Sameiningin - 01.09.1910, Qupperneq 18
2TO
3) „Þeir (Gnostíkarnir) álíta, að frelsarinn hafi
einnig sýnt merki ieyndardóms þessa við það (er hann
læknaði) manninn, sem blindr var fœddr, o. s. frv.
Nú er fjórða gnðspjallið hið eina, er segir frá þessn
kraftaverki (Jóh. 9, 1 o. s. frv.). Það er því áreiðan-
legt, að Írenens hefir hér haft fjórða gnðspjallið fyrir
sér.
4) „Allra fyrst, eftir að hann hafði breytt vatni í
vín í Kana í Galíleu, fór hann til páskahátíðarinnar, og
um það er ritað: Því margir trúðu á hann, þegar þei'r
sáu táknin, sem hann gjörði, einsog Jóhannes, lærisveinn
drottins, hefir fœrt í letr “ (Jóh. 2, 23).
5) ... .„Því þegar drottinn sagði við þá: Abraham
faðir' yðar gladdist af því að hann myndi sjá minn dag,
og hann sá hann og gladdist, — þá svöruðu þeir: Þú ert
ekki enn fimmtugr, og hefir þó séð Abraham “ (Jóh. 8,
56. 57).
6) „Hann (Jesús) segir: Sá, sem drýgir synd, er
þræil syndarinnar “ (Jóh. 8, 34).
7) „Hann þurfti ekki, að nokkur vitnaði um mann-
inn, því hann sjálfr vissi, hvað með manninum bjó“
(Jóh. 2, 25).
8) „Jóhannes........ segir: Hann var í heiminum,
og heimrinn var af honum gjörðr, og heimrinn þekkti
hann ekki. Hann kom til sinna, og hans eigin meðtóku
hann ekki “ (Jóh. 1, 10. 11).
9) „Jóhannes hefir skráð í guðspjalli sínu: Ef þér
hefðuð trúað Móses, þá hefðuð þér trúað mér, því hann
ritaði um mig. En ef þér ekki trúið ritum hans, munuð
þér ekki heldr trúa mínum orðum “ (Jóh. 5, 46. 47).
10) „Drottinn sagði við lærisveina sína: Meiri hluti
en þessa skaltu fá að sjá “ (Jóh. 1, 51).
11) „Hver sem trúir á hann hefir eilíft líf, en hver
sem ekki trúir á sohinn hefir ekki eiiíft líf, en reiði
drottins livílir yfir honum “ (Jóh. 3, 36).
3) Adv. II., 17, 9. 4) Adv. Haer. II., 22, 3. 5) Adv. Haer. II.,
22, 6. 6) Adv. Haer. III., 8, 1. 7) Adv. Haer. III., 9, 3.
8) Adv. Haer. III., 11,2 g) Adv. Haer. IV., 2\ 3. 10) Adv.
Haer. IV., 9, 2. 11) Adv. Haer. IV., 37, 5.