Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.09.1910, Side 28

Sameiningin - 01.09.1910, Side 28
220 '' Hitt mun sönnu nær, að sigrvegarinn hafi að :því er sið- '1 ferði snertir orðið fyrir áhrifum frá þeim, er hann lagði undir sig. Grikkland varð Rómverjum spillingar-upp- spretta; eins Egyptaland. Og sá, er aö þessu leyti rann- sakar söguna og íhugar efnið út í æsaf, mun að lokum komast að þeirri niðrstöðu, að spillingar-straumrinn hafi komið austan að og stefnt vestr á bóginn, og að einmitt i þessarri borg, Antíokíu, einhverju elzta aðalbóli Assýra- veldis og dýrðar þeirrar, sem þar til heyrði, hafi hinn banvæni straumr haft helztu upptök sín. Galeiða ein, sem höfð var til vöruflutninga, kom inn í mynni Orontes-fljóts utan af hinum bláleita sæ. ÞaS var árdegis. Veðrið var mjög heitt; engu að síðr voru allir á iþiljum uppi, sem gátu notað sér þau hlunnindi, — og var Ben Húr einn í þeim hópi. Fimm ár voru liðin síöan vér skildum við hann síðast, og hafði hann á þeim tíma þroskazt svo, að nú var hann orðinn fulltíða maðr. Skikkja sú, er hann gekk í;, úr hvítu líni, gjörði hann að sumu leyti ókennilegan; engu að ,síðr var útlit hans svo, að hann laðaði menn óvenjulega mikið að sér. Heila klukkustund og betr til hafði hann setið í forsœlunni, sem varð af seglinu, og höfðu nokkrir sam- ferðamenn hans, er voru sama þjóðernis, gjört sér far um að hefja samtal við hann, en þeim tókst það ekki. í sem fæstum orðum, og þó mjög kurteislega, hafði hann svarað spurningum þeirra, og talaði hann á latneskri tungu. Vel hreint mál talaði hann; látbragð hans bar þess_ vott, að þar var menntaðr maðr; það hvorttveggja, auk þess hve fámálugr hann var, jók þeim öllum forvitni. Þeir, sem nákvæmlega tóku eftir honum, furðuðu sig á því, að lík- amseinkennum hans sumum stakk verulega í stúf við hátta- lag hans, sem var þýðlegt og viðfelldið einsog búizt var við af rómverskum herramanni. Armleggir hans voru, til dœmis að taka, mun lengri en svo, að vel samsvaraði sér; og er hann sér til stöðvunar gegn hreyfingum skipsins greip í eitthvað, sem nálægt honum var, gátu menn ekki annað en tekið eftir því, hve stórhentr hann van, og jafn- framt iþóktust allir vita, að hann hlaut að vera frábærlega handsterkr, enda höfðu menn orð á þessu. Og þar sem það vakti furðu mannai, hver maðr þessi var og hvemig á honum stóð, þá þráðu menn því fremr að fá að vita um æfiferil hans út í æsar. Útliti hans verðr með öðrum orð- um ekki betr lýst en með þessarri athugasemd: Sá maðr hlýtr að eiga merkilega sögu. Á austrförí sinni hafði galeiðan komið við í einum ÍX hafnarbœnum í Kípr, og tók þar maðr einn hebreskr sér

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.