Nýi tíminn - 24.09.1959, Blaðsíða 12
Krustjoff flytur afvopnunartillögur Sovétríkjanna á Allsherjarþinginu:
Alger afvopmm á 4 árumHerlið
leyst upp, öll stórvirk vopn eyðilögð
Alþjóðlegt eftirlit með afvopnun ;em framkvíemt verði í þrem áföngum
í ræðu sinni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
í gærdag, flutti Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna
tiilögur stjórnair sinnar um almenna afvopnun í heim-
íuum. Gert ej:- ráð fyrir algerri afvopnun allra landa.
Verða allir herir bannaðir og sömuleiðis öll vopn nema
handbyssur sem lögreglumenn bera til að vernda öryggi
borgaranna.
Þegar Krústjoff hóf ræðu sína'
á Allsherjarþinginu, var áheyr-
endasalurinn þéttskipaður.
Krústjoff ræddi í upphafi ræðu
sinnar um nauðsynina á bættri
sambúð Sovétríkjanna og Banda-
ríkjanna og samstöðu þeirra um
aigera f fvopnun í heiminum.
Hann sagði að þjóðir heims
hafi aldrei í sögunni bundið eins
miklar vonir við neina stofnun
eins og Sameinuðu þjóðirnar.
Þessi alþjóðastofnun hefði þó
enn ekki náð sínu mikilvægasta
takmarki, sem væri trygging
friðarins í heiminum þannig að
komandi kynslóðir væru losaðar
við óttann af yfirvofandi styrj-
öld.
Afvopnun í þrem
áföngum
Samkvæmt tillögum Krústj-
offs verður hin almenna afvopn-
un framkvæmd á fjórum árum í
þrem áfóngum. f fyrsta áfanga
verði herstyrkur Bandaríkjanna,
Sövétríkjanna og Kína takmark-
aður við 1,7, millj. manna hjá
hverri þjóð. Um leið verði há-
mark herstyrks Bretlands og
Frakklands 650 þús. manns.
í öðrum áfanga afvopnunar-
innar sé allt erlent herlið flutt
brott úr þeim löndum þar sem
erlent herlið hefur aðsetur. All-
ar herstöðvar, sem einstakar
þjóðir hafa í öðrum löndum
skulu lagðar niður. Þá verði
allir herir lagðir niður.
í þriðja áfanga skulu kjarn-
orkuvopn og eldflaugavopn eyði-
lögð, svo og öll önnur stórvirk
vopn, svo sem herskip skriðdrek-
ar, fallbyssur og herflugvélar.
Þá verði öll hermálaráðuneyti,
varnarmálaráðuneyti og herskól-
ar lagðir niður, og bannað verði
að veita fé til hernaðarþarfa.
Alþjóðlegt eftirlit
í tillögum Krústjoffs er einn-
ig gert ráð fyrir að komið verði
á fót eftirlitsstofnun, sem allar
þjóðir eigi fulltrúa í. Þessi stofn-
un verður að hafa ótakmarkaða
möguleika til að geta framkvæmt
strangt eftirlit með afvopnuninni
um allan heim, bæði úr lofti og
á láði. Hún verður að hafa vald
til að kanna hvaða stað sem er
í öllum löndum til þess að sjá
um að ákvæðum afvopnunarinn-
ar verði fylgt.
Krústjofí sagði, að ef vestur-
veldin myndu hafna tillögunum
um almenna afvopnun nú þegar,
væri Sovétstjórnin reiðubúin að
fallast á sérstakt samkomulag
um fyrstu aðgerðir til afvopnun-
ar. Nefndi hann í því sambandi
fækkun herliðs í Evrópu undir
eftirliti, hiutlaust belti í Evrópu,
griðasáttmála milli Atlanzhat's-
ríkjanna sagði Krústjoff að hann
hefði ástæðu til að vona að ís
kalda stríðsins væri tekinn að
bráðna milli Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna, en það ylti á
miklu fyrir velferð alls mann-
kyns, hvernig sambúð þessara
tveggja voldugustu þjóða heims
væri.
