Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 21

Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 21
Heimsókn í Prentskólann í Kaupmannahöfn Frá Fagskólanum i Kaupmannahöfn. Námskeiö i filmuumbroti. Kenn- arinn, Paul Ravnsbrck, lengst til vinstri á myndinni. Julius Thomsen Gade 3 í Kaupmaniiahöfu er heimilisfang sem eflaust hljómar kunnuglega í eyr- um margra íslenzkra prentara, jrví þar eru til liúsa Fagskolen for Boghaandværk og Den grafiske hfíj- skole og þangað hafa margir þeirra sótt viðbótar- menntun að loknu sveinsprófi, jrótt minna hafi ef til vill verið um það nú síðustu árin. En því mið- ur höfðum við Þórólfur Daníelsson ekki verið í þeirra hópi og jicgar við dvöldum í Höfn í fyrravor og ákváðum að heimsækja jiessar ágætu stofnanir urðum við að vopnast voldugu Kaupmannahafnar- korti og taka síðan mið af Radíóhúsinn. Og um síðir vorum við á skrifstofu Eli Reimers, sem sat ]>ar umkringdur fjallháum pappírsstöflum og önn- um kafinn við að gefa einhverju józku dagblaði nú- tímalegt yfirbragð. Hann átti reyndar von á okkur og dreif okkur strax út á vcitingastað í ágætan danskan „middag“ ásamt Bent Rohde og við fund- um fljótt að jieir minntust með mikilli ánægju dag- anna sem þeir dvöldu hér á landi og fluttu erindi fyrir íslenzka bókagerðarmenn í Norræna húsinu og Bent hélt Jjví fast fram að Reimer hefði þá fengið snert af íslandsdellu. Eftir góða veizlu var haldið aftur í skólann og Reimer sýndi okkur húsakynnin hátt og lágt og við enduðum ferðina á skrifstofu yfirkennara Fagskól- ans, hjá þeim Svend Lehnskjold og Johan Sternberg og hér á eftir ætla ég að tfna til eitt og annað sem þeir skýrðu okkur frá varðandi nýju iðnfræðslulög- in, sem verið er að móta í Danmörku, og framhalds- námskeiðin fyrir prentara sem þeir veita forstöðu. Auk skólans í Kaupmannahöfn eru prentskólar 1 Alljorg, Árhus, Odense, Herning, Kolding og Ros- kilde. Fram til ársins 1962 voru þeir 26, en það ár var landinu skipt í 7 skólaumdæmi og tekin upp dagkennsla í stað kvöldkennslu. Ríkið greiðir lang- stærstan hlut í rekstri prentskólanna, eða 85%, 10% koma frá prentsmiðjueigendum og 5% frá prentara- sambandinu. Þetta á einnig við um tækjakaup og við það að fækka prentskólunum hefur tekizt að búa ]>á góðum tækjakosti. í Danmörku tekur prentnámið 4 ár og hefst á 11 vikna forskólanámi, en síðan eru lærlingarnir 6 vik- ur í verkskóla hvert ár. Sameiginlegur sjóður, sem prentsmiðjurnar leggja allar í, greiðir nemunum kaup meðan jjeir stunda forskólanám. Þetta er gert til þess aðjafna niðurkostnaðinum, Jrví sumar þeirra hafa marga nema en aðrar engan. Eftir að forskóla lýkur ber hins vegar prentsmiðjan, þar sem nem- inn er á samning, ein kostnaðinn af skólavist hans. Að öðru leyti er tilhögun prentnámsins i Danmörku nokkuð hliðstæð því sem hér gerist, enda er okkar námskipan í flestu sniðin eftir þeirri dönsku. En Danir, sem og ýmsir aðrir, eru alls ekki ánægð- ir með iðnfræðsluna eins og liún er nú og Jiykir hún orðin æði langt á eftir tímanum og frekar miðuð við tæknina eins og hún var á fyrstu áratugum aldar- iunar en þeim síðustu. Þeir sem gagnrýna fram- kvæmd iðnnámsins benda meðal annars á eftirfar- andi atriði: l.Sérnámið hefst of snemma og unglingarnir verða því að ákveða ævistarf sitt of ungir. PRENTARINN 19

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.