Skátablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 20
H|álpars|ó5ur skáta
FRÁ upphafi skátahreyfingar-
innar hefur eitt höfuð vanda-
mál hinna starfandi og
ábyrgu foringja verið að
halda skátunum í tengslum
við hreyfinguna, þegar aldurinn færðist yfir
þá og ný viðhorf skapast. Það vill oft
brenna við, þegar skátinn slítur bernsku-
skónum og verður fulltíða maður, að hann
slitni úr tengslum við félagið sitt; hættir
að mæta á fundum og æfingum, þar til
hann að lokum er strikaður út af spjald-
skrá félagsins og er þar með félaginu að
eilífu glataður. í Reykjavík einni saman
nema nú slíkir „fyrrverandi skátar“ þús-
undum. Allir þessir menn taka nú virkan
þátt í hinum ýmsu störfum í þjóðfélaginu
og margir þeirra skipa þar veigamiklar
stöður. Er ekki að efa, að margir þeirra
gætu verið öflugur bakhjarl fyrir skáta-
starfið í landinu ,ef þeir hefðu ekki hætt
að teljast félagar í skátahreyfingunni.
Til að ráða bót á þessu vandamáli, hafa
meðlimir Arnardeildar (yngri R-S) Skáta-
félags Reyjavíkur fyrir nokkru stofnað
Hjálparsjóð skáta. Er öllum skátum, eldri
en 17 ára boðin þátttaka í þessum sjóði.
Um tilgang sjóðsins segir svo í stofnskrá
sjóðsins, sem samþykkt var á stofnfundi
hans:
„Tilgangur sjóðsins er að styrkja með-
limi sjóðsins er veikindi eða slys ber að
höndum, svo og í öðrum tilfellum sam-
kvæmt því, sem nánar er ákveðið í þess-
ari stofnskrá."
Og hin nánari ákvæði eru- í aðalatrið-
um þessi:
„Verði heimili það, sem stjóðsmeðlim-
ur veitir forstöðu, fyrir skaða af völd-
um elds, jarðskjálfta, hernaðar eða ann-
ars þess háttar, ber meðlimum sjóðsins
að veita verklega aðstoð við endurreisn
heimilsins. í þessu tilfelli er stjórninni
heimilt að krefjast allt að 16 tíma sjálf-
boðavinnu af hverjum meðlim sjóðsins.
Þurfi meðlimur sjóðsins að ganga
undir læknisaðgerð, sem er honum of-
viða fjárhagslega, ber sjóðnum að veita
aðstoð.
Látist meðlimur sjóðsins, ber sjóðnum
að kosta útförina. Geti meðlimur sjóðs-
ins ekki séð fyrir útför fjölskyldumeð-
lims síns eða ef hann á í erfiðleikum
vegna veikinda einhvers meðlims fjöl-
skyldu sinnar, skal honum heimilt að
leita aðstoðar sjóðsins.
Stjórn sjóðsins er heimilt að lána
meðlirn sjóðsins fé úr rekstrarsjóði gegn
tryggum víxlum.“
Samkvæmt þessu er tilgangurinn með
þessari sjóðsstofnun aðallega sá, að allir
eldri skátar í byggðarlaginu mynda með
sér samhjálp eða bræðralag sem hefur þann
tvennan tilgang, að tengja skátana við
gamla félagið sitt, og um leið að stuðla að
því að geta „ávallt verið viðbúnir" að
rétta skátabróður hjálpandi hönd, ef með
þarf.
Til þess að verða aðili að þessum sjóði
er krafizt kr. 200.00 inntökugjalds og kr.
100.00 árgjalds. Eru þær greiðslur engurn
manni ofviða.
Á stofnfundi sjóðsins var ákveðið, að
veita öllum skátum í Reykjavík kost á að
gerast meðlimir. Þátttöku ber að tilkynna
„Arnardeild", pósthólf 85, Reykjavík.
Þessi sjóðsstofnun virðist eiga mjög mikl-
um vinsældum að fagna, og þegar hafa
um eitt hundrað skátar tilkynnt þátttöku
sína.
96
SKÁTABLAÐIÐ