Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1910, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.09.1910, Qupperneq 13
205 sömu hluti með augum kristinnar triiar í gegnum gler sinnar skynsemi, og sér þar samrœmi eitt og guðlega speki. Skynsemin er því ekki aflið, sem mestu ræðr í sál- um manna, heldr trú þeirra, einkverskonar trú, jafnvel hjá vantrúarmönnum. Kristin trúarbrögð finnast þeim tóm lieimska, af því þeim finnst augaglerið, skynsemin, hafa leitt í ljós ofsjónir þær, sem í raun réttri komu fram í myrkri eigin sálna þeirra. Því er það og, að margir, fjölda-margir, meðal mik- ilmenna heimsins liafa verið trúaðir, kristnir menn, og hafa alls ekki dœmt kristin trúarbrögð útlæg í nafni skynsemi sinnar, lieldr þvert á móti lagt þeim lið með eigin vitnisburði sínum. Eg hefi lmgsað mér, að rita fáein stutt erindi um nokkra af þessum mönnum, og fœra fram það, sem þeir hafa vitnað um kristna trú. Einn þeirra manna er mælskumaðrinn nafnfrægi, Daníel Webster. Meðal þjóðmála-stórmenna Norðr- Ameríku, þeirra er upjn voru á tímabilinu á fyrra hluta nítjándu aldar — á milli frelsisstríðs Bandamanna og þrælastríðsins — munu fá nöfn geymast eins lengi í sögu og bókmenntum Bandaríkja-þjóðarinnar sem Web- ster’s. Þegar vér rennum augum yfir samtíð hans, þá virðist hann skara þar fram úr öllum, bera höfuð og herðar yfir samtíðarmenn sina meðal þjóðar sinnar að andlegu atgjörvi. Rœður hans sumar eru liið lang- bezta þeirrar tegundar, sem geymt er í bókmenntum Bandaríkjannai; og til merkis um álirif hans á sögu þjóðarinnar má nefna það, að einkunnarorð norðan- manna í þrælastríðinu — „frelsi og samband, nú og að eilífu, eitt og óað'skiljanlegt“— voru tekin úr rœðu, sem Webster liafði flutt á þingi Bandamanna þrjátíu árum áðr. Honum er lýst svo, að hann hafi verið mikilmenni, mikill í kostum sínum og brestum, liafi með óviðjafnan- legum gáfum sínum og lærdómi varpað nýju ljósi yfir öll þau þjóðmál, er hann fékkst við; hafi með mælsku sinni og röksemdum gjört þjóðmálakenningar sínar að óslítanlegu bandi, er knýtti Bandaríkin saman og hélt þeim saman, þá er mest revndi á; hafi vakið þjóðernis-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.