Nýi tíminn - 24.09.1959, Page 1
VI TIMINN
jTimmtudagiir 24. septcmber 1959 — 18. árg. — 31. tölublað.
Frambnðstísti Alþýðubanda
lagsins í Reykjavík
AlþýðubandalagiS hefur ákveðiö framboðslista sinn í
Reykjavík við alþingiskosningarnar 25. okt. n. k. Var
listinn samþykktur einróma á fundi fulltrúaráðs Alþýðu-
bandalagsins s.l. fimmtudagskvöld, og einnig samþykkt-
ur einróma á fundum Sósíalistafélags Reykjavíkur og
Málfundafélags jafnaðarmanna á föstudagskvöld.
Framboðslisti Alþýöubandalagsins í Reykjavík er
þannig skipaður:
1. Einar Olgeirsson,
alpingismaður
2. Alfreð Gíslason,
læknir
3. Eðvarð Sigurðsson,
ritari Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar
4. Margrét SigurðarcLóttir,
frú
5. Jónas Árnason,
rithöfundur
6. Guðgeir Jónsson,
formaður Bókbindarafé-
lags íslands
7. Snorri Jónsson,
formaður Félags járniðn-
aðarmanna
8. Margrét Auðunsdóttir,
formaður Starfsstúlkna-
féjaasins Sóknar
9. Vilborg Dagbjartsdóttir,
kennari
10. Kristján Gíslason,
verðlagsstjóri
11. Jón Tímótheusson,
sjómaður
12. Guðrún Árnadóttir,
frú
13. Halldóra Danívalsdóttir,
iðnverkakona
14. Friðbjörn Benónísson,
kennari, form. Félags
gagnfræðaskólakennara
15. Stefán O. Magnússon,
framkvœmdastj. Sam-
vinnufél. Hreyfill
16. Sigvaldi Thordarson,
arkitekt
17. Adda Bára Sigfúsdóttir,
veðurfrœðingur
18. Guðmundur Jónsson,
verzlunarmaður
Missýning?
Um miðja síðustu viku töldu
tvær telpur, er voru við berja-
tínslu 'í hrauninu sunnan við
Hafnarfjörð, sig hafa fundið
þar mannsiík í hraunskúta, en
ekki munu þær þó hafa aðgætt
fundinn náið, því að þær urðu
skelfingu lostnar og tóku til
fótanna. Ekki var lögreglunni
í Hafnarfirði gert aðvart ura
þennan atburð fvrr en á laug-
ardag og var þá þegar hafin
leit eftir tilvísun þriðju telp-
unnar. er verið hafði með hin-
um í berjamónum en ekkert ó-
vanalegt séð. Tuttugu manna
leitarflokkur úr Hafnarfirði og
Reylcjavík þaulkannaði svæðið
þarna i kring á laugardag og
sunnudag, en fann ekkert.
Taldi fulltrúi rannsóknarlög-
reglunnar, er blaðið átti tal við
hann í gær, að hér hlyti að
hafa verið um missýningu að
ræða hjá telpunum.
19. Eggert Ólafsson,
verkamaður
20. Kristján Guðlaugsson,
málari
21. Hannes M. Stephensen,
form. Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar
22. Þórarinn Guðnason,
lœknir
23. Katrín Thoroddsen,
læknir
24. Halldór Kiljan Laxness,
rithöfundur.
'-rp
íiur IrJandi til viiræina
Sjú Enlæ, forsætisráðherra Kína, hefur sent Nehru,
forsætisráðherra Indlands, bréf og leggur þar til aö Kín-
verjar og Indverjar jafni landamæradeilur ríkjanna.
Sjú Enlæ segir að það sé á-
lit sitt að Indverjar og Kin-
verjar hljóti að geta náð sam-
komulagi um landamærin með
vinsamlegum samningum, og
þar til slíkir samningar séu
gerðir sé bezt að landamærin
verði óbreytt eins og þau eru
nú.
Einnig segir í bréfinu að við-
sjár á landamærunum myndu
hverfa þegar í stað, ef ind-
vereka stjórnin drægi til baka
það herlið, sem hún hefur
flutt tií landamæranna og af-
létti þeim hervöldum, sem hún
hefur lýst yfir í landamærahér-
uðunum.
í bréfi sínu minnir Sjú Enlæ
á ásóknir inn á landsvæði Tí-
bets frá Indlandi, meðan Bret-
ar réðu þar völdum.
