Nýi tíminn


Nýi tíminn - 05.11.1959, Blaðsíða 7

Nýi tíminn - 05.11.1959, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 5. nóvember 1959 — NÝI TÍMINN — .(7 Ekki veit eg hvort Ásgeir Blðndal Magnússon hefur lagt sér orðabækur til munns í æsku, eins og sagt var um annan læniómsmann íslenzk- an, en hitt er mér kunnugt um að hann hefur lagt meiri e'tund á lestur orðabóka en flestir menn hérlendis. En sá lestur hefur ekki verið sama kyns og þeirra sem opna orðabækur til þess eins að leita að merkmgu ákveðins orð', heldur er Ásgeir einn þeirra sönnu málfræðinga sem lesa orðabækur sér til fróð^eiks og skemmtunár. Ávoxt þe-sarar iðju þekkj- um v'ð orðabókarmenn af margra ára reynslu, og þó kemur þekking Ásgeirs á orðaforða í lenzkrar tungu okkur sífekt á óvart, engu síður en frcð'eikur hans um .ætterni orðá og tengsl við önnur mál, nálæg og fjar- skyld. ' Hítt er þó engu minna undrunarefni hversu víðles- inn og margfrcður Ásgeir •er í a’mennri málfræði, hversu ve1 honum hefur tek- izt að fylgjast með í því heizta sem gerzt hefur í þeim fræðum cíðustu áratugina. Slíkt er engan veginn auð- velt á okkar afskekkta landi, og því merkilegra sem hann lauk háskólanámi á óvenju- lega skömmum tíma og átti ■ekki kost á framha’dslærdómi við erlenda háskóla. En Ás- geir var ekki aðeins orðinn víðlesinn í málfræði áður en hann hóf háskólanám, hann var orðinn fjölfróður á mörg- um öðrum sviðum, og skólun í marxískri díalektík hafði tamið meðfædda rökvísi hans í vísir.iialegri hugsun og vinnubrögðum. Og honum er .gefin sú náttúra sem er hverjum fræðimanni ómiss- andi, að hætta a’drei að læra, missa ekki áhugann á nýjum kenningum og uppgötvunum, láta ekki forpokast. Sá maður sem þannig er gerður hefur ekki farið húsa- villt þegar hann réðst til istarfa við Orðabók háskól- ans, og við sem gerst þekkj- um til á þe'.m stað vitum að handaverk Ásgeirs þar eru orðin drjúg, og mun það þó sjást betur síðar. Nokkrar fræðilegar ritgerðir hefur hann einnig b'rt á síðustu árum í innlendum og erlend- um tímaritum og safnritum, og í þeim lagt athyglisverðan skerf til íslenzkrar orðsögu. ' Þó mun hitt meira sem. hann á í fórum sínum, og er gott til að vita að nú standa von- ir til að hann fái betra færi en áður til að vinna úr því efni sem hann hefur dregið /saman. Ásgeir er ekki einn þeirra sérfræðinga sem loka sig inni í filabeinsturni eigin rann- • sókna; hann hefúr ávallt ver- ■ ið ósinkur á að miðla öðrum af fróðleik sínum á hverju .sviði sem var, án þess að ■ hugsa um sjálfs sín hag. • Ýmsir hafa leitað fræðslu ' • á vinnuctofu orðabókarinnar á liðnum:árum, stundum um ■ olíklegustu hiuti. Þar hefur ' Ásgerr löngum orðið einna 1. drjúgastur í svörum og sí- ' fellt búinn . að leysa hvers manns vanda.; Stúdentar og ý. ungir ; fræðinaenn hafa . löng-, um átt vísa hjá honum § ‘M. i É ista á Siglufirði og varð síðan einn helzti forystumaður sam- bandsins. Sama haust var Kommúnistaflokkur íslands einnig stofnaður og honum helg- aði Ásgeir mikið starf. Fjórði áratugurinn var ís- lenzkri æsku erfiður. Efnahags- kreppan. atvinnuleysið, skort- urinn og pólitískar ofsóknir settu merki sitt á kynslóðina sem þá var að vaxa úr grasi. En hún öðlaðist einnig þá bar- áttugleði og