Sameiningin - 01.08.1912, Page 7
16y
dýröina fyrir þau kraftaverk, sem hann vinnr. Hann tilbiör guS
og ákáílar hann sér til hjálpar. Heilar nætr er hann. á bœn til
guðs. Hann horfir til himins, þegar hann fr-amkvæmir yfirnáttúr-
leg verk. Hann segist geta beðið föður sinn um meir en tólf fylk-
ingar engla til að verja sig. Hann veinar á krossinum og kvartar
um það við föðurinn, sem hann þar kallar guð sinn, hann hafi
yfirgefið sig, og auðmjúklega felr hann anda sinn í guðs hendr í
dauðanum. Hvarvetna' kannast Jesús við það, að hann sé sannr
maðr.
En er unnt að gjöra sér skynsamlega grein fyrir Jesú frá þessu
sjónarmiði einu? Verðr æfisaga Jesú skiljanieg, ef hann er miaðr
og ekki meira?
Einn af stœrri spámönnum síðustu aldar var frakkneski rithöf-
undrinn Joseph Ernest Renan. Hann hafði búið sig undir prests-
stöðu, en féll frá mörgum megin-atriðum trúarinnar og varð .aldrei
prestr, en um trúmál ritaði hann margt og mikið. Merkasta ritverk
hans er „Æjfisaga Jesú“. Hún er rituð af viðbrugðinni snilld.
Hann tekr samhljóða guðspjöllin sem heimildarrit og segir svo
söguna einsog venjuiega æfisögu MANNSINS Jesú. Hann heldr
sér föstum við það, að Jesús sé einungis maðr. Um það kemst
Renan svo að orði.: „Guðspjallamennirnir lýsa honum sem hverjum
öðrum manni. Hans er freistað; honum er ókunnugt um marga
hluti; hann leiðréttir það, sem hanrf hefir áðr sagt; hann breytir
skoðunum sínum; hann er áhyggjufullr og kvíSandi; hann sárbœnir
föðurinn að hlífa sér; hann er guði undirgefinn einsog barn; hann,
sem dœma á heiminn, veit ekki, hvenær dagr dómsins kemr; hann
flýr til þess að bjarga lífi sínu.----Allt eru þetta einungis verk
þess manns, sem er erindsreki guðs, — manris, er nýtr náðar guðs
og varðveizlu.“l)
En sjálfum reyndist höfundinum um megn aS halda þessarri
mynd af frelsaranum óbreyttri í ritverki sínu. Aftr og aftr var
hann til neyddr út-af hinum sögulegu viðburðum, er hann vildi gjöra
grein fyrir^ að tiieinka Jesú guSlegt gildi. Hann viðhefir þau orS
um Jesúm, sem hljóta að álítast hneykslanleg, ef einungis er þar
um mann að rœSa. Eftir að hafa sagt greinilega frá dauða Jesú,
kemst hann aS orði á þessa leið:
„Hvíl nú í dýrð þinni, göfugi höfundr! verk þitt er fullkomn-
að: guðdómr þinn er staðfestr.---------- Burt numinn af öllum veik-
leika og úr djúpi þíns guðlega friðar skalt þú héðan í frá horfa á
óendaniegar afleiðingar verka þinna.-----------HéSan i trá munu
menn enga merkýalínu gjöra milli þín og guðs. T’ak nú við stjórn
ríkis þíns, og þangað munu leita eftir konungs-vegi þeim, sem þú
vísar, óteljandi kynslóSir dýrkenda þinna." Framar í sömu bók
kveðr hann svo aS orSi: „Þá var það um nokkurra mánaSa bil —
i) Renan: „L,a Vie de Jésu“ — enska þýSingin, bls. 263.