Prentarinn - 01.01.1971, Page 23

Prentarinn - 01.01.1971, Page 23
-og yrði dýr. Aætlað er að einungis kennslan í offset- iðninni muni kosta um 25 milljónir danskar krón- ur á ári. Eftir að almenna iðnnáminu lýkur, tekur fram- Jtaldsnámið við og hlutur þess er alltaf að stækka. Sii tíð er liðin þegar það þótti aðcins undarleg sér- vizka ef fertugur maður settist aftur á skólabekk til þess að bæta við þá þekkingu sem hann hafði viðað að sér á unglingsárunum. Starfsreynslan, sem áður fyrr var eini framhaldsskólinn, dugar ekki lengur ein og því hafa miklar breytingar orðið á skólunum á liðnum árum. Framhaldsnámskeið og alls konar ■endurhæfingarnámskeið eru orðin annar aðalþátt- urinn i skólastarfinu. — Skólaganga cr að verða hluti af starfi iðnaðarmanna. Danir hafa líka fylgzt vel með að þessu leyti og þeir hafa veitt miklu fé til framhaldsmenntunar. Á hverju ári halda prentskólarnir í Kaupmannahöfn, Arhus og Odense mörg námskeið fyrir sveina, m. a. í filmuumbroti, litprentun, kynntar eru nýjustu prentvélar og nýjustu prentunaraðfcrðir, námskeið eru haldin fyrir sveina sem annast kennslu nema í prentsmiðjunum og sérstök deild er við prentskól- ann í Höfn sem þjálfar prentara á offsetvélar. Ríkið greiðir 85% af kostnaði við öll þessi námskeið, at- vinnurekendur 10% og prentarasambandið 5%. Prentarar sem búa utan Kaupmannahafnar og sækja skólana í Árhus og Odense fá greiddan ferðakostn- að og dvalarkostnað frá skólunum, en auk þess 90% af dagkaupi meðan námskeiðin standa yfir. Poul Ravnsbæk, en hann kennir filmuumbrot við Fagskólann í Höfn, sagði okkur að áhuginn væri mikill og það ætti ekkert síður við um eldri menn- ina en þá yngri. 1969 voru haldin 26 filmunámskeið. Hvert þeirra stóð í 12 daga og 10 setjarar komust að hveru sinni. Meðalaldur þátttakenda var 35—40 ár, -en aldursforsetinn 65 ára. Ravnsbæk leiðbeinir enn- fremur á endurþjálfunarnámskeiðum sem haldin eru fyrir starfsfólk dagblaða. Allmörg dönsk blöð hafa undanfarið keypt offsetpressur og filmusetn- ingarvélar. Starfsfólki þessara blaða er gefinn kostur á liálfsmánaðar námskeiðum og setjararnir þjálfaðir í pappírsumbroti og ljósmyndun, steypumennirnir í offsetplötugerð og blaðamenn kynnast nýju prent- tækninni og hagkvæmustu vinnubrögðunum á rit- stjórn og í prentsmiðju. Þegar við gengum aftur út á götuna, eftir að okk- ur hafði dvalizt talsvert lengur en við ætluðum í fyrstu, kom okkur f hug hve fátítt það er að hing- að til lands séu fengnir erlendir kennarar til þess að leiðbeina og kynna íslenzkum bókagerðarmönnum þær fjölmörgu nýjungar sem nú koma fram í prent- iðninni. Okkur væri mikill fengur í að fá hingað færa kennara og þótt aðeins sé um stutt námskeið að ræða geta þau komið að miklu gagni. FRÁ USHER- WALKER LTD„ LONDON höfum við fyrirliggj- andi fjölbreytt val prentlita og hjálpar- efna. Usher-Walker Ltd. framleiða einnig og annast klæðningu á prentvölsum með gúmmíi og ýmsum öðrum efnum. Hér- landis hefur valsaefni þeirra „Treothene", sem fyrst var framleitt 1957, reynzt ákjósan- legt fyrir flestallar prentvélar. Seljum einnig prentblý fyrir setningarvélar. V. Sigurösson & Snæbjörnsson hf. Barmahlið 31 . Símar 13425 og 16475 Skólavörðustíg 23 Sími 11372 PRENTARINN 21

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.