þá sósíalistísku lífs- skoðun, sem varð aðalsmerki hennar. Ásgeir Blöndal deildi kjör- um við íslenzka alþýðuæsku þessa erfiða tímabils, og eins og hún kom hann sterkari út úr því. Því lauk í raun og veru með hinum örlagaríka einingar- sigri íslenzkra sósíalista 1938. þegar Æskulýðsfylkingin og Sósíalistaflokkurinn voru stofn- uð. Á stofnþingi Æskulýðsfylk- ingarinnar var Ásgeir annar tveggja framsögumanna um sameiningarmál ung'ra sósíalista; og varð síðan um mörg ár einn bezti forystumaður hennar. í Sósíalistaflokknum hefur Ásgeir gegnt fjölda mikilvægra trúnaðarstarfa, m. a. verið í framboði til Alþingiskosninga. Sérstaklega hefur hann innt mikilsverð störf af hendi á þeirri kynslóð, sem upplifir, skilur og skapar merkustu aldahvörfin i sögu mannkyns- ins, er hin nýja jörð sósíalism- ans rís iðagræn úr ragnarökum sökkvandi auðvaldsskipulags. Og ég óska þér, kæri Ásgeir, góðrar heilsu og svo langra líf- daga, að þú megir upplifa end- anlegan sigur þess málstaðar, er þú varðir svo glæsilega fyr- ir þrjátíu árum „á sal“. Eggert Þorbjarnarson. Flokkur þinn, Sósíalista- flokkurinn, óskar þér allra heilla á fimmtuKsafmælinu. Flokkurinn þakkar þér fyr- ir að liafa í þrjátíu ár beitt þínum skarpa hug og þínu skýra máli í þjónustu hreyf- ingar vorrar, sósíalismans, marxismans á íslandi Við minnumst þeirrar ótrauðu baráttu, þegar brjóta átti vaxtarbrodd okkar ur.gu marxistísku hreyfingar og jafnf nemendur í skólum sem sjúklingar . á sjúkrahúsum voru hraktir burt ineð harð- vítugustu ofsóknum, Aið þökkum þér þrotlaust starf í æskulýðshreyfingunni, í kosn- ingabaráttum í uppfeld’sstarf- semi, allt það, sem þú hefur gert, einnig með ritum þ:n- um, greinum og þýðingum, til löndal Magn ússon Fimmfugur hvatningu til framtakc og vinsamlega gagnrýni á það sem betur mátti fara, og ég þykist vita að margir muni minnast lians á morgun með þakklæti fyrir margvíslega aðstoð og uppörvun. Þeim sem þekkja áhuga Ásgeirs á almennum félago- málum mun ekki koma á ó- vart að hann hafi látið fé- lagsmál íslenzkra málfræð- inga til sín taka. Hann var einn þeirra helzti hvatamað- ur þess að stofnað var Félag íslenzkra fræða, var fyrsti formaður þe:s og hefur tekið ötullega þátt í störfum þess frá upphafi, enda má segja að félagið búi enn að þeirri gerð sem það fékk á for- mannsárum hans. Ég hef hér aðeins minnzt á þá hlið á Ásgeiri sem ég þekki bezt eftir meira en tíu ára samctarf. Hitt veit ég að af honum hefði mátt gera marga menn ef hann hefði einbeint hæfileikum sínum að öðrum sviðum. En Orðabók . háskólans og íslenzk málvís- indi mega hrósa happi að hafa hlotið slíkan liðsmann. Og því skal afmæliisba minu óskað þess sem bæði honum og fræðunum mun að haldi koma: síaukins orðsifjafróð- leiks og sívaxandi fræðiaf- reka. Jakob Benediktsson. Á fimmtugsafmæli Ásgeirs Blöndals Magnússonar verður mér hugsað til myndar, sem ég hefi geymt í huga mínum- í • nær þrjátíu ár. ..... Það -var ,,á sal“ í 'Menntaskól- . anurii ,á Akureyri veturinn 1929—30. Kvatt hafði verið til umræðufundar um þjóðmál og í ræðustólnum stóð einmitt Ásgeir Blöndal, þá um tvítug't, og mælti fyrir málstað sósíal- ismans með þeirri aðlaðandi djörfung og rökvísi, sem honum er eigin. Næsta haust — þegar