Skátablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 40
úr Hafnarfirði, aðeins 17 ára að aldri. Vottum
við aðstandendum hans öllum innilegustu hlut-
tekningu vora. — Er hans getið nánar annars
staðar hér í blaðinu.
ÁSTRALÍUFRÉTTIR.
Roversmót Ástralíu stendur yfir um þessar
mundir (frá 27. des. til 2. jan.). Skátasamband-
ið í Victoria State sér um mótið. Auk ástralskra
skáta munu róverar frá flestum öðrum Kyrra-
hafslöndum sækja mótið.
SKÁTAR BYGGJA SKÓLA.
Undanfarin tvö ár hafa 20 róversskátar unn-
ið við að byggja skóla í Gbodjeþorpi í frönsku
Vestur-Afríku.
Þeir eiga þó ekki heima þar sjálfir, heldur
í næstu borg, en hafa farið þangað í frítímum
sínum. Einnig hafa þeir stofnað sjóð til að
greiða kennsluna. Börnin sækja skólann á dag-
inn, en fullorðnir á kvöldin, þrjá daga vik-
unnar. Skátarnir fara þangað einu sinni í viku
og hjúkra veikum.
'---------------------------------N
SKÁTABLAÐIÐ
Útgefandi:
BANDALAG ÍSLENZKRA SKÁTA
Ritstjóri:
ÞORVARÐUR BRYNJÓLFSSON
Ritnefnd:
Eysteinn Sigurðsson, Svanur Þ. Vilhjálms-
Gunnar Guðmundsson, Ingólfur Babel,
Ingolf Petersen, Gyða Ragnarsdóttir, Elín
Davíðsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Arn-
björn Kristinsson (ábyrgðarmaður).
U tanáskrift:
Pósthólf 1247, Reykjavík.
Árgangurinn kostar 35 krónur.
Prentsmiðjan Oddi h.f.
V_________________________________-
HÓF.
Skátaflokkurinn Jötnar hélt upp á ársafmæli
sitt þann 23. og 24. nóv. með vetrarhátíð í Jöt-
unheimum, sem er eign yngri R. S.
Er gestirnir, sem voru nálægt 40 komu upp-
eftir, beið þeirra heitur maður, og bragðaðist
hann öllum vel.
Um kvöldið var kvöldvaka, og á eftir var
stiginn dans. Heiðursgestur hátíðarinnar var
Óskar Pétursson og var honum veitt „sokka-
bandsorða" Jötna, fyrir störf sín í þágu skáta-
hreyfingarinnar.
Á sunnudagsmorgun vöknuðu menn snemma
og fengu þá leifar veizlumatarins.
Um kl. 4 var lagt af stað í bæinn.
Þessi skemmtun var hinum unga Jötna-
flokki til hins mesta sóma.
ALÞJÓÐARÁÐSTEFNA DRENGJASKÁTA
var haldin í Englandi dagana 13.—17. ágúst.
Eyrir hönd íslenzkra drengjaskáta mættu þar
þeir Sigurður Ágústsson og Ingólfur Babel.
Eorsíðuna teiknaði Guðmundur Ólafsson.
SKÁTAR
Við prentum:
Bæltur
Blöð
Tímarit
PRENTSMIÐJAN ODDI H.F.
Grettisgötu 16. — Sími 12602.
116
SKATABLAÐIÐ