Ræðu Krústjoffs var útvarp-
að á 35 tungumálum frá New
York í gær. Þegar hann kom til
aðalstöðva Sameinuðu þjóðanna
tóku á móti honum Hammar-
skjöld framkvæmdastjóri S.Þ. og
einnig forseti Allsherjarþingsins.
Hcimsótti frú Roosevelt
í gær ók Krústjoff með föru-
neyti sínu um 100 km. vegalengd
til bústaðar Roosevelt fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, sem
lézt í íok heimsstyrjaldarinnar.
Ekkja forsetans Elenore Roosevelt
Framboðslistar Alþyðubanda
lagsins í fsmm k|ördæmum
Alþýðubandalagið nefur nú ákveðið öll framboð sín
viö kosningarnar í næsta mánuði. Var gengið endanlega
írá þeim flestum í síðustu viku. Útsýn hefur áður birt
fiamboðin í Suðurlandskjördæmi ^g á Norðurlandi
eystra; á forsíðu blaðsins í dag er listi AJþýðubandalags-
:'ns í Reykjavík, en hér fara á eftir framboðin í hinum
kjördæmunum fimm sem þá eru eftir.
Reykjaneskjördæmi
Listi Alþýðubandalagsins í
Reykjaneskjördæmi er ekipaður
þessum mönnum;
1. Finnbogi Rútur Valdi-
marsson, alþingismaður,
Kópavogi
2. Geir Gunnarsson, skrif-
stofustjóri, Hafnarfirði
3. Vilborg Auðunsdóttir,
kennari, formaður Verka-
kvennafélags Keflavíkur
og Njarðvíkur
4. Sigurbiörn Ketilsson,
skólastjóri, Ytri-Njarðvík
5. Magnús Bergmann,
skipstjóri, Keflavík
6. Ólafur Jónsson, bœjar-
fulltrúi, Kópavogi
7. Lárus Halldórsson,
skólastjóri, Brúarlandi
8. Ester Kláusdóttir, frú,
Hafnarfirði
9. Konráð Gíslason, lcomp-
ásasmi&ur, Seltjarnarnesi
10. Hjörtur B. Hélgason,
kaupfélagsstj., Sandgérði.
Yesfuriandskjördæmi
Listi Alþýðubandalagsins i
Vesturlandskjördæmi er skipað-
ur þessum mönnum:
1. Ingi R. Helgason, liéraðs-
dómslögmaður, Rvík.
2. Jenni Ólason, verzlunar-
maður, Stykkishólmi.
3. Pétur Geirsson, mjólkur-
fræðingur, Borgarnesi.
4. Jón Zophonías Sigríks-
son, sjómaður, Akranesi
5. Ragnar Þorsteinsson,
kennari, Reykjaskóla.
6i Skúli Alexandersson,
oddviti, Hellissandi.
7. Jóhann Ásmundsson,
bóndi, Kverná, Grundar-
fir&i.
8. Þórður Oddsson, héraðs-
lœknir, Kleppjárns-
reykjum.
9. Kristján Jensson, form.,
verkalýðsfélagsins Jök-
uls Ólafsvík.
10. Guðmundur Böðvarsson,
skáld, Kirkjubóli.
Vesffjarðakjördæmi
Listi Alþýðubandalagsins í
Vestfjarðakjördæmi er skipað-
ur þessum mönnum:
1. Hannibal Valdimarsson,
alþingismaður, forseti
Alþýðusambands ísl.
Reykjavík.
2. Steingrímur Pálsson,
umdœmisstjóri, Brú,
Hrútafirði.
3. Ásgpir Svanbergsson,
bóndi Þúfum, Norður-
ísafjarðarsýslu.
