Nýi tíminn


Nýi tíminn - 06.03.1958, Side 4

Nýi tíminn - 06.03.1958, Side 4
ip.WJJ s. -KZXXiXSX. O. 'SXKSX ‘XKX *JCXivX*XX,OÁ xvvíwr 4) — NÝI TlMINN — Fimmtudagur 6. marz 1958 Ljótunnar8tððum, 4. febrúar 1958 Jón minn góður. Ég verð víst að reyna að rífa mig upp úr letinni og eenda þér nokkrar línur, þó ekki væri til annars, en að þakka þér hlýjar kveðjur, er þú sendir mér í Þjóðviljan- um 30. f.m. og biðja þig jafn- framt að koma til skila sams- konar þökkum til þeirra Sig- urðar og Péturs. Og mér er sönn ánægja, að því að fyrir- gefa ykkur allt það sem þið hafið ofsagt um mig, því ég veit að það var í góðu skyni gert . . . Nóg um það. • Engin góð hugsun Þá er þar til máls að taka er frá var horfið í mínu síð- asta bréfi, er skrifað var á hvítasunnudag í vor er leið, en þar mun hafa verið sagt frá vígslu kirkjunnar, marg- umræddu. Um kirkjuna er reyndar ekkert meira að segja; annað en það að í hana voru sett ljós nú fyrir jólin, fleiri en tölu verði á komið. Skort- ir nú ekkert á hennar búnað annað en sómasamlega upplút- un. Ekkert er trúarlífi manna jafn háskalegt og seta í lcöld- um kirkjum. Efnishyggja og kommúnismi, sem prestarnir eru alltaf að stagast á og segja að séu að grafa undan trúnni komast þar ekki í neinn samjöfnuð. Engin góð Ihugsun getur komizt að, því svona innvortis og með sjálf- um sér gerir maður ekki ann- að en bölva kuldanum. Það fer fyrir manni eins og karlinum sem var áminntur um að ’hugsa eittlivað gott þegar hann lá fyrir dauðanum. En hann svaraði í fullri auðmýkt: Það vantar svo sem ekki að ég sé alltaf að reyna það, en það fer bara allt til and- skotans jafnharðan aftur. • Sumarið er enn á miðjum vetri Það væri freistandi, að fara nokkrum orðum um veðrið í sumar leið. En það er búið að segja svo mikið um það i fréttapistlum útvarpsins og vafalaust í blöðum líka, að ég sleppi því að mestu. Vil aðeins taka það fram að þetta bless- aða sumar, varð hið hagstæð- asta og elskulegasta sumar sem ég hefi lifað og maður minn- ist þess með þakklæti við hvert hneppi sem maður ber fram á jötur og garða fyrir skepnur sínar nú í vetur. Sumarið er enn á miðjum vetri lifandi veruleiki, sem opinberast í hverri heystæðu. • Og svo komu lömb- in í haust Strax upp úr göngum í haust voru flestir verkfærir og skrif- andi menn sveitai’innar sendir vestur á fjörðu til að kaupa lcmb. Þeir voru kallaðir fjár- kaupmenn. Þeir höfðu með sér reizlur og gjarðir, merki- spjöld og frumbækur og fleira dót, til notkunar við starfið, aulc héraðsráðanautarins, sem átti að hjálpa þeim að velja hrúta. Svo voru lömbin flutt á bíl- um, jafnóðum og þau voru keypt, og sett í girðingar. Bíl- arnir lcomu á öllum tímum sól- arhringsins, og síminn hringdi á öllum tímurn sóíarhringsins, þvi alltaf var verið að spyrja eftir bílum, ráðstafa hvar losa skyldi í það og það skipti, og hvert halda skyldi næst. Á ótrúlega skömmum tíma var öllu þéssu lokið. En þá var eftir að skipta fengnum milli væritanlegra fjáreigenda. M Kindur til sálu- bótar Svo var gimbrunum skipt, eftir mjög flóknum og marg- brotnum reglum, sem undirrit- aður kann engin skil á. Nokkru síðar var svo hrútunum skipt, eftir enn flóknari og marg- brotnari reglum og að viðstödd- um tveim sérfræðingum, fjár- eigendum til aðstoðar, svo að allt mætti verða sem jafnast og enginn þyrfti annan að öf~ unda. Og nú eru öll hús full af sauðkindum, svo sem áður var. Og aftur erum við farnir að tala um kindur okkur til sálu- bóta, svo sem við höfðum áð- ur gjört og svo sem gjörðu rekssögur af Hermanni. Einn hafði séð hana elta hesta uppi á Trékyllisheiði. Annar hafði séð hann stökkva yfir bát og sá þriðji hafði séð hann bera við himin uppi á Árnestindi, einn morgim, þegar sögumað- ur reis úr rekkju og gáði tii veðurs. En þó mun ekki hafa verið sagt frá því afrelci Hermanns, sem frægast hefur orðið og engst mun halda líkamlegu at- gervi hans á lofti, en það var þegar hann sneri niður Skál- holtsvíkurnautið. Eann ég svo ekki fleiri