Nýi tíminn - 24.09.1959, Blaðsíða 3
— — Fimmtudagur 24, september 1959 — NÝI TÍMINN — (3
Fnlltruar neytenda hætta störfnm
í verðlagsneínd landbúnaðarafurða
Meðon svo er ásfatt verSur afurSaverð ekkl löglega
ákveSiS nema meS nýrri lagasetningu
Samtök þau sem tilnefna fulltrúa fyrir hönd neytenda^
í verölagsnefnd landbúnaðarafuröa hafa nú ákveöiö aö
láta fulltrúa sína hætta störfum um sinn. Ástæön er sú
aö í undirréttardómi nýlega var komizt að' þeirri niöur-
stöðu aö FramleiÖsluráÖ landbúnaöarins hefði heimild
til aö rifta ákvöröunum verölagsnefndarinnar samkvæmt
eigin rriati og aö fulltrúar neytenda væru þannig rétt-
iausir viö ákvöröun á verðlagi landbúnaöarafuröa.
Krústjoffhjónin
og Eisenhow&r
Eisenliower Bandaríkja-
forseti situr á milli Krúst-
joff-hjónanna í aftursæt-
inu á opinni bifreið. Mynd-
in er tekin skömmu eftir
komuna til Bandar.íkjanna
og eru þau á leiðinni frá
fijigvelHnum til Washing-
ton-borgar, — Sjá frétt
Þjóðviljinn hefur áður s'kýrt
frá málavöxtum og þeir eru
einnig raktir í bréfum þeim
sem birt eru hér á eftir. En
ástand það sem upp er komið
eftir þessa ákvörðun neytenda
er mjög alvarlegt. Lögum sam-
kvæmt á verðlagsnefnd, sem
skipuð er þremur fulltrúum
framleiðenda og þremur fulltrú-
um neytenda, að ákveða grund-
völl landbúnaðarverðsins. Tak-
ist ‘henni ekki að ná samkomu-
lagi, er grundvöllurinn úrskurð-
aður af gerðardómi, þar sem
hagstofustjóri er oddamaður.
En með því að fulltrúar neyt-
enda eru hættir störfum er
þetta kerfi hrunið til grunna.
Er vandséð hvernig unnt sé
að ákveða landbúnaðarverð að
óbreyttu ástandi á löglegan
hátt, án þess að þing verði
kallað saman til þess að ganga
frá nýrri lagasetningu, eða án
þess að ríkisstjórnin setji
bráðabirgðalög.
Nýja tímanum .hefur borist
svohljóðandr fréttatflkynning
frá samtö'kum þeim sem til-
nefna fulltrúa í verðlagsnefnd-
ina:
„Samtök þau, er standa að
tilnefningu fulltrúa neytenda i
verðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða, þ.e. Alþýðusamband Is-
lands, Sjómannafélag Reykja-
víkur og Landssamband iðnað-
armanna, hafa undanfarið rætt
viðhorf þau sem skapast hafa
við dóm þann er kveðinn var
upp í bæjarþingi Reykjavíkur
18. ágúst s.l., í máli því er
fulltrúar neytenda höfðuðu
gegn Framleiðsluráði landbún-
aðarins, vegna verðlagningar
dilkakiöts haustið 1958.
En svo sem kunnugt er, varð
niðurstaða dómsins sú, að
Framleiðsluráði var talið heim-
ilt að leggja á sérstakt verð-
jöfnunargjald vegna dilkakjöts
sem selt er á erlendum mark-
aði. Fulltrúar neytenda áfrýj-
uðu dómi þessum til Hæsta-
réttar og má vænta niðurstöðu
hans innan skamms.
Samtökin líta dóm þennan
mjög alvarlegum augum og
telja grundvöll þann sem sam-
starf neytenda og framleiðenda
í verðlagsnefndinni hefur
byggzt á brostinn, verði dómur-
inn staðfestur. Meðan ekki fæst
endanlega úr því skorið hvert
vald Framleiðsluráðsins er í
þessu efni, álíta samtökin ó-
kleift að eiga þátt að störfum
verðlagsnefndarinnar.
Á fundum stjórna samtak-
anna í gær, var samþykkt ein-
róma að leggja fyrir fulltrúa
samtakanna í verðlagsnefnd-
að taka ekki frekari þátt
í störfum nefndarinnar að svo
stöddu. Var landbúnaðarráð-
herra tilkynnt þessi ákvörðun
með bréfi dags. í dag, sem
fylgir hér með í afriti.
F.h. Alþýðusambands íslands
Óskar Hallgrímsson.
F.h. Sjómannafélags Reykja-
vikur
Sigfús Bjarnason.
F.h. Landssambands iðnað-
armanna.
Bragi Hannesson“.