Tass-fréttastofan í Sovétríkj-
unum gaf nýl. út tilkynningU!
þar sepi skorað er á Kínverja
og Indverja að jafna landa,-
mæradeilurnar þannig að bæði
ríkin mættu vel við una.
f tilkynningunni segir að
fréttir um átök á landamærum
Kína og Indlands hafi af frétta-
mönnum vesturveldanna verið
notaðar til þess að auka á
spennuna i alþjóðamálum og til
að spilla fyrir samkomulagi á
fundum Krústjoffs og Eisenho-
wers sem hefjast innaa
skamms.
Bráðabirgðalög nm óbreytt búvöru-
verð - fram vfir kosningar
EmsfœSur skrlpaleikur SjálfstœSisflokksins: heimtar
samfimis hœrra vero og lœgra verS á landbúnaSarvörum
Ríkisstjórnin hefur gefið út bráöabirgðalög sem kveða
svo á að landbúnaðarverð skuli haldast óbreytt — fram
yfir kosningar eöa nánar tiltekið til 15. desember.
Jafnframt hefur Sjálfstæðisflokkurinn gefið út yfir-
lýsingu þar sem hann mótmælir þessari ráðstöfun. Lýsir
hann yfir því að bændur hefðu átt aö fá 3,18% verð-
hækkun en rétt hefði verið að borga þá veröhækkun
niður — fram yfir kosningar! Kveðst flokkurinn munu
leggja til á næsta þingi — eftir kosningar — að bændur
fái bætur fyrir „það tjón sem þeir af þessum sökum
verða fyrir“.
Alþýðuflokkurinn segist setja
bráðabirgðalögin til að koma
í veg fyrir áframhaldandi víxl-
hækkanir kaupgjalds og verð-
lags fram yfir kosningar
Hins vegar er hér aðeins
um bráðabirgðalausn að ræða,
og sá vandi er látinn bíða fram
yfir kosningar að finna fram-
búðarlausn á þessum vanda.
Loddaraleikur íhaldsins.
Vert er að vekja sérstaka
athygli á framkomu Sjálfstæð-
isflokksins í þessu máli, en hún
hefur verið m\3 algerum end-
emum. Sjálfstæðisflokksmaður-
inn í hópi neytenda í verðlags-
nefndinni bar fram rökstuddar
tillögur um að afurðaverð ætti
að laékka, og hafði um það fullt
samráð við flokksforustuna sem
lýsti fullu samþykki við stefnu
hans. Sjálfstæðismaðurinn í
hópi framleiðenda í verðlags-
nefndinni hélt því fram að af-
urðaverð ætti að hækka; einuig
hann ha.fði um afstöðu sína
fullt samráð við flokksforust-
una sem samþykkti einnig
stefnu hans. Sjálfstæðismaður-
inn í hópi neytenda hæt.ti síðan
störfum — með samþykki
flokksforustunnar — til að
mótmæla því að FramleiSslu-
ráð landbúnaðarins gæti riftað
gerðum verðlagsnefndarinnar.
Sjálfstæðismennirnir í Fram-
leiðsluráðinu halda því hins
vegar fram — með samþykki
flókksforustunnar — að þeir
liafi heimild til að ákveða út-
söluverðið samkvæant eigin
mati. Þegar allt er komið í ó-
efni samþykkir Sjálfstæðis-
flokkurinn svo gagnvart bænd-
um að þeir eiga að fá 3,8%
hækkun — og gagnvart neyt-
endum að verðið skuli haldast
ðbreytt með niöurgreiðslum!
Ósvífnari loddaraleikur hefur
varla sézt i íslenzkum stjórn-
málum, og er þá mikið sagt.
Bráðabirgðalögin.
Nýja tímanum hefur borist svo-
hljóðandi tilkynning frá land-
búnaðarráðherra um hin nýju
bráðabirgalög;
„Forseti íslands hefur í dag,
að tillögu landbúnaðarráðherra
sett bráðabirgðalög, samkvæmt
28. gr. stiórnarskrárinnar, um
verð landbúnaðarafurða.