dyr menntaskólans höfðu lokazt Ásgeiri vegna stjórnmálaskoð- ana hans — sat hann stofn- þing Sambands ungra kommún- sviði fræðslu og upplýsinga um sósíalismann, enda verið um langt skeið einn menntaðasti marxisti á íslandi, jafnframt því að vera hámenntaður í ís- lenzkri tungu. Ég lít á það sem lán að eiga Sjálfum hefur Ásg'eiri hlotn- azt sú hamingja að tilheyra félaga mann á borð við Ásgeir Blöndal Magnússon. að samferðamanni og baráttu- þess að efla þroska þeirrar alþýðu, sem leiða skal þjóð- ina fram til sósíalisinans. Megi íslenzk málvísindi og marxistísk frelsisbarátta ás- lenzkrar alþýðu enn lengi njóta krafta þinna. Má ég svo að síðustu þakka þér þrjátíu ára vináttu og samstarf og óska þér og þínuin alls vel- farnaðar. EINAiR OLGEIRSSON. Fjársöfnun fyrir arabiska flóttamenn ÞaS eru taldar vera 48 milljónir heimilislausra manna í heiminum og á sunnudaginn kemur gangast prestar hér í Reykjavík, fyrir forgöngu biskups, fyrir fjársöfn- un, og mun henni verð’a variS til arabiskra flóttamanna í Palestínu. Sigurbjörn Einarsson biskup skýrði fréttamönnum frá þessu nýlega en íslenzka kirkjan hef- uj: á undanförnum árum, fyrir forgöngu þávefandi biskups, Ásmundar Guðmundssonar, lagt nokkurn skerf til hjálpar- starfs meðal flóttamanna, og hefur það verið gert á vegum Lútherska heimssambandsins, en það starfrækir m.a. stærsta spítala í Litlu-Asíu, þar sem 11 þús. manns fá aðhlynningu að meðaltali á ári. Einnig hef- ur það 6 heilsuhæli í Jórdan- iu og 5 í Sýrlandi. í Palestínu eru 900.000 Arabar taldir á vonarveli. I flótta- mannabúðunum þar fæðast ár- lega um 25 þús. börn heimilis- lauss fólks. Héðan voru i fyrra sendir 11 ballar af skreið og nokkuð af lýsi og kom hvorttveggja sér vel, þyí eggjahvítuskortur. í fæðu þessa fólks hefur verið sérstakt varjiamál lengi. Nú þurfum við að halda vel í horfi með þetta framlag, sagði Sigurbjörn Einarsson biskup. Allir sem eru aflögu- færir eru ótvírætt skyldir til að létta undir með þessu ó- gæfusama fólki, sem af ýmsum á tæðum hefur misst heimili sín og hefur hvergi aðstöðu til að afla sér lífsviðurværis af sjálfsdáðum — það er hvergi rúm fyrir það í okkar stóra heimi, sagði biskup. Bickup kvað samtök kirkj- unnar manna m.a. reka 48 vinnuhæli fyrir flóttafólk. Sem fyrr segir eru taldar vera 45 milljónir heimilislausra manna í heiminum, þar af 18 millj. í Evrópu. Fjársöfnun verður hér í Reykjayík við messur • á sunnudaginn, og prestar úti á landi munu einnig gangast fyr- ir camskonar fjársöfnun. Bisk- upcskrifstofan tekur ennfremur móti framlögum þeirra og dag- blöðin munu einnig gera það. Kommúnistar ráða lífi stjórn- arinnar Tage Erlander, forsætisráð- herra Svíþjóðar, sagði í Stokk- hólmi í gær, að ríkisstjórn sósialdemókrata í Sviþjóð myndi standa eða falla með tillögu sinni um að leggja á nýjan veltuskatt, sem nemur 4 af hundraði. Erlander sagði, að það ylti á kommúnistum á þingi, hver örlög stjórnarinnar yrðu í þessu máli. Stjórnin yrði ekki felld ef kommúnistar greiddu tillögu hennar atkvæði eða sætu hjá við atkvæðagreiðsl- una. Ef kommúnistar greiddu hinsvegar atkvæði gegn tillög- unni um veltuskatt, .væru .dag- ar stjórnarinnar taldlr ,

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.