4. Ingi S. Jónsson, ritari,
verkalýðsfél. Brynju.
Þingeyri.
5. Játvarður Jökull Júlíus-
son oddviti, Miðjanesi,
Reykhólasveit, Baröa-
strandarsýslu.
6. Haraldur Guðmundsson,
skipstjóri, ísafirði.
7. Davíð Davíðsson, bóndi,
Séllátrum, T álknafirði.
8. Guðsteinn Þengilsson
héraðslœknir, Suðureyri.
Framhald á 11. síöu.
Krústjoff og Eisenliower á Andrew-flugvellinum fyrir utan
Washington, skömmu eítir að flugvél Krústjoffs liafði lent þar.
íanaslys a
anrep a
18 ára gamall piltur varð fyrir bifreið
Banaslys af völdum umferðar varð á þjóðveginum í
Mosfellssveit iaust fynr miðnætti aðfaranótt laugardags-
ms.
Slysið varð um kl. 23,50 á
laugardagskvöldið móts við
Hamrahhð í Mosfellssveit, er
bifreiðin R-9486 rakst þar á 18
ára gamlan pilt, Sigurð Runólf
Bjarnason, Hverfisgötu 85 hér
í bæ. Sigurður var fótgangandi,
á leið ,til bæjarihs frá Hlégarði,
og gekk vinstra meg:n á vegin-
um. Bifreiðin var einnig á leið
til bæjarins. Hefur ökumaður
I hennar borið að hann hafi ekki
orðið mannsins var fyrr en bif-
reiðin átti ófarna 2—,3 metra
að honum, en skyggni var þá
slæmt. Tókst bifreiðarstjóranum
ekki að forða slysi. Við árekst-
urinn kastaðist maðurinn upp á
vélarhlíf bílsins en skall síðan
í veginn. Var sjúkrabifreið þeg-
ar til kvödd og hinum slasaða
ekið á .dysavarðstofuna, en það-
an á Landakotsspítala, þar sem
hann lézt síðar um nóttina.
bandalagsins og Varsjárbanda-
lagsins, samning um að koma i
veg fyrir skyndiárásir og afnám
herstöðva erlendis.
Kína fái sæti hjá S.Þ.
Krústjoff kom víða við í ræðu
sinni. M.a. sagði hann að Peking-
stjórninni bæri skýlaus réttur
til að eiga fulltrúa hjá Samein-
uðu þjóðunum en ekki Formósu-
stjórninni, sem væri afturganga
löngu dauðrar afturhaldsstjórn-
Krústjoff ræddi um nauðsyn
þess að hætt verði að beita
hótunum og' ofbeldi í alþjóðavið-
skiptum. Ilann sagði að nýlendu-
stefnan hefði nú runnið sitt
skeið. Nýlenduveldunum. sem
arðrænt hefðu nýlendurnar, bæri
skylda tii að hjálpa þeim efna-
hagslega til' þess að komast á
hærra þróunarstig.
Um heimsókn sína til Banda-
tók á móti gestunum og stóð við
hlið Krústjoffs, er hann lagði
blómsveig á gröf forsetans.
AðaSfundur
ÆF á Siglu-
firði
Aðalfundur Æskulýðsfylk-
ingarinnar á Siglufirði var
haldinn í gærkvöld, þriðjudag.
Formaður var kosinn Hinrik
Aðalsteinsson, en aðrir I
stjórn eru: Kolbeinn Frið-
björnsson, Margrét Þórodds-
dóttir, Hlynur Óskarsson,
Elísabet Jónsdóttir, Kristinn
Konráðsson og Aron Guð-
mundsson.
Mikill áíiugi er ríkjandi hjá
Fvlkingarfélögum liér á Sig'u-
f:rði að vinna að sem mest-
um s’gri Alþýðubandalagsins
í komandi kosningum.
NÝI TÍMINN
Fimmtudagur 24. september 1959 — 18. árg —- 31. tölublað.