Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1912, Blaðsíða 40

Sameiningin - 01.08.1912, Blaðsíða 40
200 Það, sem vér imunum til þeirra frá fyrri dögum, fyllir oss lotning fyrir þeim. Sorgir þeirra varpa yfir þær hjúp heilagleikans. Án þess aö koma of nærri sjáum vér gegn- um fangelsið opið, að breyting er orðin á útliti þeirra meiri en svo, að stafað geti af því að þær eru nú á öðru æfiskeiði en þá er vér áðr kynntumst þeim, eða hinni löngu fangelsisvist. Móðirin var fögr kona; dóttirin fagrt barn, En jafnvel ástin gat ekki sagt svo mikið nú. Hár þeirra er langt, ógreitt, og undarlega hvítt. Vér hrökkuim undan með hryllingi og viðbjóðstilfinning, sem ekki verðr með orðum lýst, þótt áhrif þessi, sem þær hafa á oss, stafi ef til vill af því að ljósskíman, sem yfir þær leggr í hinu óholla rökkr-húmi þar í jörðu niðri, er svo óeðlileg og draugsleg. Má og vera, að þær sé aðfram komnar af hungri og þorsta, þarsem þær hafa hvorki bragðað vott né þurrt síðan fanginn, sem átti að þjóna þeim, var látinn út deginum áðr. Tirza, sem hallar sér upp-að móður sinni, kveinar grátlega. „Vertu róleg, Tirza! Þeir koma. Guð er góðr. Við höfum rnunað eftir honum og aldrei gleymt því að biðjast fyrir, er lúðrblástrinn úr Musterinu fyrir handan barst okkr til eyrna. Ejósbirtan, sem þú sér, skín enn glatt. Sólin er enn á suðrloftinu, og það er naumast fremr en um sjöundu stund. Einhver kemr víst. Höfum von. Guð er góðr.“ Svo mælti móðirin. Orðin voru einföld og áhrifamikil. Tirza var þó ekkert barn lengr. Þrettán ára gömul var hún, er vér sáum hana síðast. En nú höfðu átta ár bœtzt ; við aldr hennar. „Eg skal reyna að vera sterk, móðir mín !“ — sagði hún. „Þjáning þín hlýtr að vera mikil einsog mín. Og mig langar svo til að lifa fyrir þig og hann bróður minn. En tunga mín er í loga. Varirnar stikna. Ó að eg vissi, hvar hann er, og hvort honum tekst nokkurn tíma að finna okkr!“ Eitthvað er það við málróm þeirra mœðgna, sem lætr undarlega í eyrum vorum, — óvæntr hljómblær; — rómrinn er skerandi, hás, málmkenndr, ónáttúrlegr.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.