Bréfið til landbúnaðarráð-
herra er svohljóðandi:
„Svo sem ráðuneytinu mun
kunnugt, hefur um eins árs
skeið verið uppi ágreiningur
milli fulltrúa neytenda og full-
trúa framleiðenda í verðlags-
nefnd landbúnaðarafurða um
valdsvið Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Málavextir eru í
stuttu máli þeir sem nú skal
greina:
Eftir að verðlagsnefndin hafði
á s.l. ári gengið frá verð-
lagsgrundvelli landbúnaðaraf-
urða fyrir verðlagsárið 1/9
1958 — 31/8 1959 gerðist það,
að Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins bætti á heildsöluverð dilka-
kjöts í I. verðflokki verðjöfn-
unargjaldi kr. 0,85 pr. kg til
jöfnunar milli kjöts seldu á
innlondum markaði og þess
kjöts, sem áætlað var að selja
erlendis. Þessu mótmæltu full-
trúar neytenda sem óheimilu
og kröfðust þess, að verðjöfn-
unargjald þetta yrði fellt niður.
Þar sem Framleiðsluráðið hafði
mótmæli þessi að engu, höfð-
uðu fulltrúar neytenda, í sam-
ráði við samtök þau er að til-
nefningu þeirra standa, mál á
hendur Framleiðsluráði land-
búnaðarins, með stefnu útg.
11/11 1958, og kröfðust þess,
að viðurkennt yrði með dómi,
að Framleiðsluráðinu væri ó-
heimilt að leggja umrætt verð-
jöfnunargjald á.
Með dómi, upp'kveðnum í bæj-
arþingi Reykjavíkur hinn 18.
ágúst s.l., var Framleiðsluráð-
ið sýknað af þessari kröfu.
Fulltrúar neytenda ákváðu þeg-
ar í stað að áfrýja dómi þess-
um til Hæstaréttar og er mál-
ið þar nú til meðferðar,
Samtök vor líta svo á, að
með dómi þessum, ef staðfestur
verður, sé grundvelli þeim, sem
þátttaka fulltrúa neytenda í
verðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða hefur byggzt á, gjörsam-
lega burtu svipt, og að ókleift
sé fyrir fulltrúa neytenda, með-
an undirréttardómi þeim, er að
framan getur, ekki er lirundið,
-<t>
að taka þátt í störfum verð-
lagsnefndarinnar.
Vér höfum því í dag lagt
fyrir fulltrúa vorn í verðlags-
nefnd landbúnaðarafurða, að
taka eigi frekari þátt í störf-
um nefndarinnar að svo stöddu.
Ákvörðun þessa munum vér
taka til nýrrar yfirvegunar,
þegar fyrir liggur niðurstaða
Hæstaréttar í umræddu máli.
Virðingarfyllst,
Til landbúnaðarráðherra,
hr Friðjóns Skarphéðinssonar,
Reýkjavík".
<?>-
Moskvú/
■$>
Skólastúlluir færa Krústjoff blóm á flugvellinum í Moskvu,
er hann la.gði upp í ferðalag sitt til Bandaríkjanna.
Þing Ungmennafélags Islands:
Enga samninga vi8 önnirríki er
gæfy 12 mílna fis
gma
Þing Ungmennafélags íslands, sern haldiö var dag- Burt með herinn!
ana 5. og 6. þ.m. lýsti yfir einróma vilja aö stjórnarvöld-
in geri enga þá samninga viö erlend ríki er skert gætu
yfirráöarétt íslendinga yfir 12 mílna fiskveiöilögsögu.
Þingiö taldi sjálfsagt aö slíta stjórnmálasambandi viö
Breta og endurskoöa afstööu íslendinga til Atlanzhafs-
bandalagsins. — Þá ítrekaöi það kröfuna um brottför
hersins.
„Þingið fagnar því að þjóðin
er samstillt og einhuga um út-
færslu fiskveiðilandhelginnar í 12
mílur og þakkar forustu og
framkvæmd öllum sem hlut eiga
að máli.
Sérstaklega þakkar þingið á-
höfnum varðskipanna æðruleysi
og þrautseigju við erfiðar að-
stæður.
Þingið lýsir megnri andúð á
aðförum brezkra herskipa í
íslenzkri fiskvciðilandhelgi og
undrast og fordæmir afstöðu
brezkra stjórnarvalda til lít-
illar nágrannaþjóðar, sem á
lífshagsmuni í veði.
Þingið treystir því, að is-
lenzk sjórnarvöld haldi fast
á málstað þjóðarinnar og geri
enga samninga við önnur riki,
sem skert gætu umráðarétt ís-
lendinga yfir 12 mílna fisk-
veiðilandhelginni.
Þingið telur sjálfsagt að
slíta stjórnmálasambandi við
Breta og endurskoða afstöðu
íslands til Nato, ef þeir halda
áfram ofbeldisaðgerðuin í ís-
lenzkri fiskveiðilandhelgi".
„Þingið minnir á afstöðu
undanfarinna sambandsþinga
gegn liersetu í landinu og
skorar á íslcnzk stjórnarvöld
að vinna ötullega að því, að
herinn hverfi úr landi sem
fyrst“.
Sr. Eiríkur J. Eiríksson var
endurkjörinn sambandsstjóri og
Skúli Þorsteinsson kennari vara-
sambandsstjóri, . Jón Ólafsson
ritari, Ármann Pétursson gjald-
keri, Stefán Ólafur Jónsson
meðstjórnandi og varamenn þeir
Lárus Halldórss. og Gestur Guð-
mundsson. — Gísla Andréssyni.
er baðst undan endurkosningu.
voru þökkuð góð störf.
Þingið gerði fjölmargar sam-
þykktir, og verður sagt frá þeiro
síðar.