Skátablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 19
Kaníitu að ílétta Tyrkjalmút?
AÐ hefur áreiðanlega kornið fyrir þig,
að þú hafir týnt hnútnum þínum, og
ef ekki, þá reikna ég fastlega með, að þú
eigir eftir að verða fyrir því óláni fyrr eða
seinna. Skáti deyr aldrei ráðalaus, en samt
er ég ekki viss um að allir gætuð þið búið
til nýjan hnút í stað þess týnda.
Þessi hnútur, sem myndin sýnir, virðist
alls ekki vera auðveldur, en með dálítilli
æfingu, geta allir lært hann. Hann er oft-
ast þrefaldur, en það er auðvelt að hnýta
fjór-, fimm- eða sexfaldan, það fer eftir,
hversu oft þú ferð utan um prikið, sem ég
ráðlegg þér að nota, a. m. k. meðan þú ert
að komast upp á lagið.
Þú byrjar eins og sýnt er á teikningunni
1-2-3-4-5 og svo snýrðu prikinu við. 6 sýnir
nr. 5 aftan frá. Á 7 hefurðu lagt annað
bandið yfir hitt og þú verður að athuga,
að sama bandið liggi alltaf yfir. Hversu
oft þú gerar það, fer eftir stærð hnútsins.
Lausi endinn á bandinu stingst inn í
ur, og ég hét því að verða það — en hvern-
ig líður mömmu?“
Feðgarnir leiddust heim. Eftir litla stund
kraup Pétur litli við rúm móður sinnar
með augu döggvuð af tárum.
Og þegar hann hafði tekið upp meðul-
in hennar mömmu og Siggi bróðir hans
var farinn að horfa nokkuð föstum for-
vitniaugum á bakpokann hans, greip Pét-
ur hann í snatri, smeygði honum undir
sængurhornið sitt, leit síðan íbygginn, en
brosandi framan í bróður sinn og sagði:
„Á morgun, á morgun koma jólin.“
opið, sem myndast á milli bandanna eins og
sýnt er á mynd 8 og þanig heldurðu áfram,
þar til bandið kemur út við hliðina á sjálfu
sér (samanber 9), ef það gerir það ekki er
eitthvað skakkt. Nú er hnúturinn í raun og
veru búinn, en oftast er farið einu sinni
eða tvisvar yfir hann til viðbótar. Algengast
er að hafa hann þrefaldan.
Að lokum hnýtirðu endana saman, auð-
vitað að innan verðu, en þú getur líka saum-
að þá saman, ef til vill er það jafnvel þægi-
legra.
Oft er notað venjulegt snæri í svona
hnúta, en þú getur líka notað hvers konar
bönd. T. d. gæti verið gaman, ef öll sveit-
in ykkar hnýtti sér svona hnúta, hver
flokkur í sínum flokkslit, og þið bæruð þá
svo alls staðar þar sem sveitin ykkar kæmi
fram saman.
Gangi ykkur svo vel. ..
(Þýtt úr Speideren).
SKATABLAÐIÐ
95