Skátablaðið


Skátablaðið - 01.07.1935, Side 16

Skátablaðið - 01.07.1935, Side 16
ar þrjár og hjólreiðar tvær. 14 skátar heimsóttu skátafjelagið „Fálkar" á Ak- ureyri. í desember starfaði nýliðaskóli. Fjelagið aðstoðaði við kappreiðar hesta- mannafjelagsins „Ljettfeti" með því að halda uppi reglu og selja aðgangseyri, hjelt eina skemtun, tvo dansleiki og eina hlutaveltu til ágóða fyrir fjelagssjóð. Einnig aðstoðaði það við að bjarga hesti úr vök, safnaði í landskjálftasjóð, gaf út blað og ljet flytja fyrirlestra um skátamál opinberlega. Ylfingaflokkurinn var stofnaður 10. mars og þ. 22. mars var stofnuð 2. sveit, sem hefir aðsetur sitt á Reynistað, og er það fyrsta íslenska skátasveitin, sem stofnuð er í sveit. Sveitarforingi er Sig- urður Jónsson. Stjórn fjelagsins skipuðu: Frank B. Michelsen, Óskar Magnússon, Guðmund- ur Jónsson og Margrjet Sigurðardóttir, sveitarforingi ylfinga. Skátasveit Ólafsf jarðar, sveitarforingi Brynjólfur Sveinsson. Skátasveit Ólafsfjarðar hefir nú 17 fjelaga, er hafa lokið nýliðaprófi. Þeir hafa haldið 4 sveitafundi og 9 flokksæfingar. Útilegurnar og göngu- ferðirnar (þær eru 6 með 21 þátt- takanda og gönguferðir 4 með 42) sýna, að í fjelaginu eru tápmiklir og dugandi drengir, sem vilja áfram á skátabraut sinni. Skátarnir við Ólafsfjörð hafa selt og aðstoðað við skemtun til ágóða fyrir landsk j álf tas j óð. Stjórn fjelagsins skipuðu: Brynjólf- ur Sveinsson, Magnús Magnússon og Eugenius Þorsteinsson. „Einherjar“, Isafirði, deildarforingi Gunnar Andrew. Síðastliðið ár starfaði skátafjelagið „Einherjar" með miklu fjöri. Alls voru 14 í fjelaginu 45 íjelagar, þar af 14 ylf- ingar og 6 farskátar (R.-S.). Æfingar voru haldnar í ágæta „Greninu“ gamla, sem allir ísfirskir drengir kannast við af sjón eða heyrn. Flokksæfingar ylf- inga hafa verið 20 alls, en hópaæfingar 35. Ylfingar hafa tekið 6 sárfætlinga- próf, 5 fyrstu stjörnur og 17 sjerpróf á árinu. En í skátasveitinni hafa verið tekin auk nýliðaprófanna 6 II. flokks próf, 4 sjerpróf og 7 I. flokks próf, svo að nú eru 14 ísfirskir skátar með I. fl. prófmerkið. Æfingar voru samtals 122 í flokkum og 13 í sveit, auk foringja- funda, sem eru minst mánaðarlega. Tjaldútilegur fjelagsins hafa alls staðið yfir í 15 nætur með 65 þátttak- endum, auk Kaldalónsferðarinnar. En skátaútilegur eru 22 með 144 þátttak- endum, svo að áberandi er, hve mikið ísfirsku skátarnir nota „Valhöll“ sína mikið. Hjálparstarfsemin hefir verið mikil. Yngstu skátarnir hafa verið líkmenn við jarðarfarir barna, og hefir það tíðk- ast vestur frá svo lengi, að nú er orðin hefð að biðja um skáta til að bera börn til grafar. Er þetta gott dæmi og auð- velt til eftirbreytni. í slysavarnasveitinni á ísafirði er all- mikill fjöldi manna, en innheimtur ár- gjalda ganga oft illa, svo að dýrt myndi vera og tafsamt að hafa fastan mann við þær. Þetta hafa skátar tekið að sjer endurgjaldslaust. Á árinu varð húsbruni á ísafirði. Að- stoðuðu þá allmargir skátar við björg- un innanstokksmuna o. fl. úr brunan- um. Ennfremur hafa þeir bjargað hesti úr ógöngum og annast f jársöfnun vegna jarðskjálftanna við Dalvík. Á sjúkrahúsinu hafa skátar unnið 120 stundir, og önnuðust þeir einnig fjársöfnun til jólaglaðnings sjúklinga SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.