Nýi tíminn - 02.06.1960, Qupperneq 12
SLITIÐ FATÆKTARFJOTRANA!
Molið kreppukerfi
ofturhaldsins
í áhrifamestu og síðustu ræðu útvarpsumræðnanna
írá Alþingi á þriðjudagskvöld eggjaði Einar Olgeirsson
verkamenn, bændur, útvegsmenn, menntamenn og milli-
stéttir landsins aö taka höndum saman og mola kreppu-
kerfi afturhaldsins, slíta af þjóðinni þá fátæktarfjötra,
sem verið er aö hneppa fólkið í.
Ræða Einars var öll hvöss
og markviss ádeila á ríkis-
stjórnina og stjórnarstefnuna,
flutt af e’dmóði og þrótti, eins
og ferskur gustur eftir smá-
sálarlegt varnarnudd og af-
sökunartilburði ráðherra og
etjórnarþingmanna. Varnir ráð-
herranna voru nær eingöngu
eftir gömlu formúlunni: Aðrir
eru ekki betri en við, aðrir
hafa líka gert ljótt! —
Hrakti Einar og hinir ræðu-
menn Alþýðubandalagsins, Al-
freð Gíslason og Ásmundur
Sigurðsson, ásakanir og afsak-
anir stjórnarliðsins hverja af
annarri.
Einar Olgeirsson lauk ræðu
sinni á þessa leið:
Uauðadómur kreppukerfisins
Auðvaldið sagði alþýðu .ís-
lands stríð á hendur með gengis-
lækkuninni og þrælalögunum 19.
febrúar.
Alþýða íslands hefur nú
svarað stríðsyfirlýsingu auð-
valdsins á ráðstefnu Alþýðu-
sambandsins 30. maí. Ein-
róina hefur íslenzk verka-
lýðsstétt, hver og einn ein-
asti fulltrúi hennar, ákveðið
að láta til skarar skríða um
kauphækkanir.
Dauðadómurinn yfir kreppu-
kerfi afturhaldsins er íelldur.
Afl alþýðunnar
Og í þeim 30 þúsund verka-
mönnum og verkakonum sem
skipa Alþýðusamband íslands
býr sá kraftur, er getur fullnægt
dóminum. Og með þeim standa
í anda allir þeir launþegar, sem
enn eru sviptir verkfallsrétt-
um.
íslenzkir launþegar eru þrír
fjórðu hlutar þjóðarinnar. Eng-
inn gerða.rdómsfjötur auðvalds-
ins, hvorki 1942 né síðar, hefur
staðizt það afl. Og kreppukerfi
Gunnars og Gylfa mun heldur
ekki standast því snúning.
Útvegsmenn dæma
„viðreisnina“
En það er ekki aðeins alþýð-
an, sem hefur kveðið upp dauða-
dóminn yfir þessu kreppukerfi.
Landssamband íslenzkra útvegs-
manna hefur gert það líka, svo
ótvírætt sem verða má. Það er
því komið svo, að vinnandi
stéttirnar vilja ekki una þessu
þrældómskerfi lengur og aðal-
atvinnurekendastéttin lýsir því
yfir, að hún geti ekki framar
gert út undir þessu kreppu-
kerfi, hún hafi verið blekkt til
þess að gera út í vetur með lof-
orðum sem síðar voru svikin.
Svona gersamlega gjaldþrota er
þessi aumi uppvakningur frá
liðnum eymdartímum.
En blindingjarnir í ríkisstjórn-
inni ætla sér auðsjáanlega ekk-
ert að sjá, sitja lengur en sætt
er, og flýja svo kannski eins
og Syngman Rhee til Banda-
ríkjanna í leynireikninga þegar
þeir hrökklast frá.
Verkamenn, bandur, útvegs-
menn, menntamenn og millistétt-
ir! Takið höndum saman um all-
ar byggðir þessa lands. Skerið
upp herör til sjávar og sveita.
Mölvið þetta kreppukerfi!
Slítið af ykkur þá fjötra fá-
tæktarinnar sem verið er að
hneppa ykkur í og ve.rða sárari
með degi hverjum.
Steypið aí'iurhaldinu áður
en það hefur leitt at\’innu-
leysið og neyðina yiLr þjóð-
Lna og eyðilagt öruggustu
markaði hennar, gTafið
gnmninn undan efnahags-
legu sjálfstæði Islands!
Munið að Island er nógu
rílJi til þess að öllum börn-
um þess geti liðið vel og
gæti verið margfalt ríkara,
ef því væri stjórnað af viti
og réttlaAi.
Fram til sóknar og sigurs,
íslenzk alþýðustétt!
Hin skaðsamlegu
áhrii ráðstaíananna
Ásmundur Sigurðsson var
annar ræðumaður Alþýðu-
bandalagsins í útvarpsumræð-
unum á þriðjudagskvöld og
ræddi hann einkum efnahags-
málin.
1 byrjun ræðu sinnar svaraði
Ásmundur hinni sóðalegu árás
Birgis Finnssonar á Lúðvík
Jósepsson, en Birgir lét sig
hafa það að nota síðustu ræðu
kvöldsins á mánudaginn til
þokkalegra árása á Lúðvík.
Sagði Ásmundur að einmitt
vegna fortiðar Alþýðuflokksins
í landhelgismálinu myndi mörg-
um finnast að ræða Birgis hefði
verið líkust því að flokkur
hans reyndi að „verma sitt hræ
við annarra eld, og eigna sér
bráð sem af hinum var felld“.
Hrakti Ásmundur fáránlegt
áróðurstal Birgis um fram-
komu Lúðviks í landhelgismál-
inu.