í úrskurði forseta segir:
Landbúnaðarráðherra hefur
tjáð mér, að vegna sérstaks á-
greinings fulltrúa nevtenda og
framleiðenda hafi ekki tekizt að
ákveða söluverð iandbúnaðaraf-
urða á innlendum markaði á
þann hátt, sem lög m. 94/1947
um framleiðsluráð iandbúnaðar-
ins, verðskráningu, verðmiðlun
og' sölu á landbúnaðarvörum o.
fl„ gera ráð fyrir, Landbúnaðar-
ráðherra hefur ennfremur tjáð
mér, að til þess að tryggja efna-
hagsjafnvægi og atvinnuöryggi
í landinu þangað til Alþingi get-
ur fjallað um þessi mál að af-
stöðnum kosningum þeim, sem
fram eiga að fara 25. og 26.
október n. k., og meðan kaup-
gjald í landinu helzt óbreytt,
sé nauðsynlegt að verð landbún-
aðarafurða hækki ekki Fyrir því
eru hér með sett bráðabirgða-
lög, samkvæmt 28. gr, stjórnar-
skrárinnar, á þessa leið;
1. gr.
Heildsölu- og smásöiuverð það
á sauðfjárafurðum, mjólk og
mjólkurvörum, nautgripakjöti og
hrossakjöti, sem kom til fram-
kvæmda 1. marz 1959 samkvæmt
auglýsingu Framleiðsluráðs land-
búnaðarins 28. febrúar 1959, skal
gilda óbreytt á tímabilinu 1.
september til 15. desember 1959.
Sumarverð á kartöflum skal
niður falla eigi síðar en 25. sept-
ember 1959. Á tímabilinu frá því
að niðurfelling sumarverðs á sér
stað og til 15. desember 1959
skal gilda óbreytt heildsölu- og
smásöluverð það á kartöflum, er
kom til framkvæmda 1. marz
1959, samkvæmt auglýsingu
framfærsluráðs landbúnaðarins
28. febrúar 1959.
Sumarverð á gulrófum skal
niður falla eigi síðar en 25. sept-
ember 1959. Á tímabilinu frá
því að niðurfehing sumarverðs
á sér stað og til 15. desember
1959 skal gilda óbreytt heild-
sölu- og smásöluverð það á gul-
rófum, er kom til framkvæmda
22. september 1958, samkvæmt
auglýsingu framleiðsluráðs land-
búnaðarins 21. september 1958.
Heildsölu- og smásöluverð það
á eggjum, er kom til fram-
kvæmda 1. april 1959 samkvæmt
auglýsingu framleiðsluráðs land-
búnaðarins 31. marz 1959, skal
gilda óbrevtt á tímabilinu 1.
september til 15. desember 1959.
Útsöluverð mjólkur í pappa-
umbúðum má vera 20 aurum
hærra hver lítri heidur en út-
söluverð mjólkur á flösku.
3. gr.
Fara skal með mál út. af brot-
um gegn lögum þessum að hættí
opinberra mála, og- varða brot
sektum allt að 500.000.00 kr.,
nema þyngri refsing liggi við
samkvæmt öðrum lögum.
3 gr
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Landbúnaðarráðuneytið,
18. september 1959.“
)
Stéttarsamband bænda
mótmælir.
Þá hefur Nýja tímanum bor-
ist bréf frá stjórn Stéttarsam-
bands bænda til forsætisráð-
herra og segir þar svo um
bráðabirgðalögin: „Þessum að-
förum mótmælir stjórn Stéttar-
sambandsins harðlega og mún
hafa samráð við fulltrúa
bændasamtaka víðsvegar um
landið um það, hvernig við
skuli bregðast, ef svo fréklega
verður gengið á rétt bænda-
stéttarinnar eins og nú horf-
ir.“
Drengur meiðist
á höndum við
sprengingu
Sl. sunnudag varð það slys
að Villingavatni í Grafningi, að
12 ára drengur úr Reykjavík,
Jósef Ingólfsson, er var þar i
í sveit, meiddist allmikið á hönd
um, er dynamithvellhetta
sprakk í höndum hans. Hafði
hann verið að leika með fleiri
drengjum og þeir fundið hvell-
hettuna. Drengurinn var flutt-
ur á sjúkrahúsið á Selfossi, þar
sem gert var að sárum hans,
en taka varð framan af tveim.
fingrum. Sjúkrahússlæknirinn á
Selfossi sagði í gær, er blaðið
átti tal við hann, að drengur-
inn væri nú orðinn ferðafær og
mætti fara af sjúkrahúsinu.