tiðindi að herma, af mannfagnaði þessum, en þau, er nú hafa sögð verið. • Allt ríkisstjóminni að kenna! Ég var að velta vöngum yfir írá Skúla á Ljótunnarstöðum m sattökindur, sáluhjálp, kosningar, sjáSís- morS ÍJjéivaraar og gervihnefff feður okkar og afar, langafar og forfeður í ótal ættliðu. • Hugulsemi þökkuð Það bar til tíðindá á sumri síðasta, að hóf eitt niikið var haldið norður í sýslu, að stað þeim er heitir að Sævangi, til minningar um það, að Her- mann Jónasson hafði orðið sex- tugur, veturinn áður. En liann er sem kunnugt er fæddur á jóiunum, eins og Jesús Krist- ur. Sá sem þetta ritar var að vísu ekki staddur á þessari samkomu og kann þaðan því fá tíðindi að herma. Þó hefur liann haft spurnir af að þarna hafi verið góður og mikill mannfagnaður. Færðu héraðs- búar Hermanni að gjöf mál- verlc af Ströndum eftir Kjarval, sem liann að vísu var ekki þá farinn að mála, en það mun þó hafa komið í leitirnar, því fyrir jólin sendi Hermann öll- um húsráðendum í kjördæmi sínu jólalcort, hvar á var þrykkt mynd af þessu máí- verki KjarvaÍS, og þakkar und- imtaður fyrir sitt leyti jæssa liugulsemi ráðherrans. • Sneri niður Skál- lioltsvikuniauílð í þessu liófi voru að sjálf- sögðu margar ræður fluttar, þungar og alvöruþrungnar framan af, en léttust er líða tók á hófið, en þó fyrst að marki er bændur norðan Tré- kyllisheiðar tóku að segja af- jafnt í offorsi Ólafs Thórs, drýldni Bjama Ben., slétt- kembdri sjálfsánægju Gunnars Thóroddsens, sem í innihalds- lausu gaspri ótíndra Heimdell- inga. Ég skal hreinskilnis- lega játa, að ég hefi aldrei get- að skilið, hversvegna mennim- ir láta svona. Ég held að hjá þessu fólki hljóti að leynast alveg jafnmikill andlegur ves- aldómur og úrræðaleysi og hjá okkur hinum og að þeir hafi í raun og veru ekkert annað fram yfir okkur en peningana margir hverjir. Hitt er mér þó emi óskiljanlegra, að fátækt og innanmagurt fólk skuli taka þetta gaspur hátíðlega. • Alveg blygðunar- laust En það þurfti ekki lengi að bíða skýringar á kosningasigri íhaldsins. Formaður Alþýðuflokksins lýsti því yfir í útvarpi eftir kosningar, að því er virðist alveg blygðunarlaust, að tals- verður hluti af kjósendum þess flokks hefði kosið íhaldið af ótta við það að andstæðingar þess gætu ekki komið sér sam- an um að stjórna Reykjavik. Þokkalegur vinstri flokkur að tarna....... . 'Enn furðulegri var þó yfir- lýsing sú er formaður Þjóð- varnarflokksins, gaf við sama tækifæri. Sigur Sjálfstæðisflokksins, var vinstri flokkunum að kenna. Öánægðir vinstri menn kusu íhaldið til þess að láta í ljósi reiði sína í garð rík- isstjórnarinnar. því um daginn hvernig stæði x því mikla veraldargengi, sem íhaldið átti að fagna við ný- afstaðnar bæjarstjórnarkosn- ingar. Og eiginlega komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri allt ríkisstjóminni að kenna. Þetta fólk, sem nú hef- ur kosið með íhaldinu í fyrsta sinni, telur sig hafa orðið svo fínt og innvortisfeitt, í tíð nú- verandi stjórnar að það getur ekki verið þekkt fyrir, að kjósa annan flokk en íhaldið. Annars ætla ég ekki að segja neitt ljótt um íhaldið að þessu sinni. En mig langar til að minna á einn Ijótan vana, sem íhaldið hefur tamið sér og ég á ákaflega bágt með að um- bera. • Bemt samband við guð almáttugan í 'öHum áróðri þess og póli- tískri boðun kemur fram næst- um yfirmannlegt steigurlæti, sem þó er ekki rökstutt á nokkurn hátt. íhaldið er alviturt, algott, berandi hag alira fyrir brjósti, en þó hafið yfir allt og alla, annað en sjálft sig og það er eini stjórnmálaflokkurinn á ís- landi, sem liefur beint samband við guð almáttugan, og kemur það sennilega upp úr kafinu, innan tíðar, að engir.v, getur oiöið sáluhqlpinn á þessu landi, nema fyrir náð íaaldsins. • Steigurlæti og offors Þetta steigurlæti opinberast © Afrek .Yaldimars En hvers vegna þurftu þeir að kjósa íhaldið, til þess að lýsa reiði sinni? Var ekki fyrir í landinu einn frómur og ráð- vandur vinstri flokkur saklaus og óflekkaður. Mig minnir, að sá flokkur liafi verið til og nefndi sig Þjóðvamarflokk Is- lands. En sú varð þó ekki raun- in á. Að sögu Valdimars Jó- hannssonar dugði ekkert minna fj’rir óánægða vinstri menn þ.e. óánægða þjóðvarnai’menn, en að hefnast á sjálfum sér og kjósa erkióvin þess málstaðar, sem þeir segjast berjast fyr- ir, brottfarar hersins. Og er þar skemm"* !