í aðalkafla ræðunnar rakti
Ásmundur efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar, og ,,frelsið“
í viðskiptunum, sem lofað
væri, og sýndi fram á skað-
samleg áhrif þeirra ráðstafana
á atvinnulíf og efnahagsmál ís-
lenzku þjóðarinnar. Tók hann
þar einkum til athugunar að
fljótt mundi koma fram sam-
dráttur í atvinnu og fram-
leiðslu ef ríkisstjórninni tækist
ætlunin um niðurskurð aust-
urviðskiptanna, — þeirra
markaða sem bezt hefðu dugað
Islendingum á undanförnum
árum.
Hlutleysið eitt sðm-
ir fullvalda smáríki
Ríkisstjórnin íer í „ósjálfræði'1 eftir bandarískri forskrift um kjaraskerðingu
Við eigum að segja okkur úr Atlanzhafsbandalaginu.
Með því mæla öll rök. Við eigum að vísa hinum erlenda
lier úr landi. Það er okkur lífsnauðsyn, ef til vopnaðra
átaka kæmi. Við eigum að lýsa yfir hlutleysi landsins.
Hlutleysið eitt sómir fullvalda smáþjóð.
Á þessa leið mælti Alfreð
Gíslason einn af ræðumönnum
j Alþýðubandalagsins í útvarps-
umræðunum s.l. þriðjudag, en
hann sýndi fram á tengslin
milli aðgerða ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálum og áhrifa
bandarískra stjórnarvalda og
Atlanzhafsbandalagsins á nú-
verandi stjórnarflokka.
★ Veglegt hlutverk
Hlutlaust Island á veglegu
hlutverki að gegna meðal þjóða
sagði Alfreð ennfremur. Óháða
afstöðu sína notar það í þágu
sátta og friðar og til stuðnings
þeim smáþjóðum, sem rang-
sleitni eru beittar. Hlutlaust Is-
land ástundar vináttu við allar
þjóðir.
Alfreð lauk ræðu sinni á
þessa leið: „Við skulum berjast
gegn allri erlendri íhlutun um
mál okkar og afmá þann smán-
arblett, sem herstöðvar og
hernaðartildur er á þjóð okkar.
Þokum til hliðar þeim mörmum
og þeirri ríkisstjórn, sem
telja hlýðni við Atlanzhafs-
bandalagið æðsta boðorð sitt“.
★ Er ríkisstjórninni
sjálfrátt?
I fyrri hluta ræðu sinnar
benti Alfreð á að hamfarir rík-
isstjórnarinnar við það að
koma á kjaraskerðingu væru
slíkar að mönnum i öllum
flokkum fyndist henni ekki
sjálfrátt. Sýndi hann fram á
með tilvitnunum og skýrri rök-
færslu að þetta ,,ósjálfræði“
væri einmitt erlend fyrirmæli,
sem bandarísk etjórnarvöld
gæfu og stjórnarflokkarnir
hefðu tekið að sér að fram-
kvæma andstætt þjóðarhags-
munum íslendinga.
Bandarísk stjórnarvöld eru
að þvinga upp á íslenzku þjóð-
ina forskrift í efnahagsmálum,
hina sömu cg þeir hafa þvingað
upp á leppstjórnir sínar í S-
Kóreu, Tyrklandi og víðar. Nú
rísa þær þjóðir gegn vinum
bandarísku forskriftanna og
reka hina bandarískt sinnuðu
stjórnmálamenn frá völdum,
enda er forskriftin eingöngu
miðuð við stórveldishagsmuni
Bandaríkjanna.
Áhugamál Bandaríkjastjórn-
ar hér á landi er að halda her-
stöðvum sínum, en það telur
liún í hættu ef Islendingar eru
velmegandi þjóð efnahagslega,
og því skal nú hafin kjara-
skerðing og ráðstafanir er
miða að efnahagslegu ósjálf-
stæði landsins.
Alfreð lagði áherzlu á fram-
komu Bandarikjanna, Bret-
lands og annarra Atlanzhafs-
bandalagsríkja í landhelgismáli
íslendinga, að þessi ríki hefðu
meira að segja þverbrotið
sáttmála Atlanzhafsbandalags-
ins með þeirri framkomu. Væri
það eitt næg ástæða til úrsagn-
ar úr hernaðarbandalaginu.
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii
iBankar og ráðu-f
fneyti í stað Inn-i
fflutningsskrifstJ
= f dag hættir Innflutn- =
= ingsskrifstofan störfum en E
= tveir bankar, Landsbanki £
= og Útvegsbanki, taka við =
= veitingu leyfa fyrir þeim =
= vörum og öðrum gjald- £
= eyrisgreiðslum, sem leyíi —
= þarf íyrir. að höfðu sam- E
= ráði við viðskiptamálaráðu- —
= neytið. ' £
íiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiiiiiniiii
Myndin var tekin í
Tryggvagötu á uppstign-
ingarda.g, er þrír ungir
piltar voru þar á ferð með
bát á kerru. Þeir voru að
koma frá höfninni, þar
sem þeir höfðu siglt á
bátnum góða stund.
Fjórði drengurinn á
myndinni (til liægri) kom
aðvífandi um það leyti
er ljósmyndarinn „smellti
af„ og vildi liafa =
liönd á bátnum, en það =
var litið óhýru auga af =
hinum, eins og sjá má.
(Ljósm. A.K.)
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiini iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
NÝI TÍMINN
aiaimtudagur 2. júní 1960 — 19. árgangur — 20. tölublað