Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.01.1911, Blaðsíða 6
322 oft fyrir þau ummæli, sem svo eru löguð, að hefði West- minster-guðfrceðingarnir, sem hin minni frœði þeirrar kirkjudeildar eru eftir, heyrt það orðalag, myndi hárin hafa risið á höfði þeirra. Z7wio»-prestaskóli (í New York) vinnr kappsamlega að því að smeygja súrdeigi þessu inn í Öldunga-kirkjuna. Þessi ókyrrð á svæði guðfrœðinnar mun fyrr eða síðar tilfinnanlega gjöra vart við sig í lútersku kirkjunni hér í Vestrheimi, eins- og reynd er þegar á orðin innan íslenzka kirkjufélags- ins því til sorgar; því vor á meðal eru engin valdhjóð- andi embættisbréf frá kirkjulegum prelátum til að banna fólki að lesa rit ný>-guðfrœðinga, sem nú í síðustu tíð hefir óðum fjölgað. En þrátt fyrir alla þessa ókyrrð á svæði guðfrœð- innar má þó sjá merki þess„ að þar er að verða heilsu- samlegt aftrkast. Nýjar og óreyndar kenningar hafa ekki í sér nóg nœringarefni til þess að seðja sálir þeirra manna, sem hungrar og þyrstir eftir réttlæti. Trú sú, er fullnœgir mannlegu hyggjuviti eða skilningi manns- ins, fullnœgir jafnaðarlega ekki hjartanu. Farið getr svo fyrir háskólakennurum, að þeir lendi svo langt inná villustigu efasýki og afneitunar, að þeir gleymi því með öllu, að fagnaðarerindi Krists er kraftr guðs til sálu- hjálpar eins víst nú og forðum á dögum Páls postula. Og' svo sjái;m vér þá menn koma fram, sem ekki gjöra sér það að góðu, að fólki sé boðnir steinar í staðinn fyr- ir brauð, en rísa upp á móti kennendum þeim, sem gjöra vilja að engu eleki aðeins meginmál trúarlærdóms- ins kristilega, heldr og kjarna siðalærdómsins. Þá er háskólakennarinn þýzki neitaði því, að Jesús Kristr hefði nokkurn tíma verið til, risu þúsundir manna í Berlín upp og mótmæltu opinberlega. I annan stað var því hástöfum andmælt um þvert og endilangt Þýzka- land, er í opinberu embættisbréfi frá yfirmanni kaþólslru kirkjunnar var talað um ‘villutrúar-umbóO Lúters, og páfi neyddist til að gjöra það, sem Leó hinum tíunda tókst ekki að láta Lúter gjöra — taka aftr ummæli sín. Af þessu og þvílíku, sem komið hefir fyrir nú upp á síðkastið, má ráða, hvaðan vindr almennings-álitsins

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.