Prentarinn - 01.01.1970, Page 7
og hávaðinn yfirþyrmandi. Sá er nefnilega mestur
ljóður á vélum frá Monotype, að þær eru hávaða-
samar, að ekki sé meira sagt, sérlega þá þessar tvær.
Eins og setningarvélar þeirra cru filmuvélarnar og
blýsteypivélarnar að mestu loftknúnar og slík orka
er ekki til þess fallin að hindra hávaða. Hins vegar
verður ekki um þessar vélar sagt, að þær þjóni ekki
sínum tilgangi, því að þær eru einkar skemmtileg
tæki og fjölbreytnirík að vinna á, og möguleikarnir
á slíkar vélar stórum meiri en á þær setjaravélar,
sem við Islendingar eigum að venjast. — Vélarnar
cru látnar ganga þarna í deildinni 24 klukkustundir
stanzlaust og síðan yfirfarnar og ef ekkert finnst að
þeim, eru þær úrskurðaðar söluhæfar. Það er rétt að
taka það fram, að þarna er ekki framleitt fyrir lag-
er, lieldur er hver vél, sem byrjað er á, fyrirfram
seld.
Eftir þessa hávaðasömustu deild verksmiðjunnar
var sú hljóðlátasta skoðuð — leturgerðin. Stig fram-
leiðslunnar í þeirri deild eru 82, frá því er teiknar-
inn lýkur verki sínu þar til filman eða mótið eru
tilbúin til notkunar. — Fyrir þá, sem ekki vita,
skal tekið fram hér, að Monotype smíðar einkum
tvenns konar vélar, auk leturborða, Monophoto
filmsetningarvélar og Monotype caster. „Casterinn"
er blýsteypivél, sem steypir lausaletur eftir gata-
strimli frá leturborðunum og þarf að skipta um
leturramma (rammi með 272 stafamólum) fyrir
hverja stærð, sem notuð er. FilmusetningarvéJin setur
eins og steypivélin eftir strimli. í stað stafamóta eru
jafnmörg filmunegatív, sent vélin lýsir inn á filmu
og er sama negatívið notað við allar leturstærðir.
Stækkun og minnkun leturs er aðeins fólgin í til-
færslu linsa og spegla og breytilegu ljósopi, enda
er fihnsetningarvélin lítið annað en stór, hávaðasöm
myndavél. — Mjög fróðlegt var að fylgjast með hin-
um ýmsu stigttm starfseminnar 1 leturdeildinni.
Nákvæmnin og vandvirknin var mikil, eins og gefur
að skilja, enda má ekkert út af bregða í þessari
framleiðslu. Minnstu mistök gera leturmót og film-
ur ónothæfar. Öll starfsemin þama að undanskildu
starfi teiknaranna, fór fram í rafeindatækjum og
starfsmenn sérhæfðir hver á sínu sviði. Rak ég
augun í að mestur hluti starfsfólksins í þessari
deild var kvenfólk. Gerði ég ráð fyrir að það væri
vegna þess, að kvenfólk þætti skárra í þessa ná-
kvæmnisvinnu en karlmenn, en vildi ekki spyrja af
ótta við svarið, fyrir mína hönd og kynbræðra
minna.
Þegar heimsókninni í leturdeildina var lokið, var
heimsókninni i Monotyjjeverksmiðjurnar raunar
lokið líka. Ég kvaddi því hr. Florio og meðskoðara
mína og hélt með næstu lest til London, þreyttur
eftir allt labbið, en snöggtum fróðari.
Jón
Þórðarson
áttræður
Jón Þórðarson, heiðursfélagi H.Í.P. átti áttræðis-
afmæli 1. ágúst s. 1. Ritstjórn Prentarans óskar Jóni
til hamingju með áttræðisafmælið og þakkar honum
skerf hans til blaðsins á undanförnum árum og ósk-
ar, að samskiptin megi enn haldast áfram uin mörg
ókomin ár.
PRENTARI N N
5