækja kunningja sína, skoða bæinn
og sjá Iðnsýninguna. En um kvöldið var
haldið samsæti á Hótel Akureyri fyrir
alla þátttakendur mótsins. Einnig var
kvenskátum á Akureyri og fleirum boð-
SKÁTABLAÐIÐ
9