Nýi tíminn - 14.12.1961, Qupperneq 9
«) — ÓSKASTUNDIN
★ ★ ★ ★
\
Myndasaga
yngstu
barnanna
i
★ ★ ★ ★
¥-¥•¥-¥•
Það var yndislegur
vormorgunn, og Gústi
greifingi fór í gönguför
um skóginn. Allstaðar
voru litlir dýraungar að
leika sér. Smámýs og
agnarlitlar kanínur léku
sér í sólskininu, í hreiðr-
Unum kvökuðu fuglarnir
og tveir kátir íkorna-
krakkar klifruðu upp og
niður tré. — Þetta er
alveg dásamlegt, hugsaði
greifinginn með sér. Hon-
um þótti svo vænt um
lítil börn. Þegar hann
kom heim, festi hann
skilti á útidyrahurðina
sína.
Hvað er nú þetta?
sagði Matti Héri, hérna
stendur: Fegdrðarsam-
keppni fyrir börn. Gústi
greifingi sagði honum að
hann hefði hugsað sér
að veita fallegasta barn-
inu í skóginum verðlaun.
— Ég ætla að biðja
íkornamömmu að baka
eina af ístertunum sín-
um góðu, og svo á Uglan
að vera dómari, hún er
svo vitur. Einhver sem
stóð á gægjum bak við
tré, andvarpaði, sleikti út
um og muldraði fyrir
munni sér; Æ, bara að
ég ætti nú krakka, mér
þykir svo góðar ístertur.
— Röddin var grunsam-
lega lík Rebba gamla.
Svo rann upp dagur-
inn, sem keppnin átti að
fara fram. Það var mik-
ið um að vera í eldhús-
inu hjá frú Kanínu.
Aumingja Pétur kanína
grét hástöfum, af því það
fór sápa í augun á hon-
um, en kanínumamma
þurrkaði honum í fram-
an með handklæði, og
sagði að nú yrði hann að
vera stór strákur. Ef þið
hagið ykkur vel vinnið
þið áreiðanlega verðlaun-
in, sagði hún og horfði
hreykin á kanínubörnin
sín fimm.
Langt, langt inni í
skóginum var frú Dádýr
að enda við að sleikja
litla kálfinn sinn svo
hann var tandurhreinn
og gljáandi. — Vertu
stilltur og prúður, litli
dádýrskálfurinn minn,
sagði hún. Hún horfði á
hann með aðdáun og
hvíslaði: Þú ert falleg-
asta barn, sem ég hef
séð.
Gullna skipið
Framhald af 3. síðu.
kné við fætur hennar og
spurði: Hvert vilt þú að
við förum, göfuga prins-
essa?
Út á mitt úthafið. Þar
er eyja, og á henni vaxa
runnar, sem eru hlaðn-
ir rauðum berjum, og
fuglamir syngja þar all-
an sólarhringinn. Toivo
lyfti sveifinni og þrýsti
með fætinum á hina
sveifina. Gullna skipið
hófst á loft og þaut yf-
ir láð og lög.
Brátt lækkaði það flug-
ið og lenti á miðri eyj-
unni. Toivo stökk niður
á jörðina og hljóp til að
leita að rauðu berjun-
um. (Fratnhald).
RITSTJÓRI: UNNUR EIRÍKSDÓTTIR — ÚTG.:
Stúlkan frá Snjólandinu
Eftir Sidonie M. Gruenberg
Fyrir langalöngu bjuggu
í Rússlandi bændahjón,
sem hétu Ivan og María.
Þau unnu hvort öðru
mikið og þau áttu marga
góða vini meðal nágrann-
anna, en það var eitt sem
skyggði á hamingju
þeirra. Þau áttu ekkert
litla snjótelpu, af Því við
gluggann og horfðu á
börnin nágrannanna leika
sér fyrir utan. Vetrardag
nokkurn stóðu þau við
gluggann á litla húsinu
sínu og horfðu á börnin
sem voru að leika sér i
snjónum. Þau veltust
þarna, köstuðu . hvort í
annað snjóboltum, og
sum voru að búa til snjó-
karla. Þá sneri Ivan sér
allt í einu að konu sinni
og sagði: Sjáðu hvað
bömin skemmta sér vel
við að búa til snjókarla.
Eigum við ekki að koma
út og búa til einn að
gamni okkar.
María svaraði: Ég hef
verið að velta þvi fyrir
mér, hvort við ættum
ekki heldur að búa til
litla snjótelpu, af því við
eigum nú engin börn.
Það er ágæt hugmynd,
sagði Ivan, og síðan tóku
þau að velta snjóboltum
og móta úr þeim stúlku-
líkan. Þau hafði svo lengi
dreymt um að eiga litla
telpu að þau lögðu alla
ástúð sína í þessa snjó-
ÞJÓÐVILJINN
mynd. Ivan bjó til dó-
litlar hendur og fætur, og
María mótaði undur fal-
legt barnshöfuð, augu,
nef, munn og hár úr snjó.
