Skátablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 21
VARÐELBASKIKKJUM
Meðfylgjandi myndir sýna, hvernig
nota má teppi í varðeldaskikkjur. Það er
auðvelt að útbúa þær með því að hefta
þær saman með öryggisnælum. Ef þið eig-
ið gömul teppi, sem þið notið aðeins í
útilegur, gæti verið gaman að skreyta þau
með hinum og þessum merkjum og mynd-
um. En ef þið viljið sauma kufl úr tepp-
inu eða úr öðru efni, sem þið eigið, getið
þið notfært ykkur eftirfarandi leiðbeining-
Kufl af miðlungsstærð er 2x1 m. Efnið
er brotið saman í miðju, síðan er háls-
málið klippt ferkantað eða í hring. Erm-
ar eru klipptar eins og myndin sýnir.
Eftir að kuflinn hefur verið saumaður,
getið þið notað hugmyndaflugið við
skreytingu hans. Þið getið bæði saumað
og málað hin og þessi merki sem og tákn
um stöðu ykkar í flokknum.
Ef þið viljið heldur mála myndirnar,
ættuð við að nota linolíuliti með dálitlu
af þurrkefni í (en ekki fernisliti). Áður en
þið byrjið, verðið þið að bera lakk í efn-
ið, því að olíulitir eyðileggja bómullar-
efni. Myndirnar eiga að vera stórar og
greinilegar í sterkum litum, því að þær
eiga að sjást vel í daufri birtu eldsins. Þið
ættuð að hafa myndirnar einfaldar í
skýrum dráttum.
En það er ekki nóg að hafa aðeins merki
sitt á kuflinum. Nú reynir á hugmynda-
flugið. Það ætti ekki að vera erfitt að út-
búa skemmtilega skikkju, eða kufl, ef
hugmyndaflugið er fyrir hendi. Og eitt
enn. Þið ættuð að byrja strax, en ekki
geyma verkið fram á síðustu stundu.
SKATAB LAÐIÐ
97