>f nfS segja, að ■tta er isú langmesta vitleysa sem ég hefi heyrt velta upp úr nokkrum manni. Og það er dálaglega af sér vikið hjá Valdimár Jóhannssyni að drepa af sér heilan stjórnmálaflokk, \ svo skömmum tíma, sem raun hefur á orðið. Var vitur- lega mælt hiá Hermanni Jónas- syni, er hann lét þess getið við fyrrgreint tækifæri að kosningarnar sýndu að vinstri menn yrðu að þoka sér betur saman. • Nokkur huggun í fásinninu Sérstaklega er þó ánægjulegt fyrir mig að heyra þetta, því þetta hefur í stuttu máli verið inntak þeirrar lífspeki, sem ég hef verið að innræta Hermanni undanfarin tíu ár. En hvað er þá um stjórn Hermanns Jónas- sonar að segja, þau tæp tvö ár sem hún hefir starfað? Eg er svo ókunnur gangi mála, þar syðra, að ég þori ekki að mynda mér ákveðna skoðun um þetta né setja fram svar við spumingunni. En hitt hefur verið mér nokkur hugg- un í fásinninu, að stoku sinn- um hefi ég heyrt þjóta vonzku- lega í tálknum íhaldsins, — og ég hefi tekið það sem tákn þess, að stjórnin hefði þó að minnsta kosti uppi einhverja tilburði um að rækja hlutverk sitt á mannsæmandi hátt. © Fékk ekkert brennivín Eg tel víst að stjómin háfi gert margar vitleysur, og látið margt ógert sem hún átti að gera. En fólkinu í landinu hefur liðið þolanlega vel, að undan- skildum þeim fáu hræðum, sem taka út þjáningar á sálinni vegna þess að þeir em í stjóm- arandstöðu. En ég hef ekki heyrt annars getið, en að þeir sem aðrir hafi haft nóg að borða og drekka, utan hvað Ólafur Thórs fékk ekkert brennivín hjá Hermanni, þegar hann heimsótti ríkisstjórnina 17. júní síðastliðinn. • Ekkert getur réttlætt það En ég get ekkí skilizt svo við ríkisstjórnina, svo að ég nefni ekki eina af syndum hennar. Það er stór synd, heimskuleg synd og háðuleg í þokkabót. Stjórni hefir svikizt um að framkvæma vilja Alþingis frá því í marz 1956 um brottför hersin3. Ekkert það liefur gerzt á alþjóðlegum vettvangi, sem réttlætt geti þessi svik. Allt sem ég hefi heyrt svikum þess- um til afsökunar, er ekki annað en tyllirök og tilbúiiar ástæður, svo barnalegt hjal, að maður hlýtur að roðna af blygðan yfir því að menn sem sitja í trúnaðarstöðum skuli gera sig að viðundri. Það eru og verða óhrekjan- iegar staðreyndir að her og allt það dót sem honum fylgir verður okkur til leíðinda og allskonar ófarnaðar í friði, en til tortímingar í ófriði. Af tvennu illu hefði þó verið skárra að gefa enga yfirlýsingu hér um árið, það hefði þá ekki verið frá neinu að hlaupa, en gefa þá yfirlýsingu, sem gefin var og hlaupa svo frá henni. Með liinu síðarnefnda gerum við okkur að viðundri og at- lilægi meðal allra þjóða, jafnt austan tjalds sem vestan. a Þó að meri það sé brún Loksins eftir langa mæðu og mikið sálarstríð hefur Banda- ríkjamönnum tekizt að senda sitt fyrsta gervitungl út í himingeiminn. Þetta er að vísu sívalningur, en hnöttur heitir það eigi að siður á máli út- varpsins okkar, sennilega er svo að orði komizt um þetta fyrirbrigði alstaðar vestan tjalds. Og þegar maður fer að velta fyj’ir sér þessu nýja hugtaki rúmfræðinnar, sívalur hnöttur, eða hnöttóttur sívalningur, minnist maður allt í einu þess er Páll Ólafsson kvað: Vakri Skjóni liann slcal lieita, hoiium mun ég nafnið veila, þó að meri það sé brún. Vonandi tekzt Bandarilcja- mönnum að senda svo marga sívalninga út i liimingeiminn, til mótvægis rússneskum geim- | lmöttum, að ráðamenn hér á | voru landi, Islanai, komizt að ! þeirri niðurstöðu, að ffiðar- horfur á jörðu niðri, hafi skán- að svo að hættandi sé á það að senda herinn úr landi. Skúli Guðjónsson,

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.