Síðan festu þau höfuðið
varlega ofan á snjólík-
anið og horfðu með að-
dáun á fallegu snjótelp-
una sína. Ekkert höfðu
þau augum litið svo fag-
urt, og aldrei höfðu þau
óskað eins heitt að eiga
dóttur.
Snjóstúlka litla, talaðu
við mig, sagði Ivan.
Já, talaðu, leiktu,
Framhald á 2. síðu.
4) — ÓSKASTUND
★ ★ ★ ★
¥■¥■¥■¥■
Myndasaga
yngstu
barnanna
¥•¥■¥■¥•
★ ★ ★ ★
1) Herra Fasan varð að
halda sig utanhúss, á
meðan konan hans þvoði
og greiddi börnunum
þeirra sjö. — Þið eruð
yndisleg, sagði hún. Eng-
inn í öllum skóginum á
svona falleg börn, það er
áreiðanlegt.
2) Einhver sást á sundi
úti á vatninu. Það var
Oturinn, með son sinn á
bakinu. — Haltu þér fast,
og vertu prúður og góður
drengur sagði Oturinn.
Þá færðu áreiðanlega
verðlaunin, það máttu
vera viss um. Ég veit að
þú ert langfallegasta
barnið.
3) Enheima ábóndabæn-
um var Kisa, og hún
hafði ekki hugmynd um
hvað var um að vera.
Þessvegna kvaddi hún
litla kettlinginn sinn
LITLA KISA
OG REBBI GAMLI
3)
eins og venjulega, og fór
að kaupa í matinn. Um
leið og hún var farin
læddist Rebbi gamli inn
til Litlu-Kisu. — Þykja
þér góðar rjómakara-
mellur? spurði hann og
tók upp lítinn bréfpoka.
— Mjá, mjá, það þykir
mér sannarlega, sagði
Litla-Kisa og eftir dálitla
stund hafði Rebba gamla
tekizt að lokka hana með
sér inn í skóginn.
4) Og nú hófst samkeppn-
in. Nákvæmiega klukkan
ellefu settíst Uglan í
dómarasætið, lét á sig
gleraugun og leit yfir
dýrin og fuglana sem
stóðu fyrir framan hana.
Uglan hafði íkorna-
mömmu sér til hægri
handar og Gústa greif-
ingja á vinstri hönd.
Stóra ístertan stóð fyrir
framan þau svo allir
gætu dáðst að henni;
Þegar allt var tilbúið
leiddu hinir stoltu for-
eldrar börnin sín fram.
4)
Fimmtudagur 16. desember 1961 —' 7. árgangur — 43. tölublað
— RITSTJÓRI UNNUR EIRÍKSDÓTTIR — ÚTG.: ÞJÓÐVILJINN
RJUPAN
Einu sinni boðaði Mar-
ia mey alla fuglana á
sinn fund. Þegar þeir
komu þangað, skipaði
hún þeim ,að vaða bál.
Fuglarnir vissu að hún
var himnadrottning og
mikils megnandi. Þeii
þorðu því ekki annað en
hlýða boði hennar og'
banni, og stukku þegar
út í eldinn og gegnum
hann, nema rjúpan. En
er þeir komu í gegnum
eldinn, voru fæturnir á
þeim öllum fiðurlausir og
sviðnir inn að skinni, og
svo hafa þeir verið síð-
an, allt til þefesa dags, og
hlutu þeir það af því að
vaða bálið fvrir Maríu.
En ekki fór betur fyrir
rjúpunni, sem var sú
eina fuglategund, sem
þrjózkaðist við að vaða
eldinn, því Maria reidd-
ist henni og lagði það á
hana, að hún skyldi
verða allra fugla mein-
lausust og varnarlausust,
en undir eins svo ofsótt,
að hún ætti sér ávallt
óttavonir nema á hvíta-
sunnu, og skyldi fálkinn,
sem fyrir öndverðu átti
að hafa verið bróðir henn-
ar, æfinlega að ofsækja
hana og drepa og lifa ai
holdi hennar. En þó lagði
María mey rjúpunni þá
likn, að hún skyldi mega
skipta litum og verða al-
hvít á vetrum en mógrá
á sumrum svo fálkinn
gæti þá frekar deilt hana
frá snjónum á veturna
og frá lyngmóunum á
sumrum. Þetta hefur ekki
úr skorðum skeikað né
heldur hitt, að fálkinn
ofsæki hana, drepi og éti,
og kennir hann þess ekki,
fyrr en hann kemur acf
hjartanu í rjúpunni, aS
hún er systir hans, enda
setur þá að honum sva
mikla sorg í hvert sinn,
er hann hefur drepið
rjúpu og étið hana til
hjartans, að hann vælir
ámáttlega lengi á eftir.
(Úr ísl. þjóðsögum.)!
Vísan hans Nonna
Kraftalítill enn þá er ég,
unnið get ég varla neitt;
pabbi minn er alltaf úti,
oft ég sé hún mamma’ er þreytt;
ég er enn þá ósköp stuttur
eins og kútur — rengla mjór;
einhvern tíma, ef ég lifi,
ætla ég samt að verða stór.
i
Sig. Júl. Jóhannesson.
Fimmtudagur 14. desember 1961 — NÝI TÍMlNN —$£