Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1911, Qupperneq 28

Sameiningin - 01.01.1911, Qupperneq 28
344 saman, þá kom allt í einu eldlegr vagn og eldlegir hestar og skildu þá að, og Eltas fór til himins í stormvi'ðri. Les: 2. Kon. i. og 2. kap. — Minnistexti: Og Enok gekk með gtiði og hvarf, af því að guð nam hantt burt (1. Mós. 5, 24J. Spámannsstarf Elíasar náði yfir um 20 ára bil. 6 ár eru liðin síðan hann boðaði Akab dóminn í víngarði Nabots. Akab er dá- inn; við ríkinu hafa tekið synir hans, fyrst Ahasía, og aö honum látnum Jóram. 1. v. GUgal var um 8 mílur fyrir norðan Betel; þar hefir lík- lega verið spámanna-skóli. — 2. v. Guð stjórnar ferð Elíasar, svo að ’honum gefst fœri á að kveðja lærisveina sína á ýmsum stöðum og hvetja þá til trúmennsku. — Hví sagði Elías Elisa að verða •eftir? Liklega annaðhvort til þess að reyna tryggð hans og hug- rekki, eða af því að hann hefir langað til að vera einn. Elísa er of tryggr til þess að yfirgefa meistara sinn síðustu jarðvistardag- ana, og fer með honum. — 3. v. Spámannasveinar voru ungir menn, sem voru að búa sig undir það, með tilsögn eldri spámanna, að verða andlegir leiðtogar og frœðarar þjóðarinnar; það fyrirkomu- Iag var frá dögum Samúels (sbr. 1. Sam. 10, 5J. — 7. v. Þessir 50 vildu ekki trufla samtal þerra Elíasar og Elísa en eru þó svo nálægt, að þeir sáu hvað gjörðist. — 9. v. Tveir hlutar. Arfleifð frumgetins sonar eru tveir hlutar (5. Mós. 21, 1 y). Elísa bað ekki um að verða eins mikill maðr og Elías, heldr um að fá andagift til þess að geta haldið áfram starfi hans. Elías kveið ekki burtför sinni úr þessu lifi; það gjörir enginn, sem helgar guði líf sitt. Hví svo margir hræddir við dauðann? — Tryggð við góða vini og góð málefni er aldrei ólaunuð. Hvaða tryggð sýnir þú meistara þínum, Kristi, og málefni hans? Tryggð- ina þarf að sýna, ekki aðeins í orði, heldr líka í verki.—Óskir þínar sýna, hvern mann þú hefir að geyma. Er það heitasta ósk þín að fá að efla ríki guðs? — Vér getum aldrei mælzt til of mikils af guði. Honum er annara um að gefa en oss að þiggja. Að vilja vinna mikið fyrir guð ,er vegrinn til þess að fá miklar náðargjafir frá honum. Hœfileikar eru gefnir til starfs; ef þeir eru vel not- aðir, þá vaxa þeir. Lexía 12. Marz 1911: Elísa lífgar son konunnar í Súnem (2. Kon. 4, 8-37;. 25. Siðan fór hún og kom til guðsmannsins á Karmelfjalli. En er gnðsmaðrinn sá hana álengdar, sagði hann við Gehasí, svein sinn: Þetta er konan frá Súnem! 26. Hlaup þú nú á móti henni og seg við hana: Hvernig líðr þér ? Hvernig líðr manni þínum ? Hvernig líðr drengnum? Hún svaraði: Okkr Hðr vel. 27. En er hún kom á fjallið til guðsmannsins, tók hún um fœtr honum. Þá gekk Gehasí að og vildi hrinda henni frá. En guðsmaðrinn mælti: Láttu hana vera,, því að hún er harmþrungin mjög, og

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.