Prentarinn - 01.01.1971, Page 24

Prentarinn - 01.01.1971, Page 24
Þórður Björnsson Minning Ekki bjóst ég við þvi, er ég heimsótti Þórð Björnsson föstudaginn 21. maí s.l., að það mundi verða okkar síðasti samfundur liérna megin for- tjaldsins, enda þótt hann væri þA rúmfastur. Tjáði hann mér, að ég hitti ekki reglulega vel á, því að hann hefði hrasað daginn áður og lægi nú með hita. En samt fór nú svo, að þetta varð síðasti sam- fundurinn, því tveim dögum sfðar var hann liðið lik. Ég kynntist fyrst Þórði, er hann hóf prentnám í ísafoldarprentsmiðju 17. janúar 1920. Mér er það sérstaklega minnisstætt frá fyrsta námsári Þórðar, er hann, að vinnudegi loknum, hóf að rissa ýmsar fyrirmyndir til að æfa sig á við setninguna í prent- smiðjunni. Leiðir okkar skildu í bili, því meðan Þórður var við námið, stofnuðum við, nokkrir prentarar, Acta-prentsmiðju. En skömmu eftir að Þórður lauk námi, fluttist liann til okkar í Acta og stundaði þar vélsetningu. Eftir það unnum við saman i næstum hálfa öld, að undanskildum fjórum árum, er hann starfaði hjá Morgunblaðinu og í Félagsprentsmiðjunni, tvö ár á hvorum stað, cn áður starfaði liann í Edduprentsmiðju, scm hafði þá yfirtekið Acta, ásamt öllu starfsfólki þeirrar smiðju. Að fjögurra ára útlegðartíma Þórðar loknum, fluttist hann aftur í Edduprentsmiðju 17. janúar 1951, eða réttu 31 ári síðar en hann upphaflcga byrjaði prentnám, og vann þar meðan heilsa og kraftar entust. Árið 1932 brá Þórður sér til Þýzkalands og var þar í stuttum námskeiðum í iðn sinni, við Intertype- og Linotype setningarvélar. Að námskeiðunum loknum fór hann í stutt ferðalag til Bæheimsfjalla og síðan í liálfsmánaðar ferðalag til Rínarlanda. Átti hann margar ánægjulcgar minningar frá þessum ferða- lögum. Iðnskólanám sitt stundaði Þórður með prýði og hlaut að launum 1. verðlaun í 4. bekk skólans, sem að því sinni var þýzk-dönsk orðabók, en uppáhalds- greinar hans í skólanum voru einmitt þýzka, ís- lenzka og dráttlist. Þórður annaðist nokkur störf í prentarafélaginu. Var t. d. gjaldkeri Reykjavíkurdeildar félagsins árin 1925—1927 og meðstjórnandi í félaginu 1929—1931. Innan Edduprcntsmiðju var Þórður einn af for- göngumönnum pöntunarfélagsins, sem þar var stofnað, og í fyrstu stjórn þess. Það má með sanni segja, að störf þau, er Þórði voru falin leysti hann ávallt af hendi með framúr- skarandi vandvirkni og samvizkusemi, enda var hann ætíð vel liðinn og mikils metinn af samstarfs- mönnum. Þórður var fæddur í Reykjavík 19. nóvember 1904. Foreldrar lians voru Björn kaupmaður í Reykjavík, Þórðarson, bónda og hreppstjóra í Kirkjuvogi og Guðrún Hreinsdóttir, bónda í Hjálm- holtskoti í Flóa. 1933, 3. júní gekk Þórður að eiga lieitmey sína, Sigríði Jónsdóttur bónda í Varmadal í Mosfells- sveit. Þeim varð þriggja barna auðið, eins sonar og tveggja dætra. Auk þessara barna, eignaðist Þórður son, nokkrum árum fyrir giftingu, sem leit dagsins ljós í Kaupmannahöfn 4. september 1927. Sá sonur lians lærði prentiðn í Edduprentsmiðju, en starfar nú í Litmyndum í Hafnarfirði. Þórður var mikill gleðskaparmaður á yngri árum, ekki sízt þar sem danssamkomur voru haldnar. Þá var hann tíma í Lúðrasveit Reykjavíkur. Eftirlifandi ástvinum hans votta ég innilega sam- úð. Jón ÞórÖarson. 22 prentarinn:

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.