Prentarinn - 01.01.1970, Blaðsíða 13
ATVINNUÖRYGGI
Tillaga Alþjóðasambands bókagerðarmanna
um landssamning aðildarfélaga um atvinnuleysi
og að afstýra félagslegum vandkvœðum við upptöku
nýrrar verktcckni og nýrra starfsaðferða.
Meginregla
Samningsaðilar eru ásáttir um að hagnýting tæltni-
þróunarinnar og hagræðingin miði að þvx að gera
fyrirtækin arðbærari og auka yfirhöfuð framleiðn-
ina í rekstrinum.
Sanrningsaðilar lýsa skýlaust yfir, að áhrif þessaiar
hagirýtingar eigi að vera jákvæð, bæði efnahagslega
og félagslega, og verði ennfremur að stuðla að því að
tryggja og bæta þau lífskjör senr þegar hafa náðst.
Einnig eru samningsaðilar f grundvallaratriðum á
eiiru nráli um, að varðveita verði og auka enn félags-
leg hlunnindi vinnuþega við upptöku nýrrar verk-
tækni og nýrra starfs- og framleiðsluaðferða, við
skipulagsbreytingar innan fyrirtækisins og við franr-
kvæmd hagræðingar.
Skilgreining
Ráðstafanir í merkingu þessa samnings eru bæði
breytingar á verktækni og starfs- og framleiðsluað-
ferðunr jafnt sem skipulagsráðstafanir, senr rökstyðja
má með tækniþróun og hagræðingu, og haft geta í
för með sér uppsagnir, tekjurýrnun og flutning
vinnuafls á vinnustað þar sem laun eru lægri.
A kvceði
í því skyni að afstýra því að upp komi félagsleg
vandkvæði, eða að draga að minnsta kosti úr þeim,
og til að tryggja eins og kostur er atvinnuöryggið
við upptöku nýrrar verktækni og nýrra starfs- og
framleiðsluaðferða, svo og við skipulagsbreytingar í
fyrirtækjum og hagræðingarráðstafanir, hafa samn-
ingsaðilar gert með sér eftirfarandi samkomulag:
Starfsliði skal látin í té vitneskja um þær ákvarð-
anir, sem taka skal um hagræðingu með tækninýj-
ungum, jafnskjótt og vinnuveitandinn hefur feng-
ig yfirsýn yfir þær afleiðingar, sem af þessu leiðir
fyrir verkafólkið.
Nýjar starfsaðferðir, sem spretta af tækniþróun-
inni, skulu falla í hlut iðnaðarmönnum. Við hag-
ræðingarráðstafanir, sem hafa í för með sér fækkun
starfsliðs, skal í fyrsta lagi forðast að iðnaðaimönn-
um sé sagt upp.
Tilftersla á annan, viðunandi, vinnustað
Hvort vinnustaður er viðunandi veltur á eðli
starfsins, félagslegri stöðu og launamöguleikum
hlutaðeigandi starfsmanns síðar meir. Á undan til-
færslu á annan vinnustað verður að fara skrifleg
greinargerð. Vinnuþeginn verður innan venjulegs
gildandi uppsagnarfrests að tilkynna, hvort hann
hefur afráðið að halda áfram starfi við hin breyttu
skilyrði, eða hvort hann vill slíta ráðningu sinni.
Endurhœfing til annarrar iðnar i þrentiðnaði
Meðan endurhæfing stendur yfir skal vinnuveit-
andi eða vinnuveitendasamtökin greiða söxnu laun
og áður og standa straum af öllum endurhæfingar-
kostnaði, þangað til náð er þeirri kunnáttu og leikni,
að tök séu fengin á breyttu eða nýju starfi og það
leyst af hendi svo að náð sé að minnsta kosti fyni
launum.
Samningsaðilar skulu leitast við að afla styrks frá
ríkinu við endurhæfinguna innan ramma fyiirhug-
aðra endurhæfingarmöguleika. Beri svo við, vegna
þess að fyrri vinnustaður hverfur úr sögunni, og
óhjákvæmilegt verði að vinnuþegi færist í lakar
Ixorgað starf eða óhjákvæmilegt verði að segja hon-
um upp, hafa samningsaðilar orðið á eitt sáttir um:
Uppsagnarfresti
Uppsagnarfrestir eru eftir að minnsta kosti tíu ára
óslitna ráðningu hjá fyrirtækinu:
13 vikur eða 3 mánuðir eftir að náð er 35 ára aldri;
17 vikur eða 4 mánuðir eftir að náð er 45 ára aldri;
26 vikur eða 6 mánuðir eftir að náð er 50 ára aldri.
Til að varðveita félagslega stöðu við uppsögn sem
orðin er óhjákvæmileg greiðast svolátandi:
Upþsagnabœtur
Fyrir fyrstu tíu árin í starfi á vegum fyrirtækis-
ins: 1 vikulaun fyrir ár hvert. Fyrir nasstu tíu árin i
starfi á vegum fyrirtækisins: 1]4 vikulaun fyrir ár
hvert (fyrir allan þann tíma sem sá sem upp er sagt
hefur starfað á vegum fyrirtækisins). Fyrir ár sem
þar eru framyfir í starfi á vegum fyrirtækisins: U/2
vikulaun fyrir ár hvert (fyrir allan þann tima sem
sá sem upp er sagt hefur starfað á vegum fyrirtæk-
isins).
PRENTARINN
11