Nýi tíminn - 30.05.1963, Page 4
£ StÐA
NÝI TlMINN
Fimmtudagur 30. u«sl 1963
NÝI TÍMINN
Ctg. Sameiningarflokkur alliýðu — Sósialistailokkurinn.
— Vikaútgája Þjóðviljans. —
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Afgreiðsla Skólavörðustíg 19. — Reykjavík.
V erðkr.lOO.OOáári.
Grímulausir
Síðus'tu vikumar hefur grímunni verið svipt
svo gersamlega frá ásjónu Framsóknarflokks-
ins að svipmót leiðtoganna fær ekki dulizt nokkr-
um manni. Áróðursmenn flokksins höfðu þó lagt
í það þaulhugsaða vinnu að ganga frá gervi sem
vel mætti duga til þess að safna vinstrafylgi í
því skyni að semja við Sjálfstæðisflokkinn eftir
kosningar, eins og Bjarni Benediktsson orðaði það.
En gervið er orðið að tætlum einum. Þegar Tím-
inn var búinn að hrópa með stórum fyrirsögnum
að stefna Framsóknarflokksins í utanríkismálum
og stefna stjórnarflokkanna væru andstæður
neyddist blaðið til að játa það að Framsóknar-
flokkurinn væri „ekki síðri“ málsvari hernáms og
Atlanzhafsbandalags en stjórnarflokkarnir. Þegar
Tíminn var búinn að mæra hina skeleggu afstöðu
síná í landhelgismálinu lýsti hann að lokum yfir
því að - Framsóknarflokkurinn myndi standa við
nauðungarsamninginn við Breta um undanþágur
og afsal landgrunnsins á sama há'tt og stjórnar-
flokkarnir. Öll skrif Tímans um Efnahagsbanda-
lag Evrópu eru þögnuð eftir að mönnum er orðið
ljóst að ábyrgð forsprakka Framsóknarflokksins
er engu minni en ábyrgð stjórnarleiðtoganna, eins
og Jón Árnason fyrrverandi bankastjóri orðaði
það. Og hina raunverulegu afstöðu flokksforust-
unnar til viðreisnarinnar má marka af þeim um-
mælum Eysteins Jónssonar á síðasta flokksþingi,
að Framsókn muni sætta sig við að fá smávægi-
legar breytingar á viðreisninni, væntanlega til á-
bata fyrir fyrirtæki Framsóknarflokksins.
Viðbrögð Tímans
isjóna Framsóknarleiðtoganna á ekki að þur'fa
að dyljast nokkrum manni, og drættirnir eru
stöðugt að skýrast. Undanfamar vikur hafa verið
birfar hinar alvarlegustu staðreyndir um hernáms-
stefnuna, staðreyndir sem unnar eru af íslenzkum
sérfræðingum fyrir ríkisstjórnina og kippa ger-
samlega öllum röksemdum undan stefnu Sjálf-
stæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins í utanríkismálum. Þessi skýrsla er stór-
a'tburður, sem hver einasti landsmaður þarf að í-
huga af alvöru og einlægni, og hvarvetna í ná-
grannalöndunum myndi skýrsla af slíku tagi hafa
valdið gagngerum umræðum í öllum blöðum. En
hér þegja hinir sakbitnu hernámssinnar. Ög þögn
Tímans vekur sérstaka athygli vegna þess að for-
ustumenn Framsóknarflokksins bera ábyrgð á her-
námsstefnunni, en meginþorrinn af fylgismönnum
Framsóknarflokksins hefur ævinlega verið þeirri
stefnu andvígur. í engu máli hafa liðsoddar Fram-
sóknar leikið fylgismenn sína jafn grátt, og það
mega vera einkennilegir hernámsandstæðingar
sem láta hafa sig til þess að veita Framsóknar-
flokknum brautargengi eftir dauðaskýrsluna og
viðbrögð Tímans. — m.
m YERA ÍSLEND
Góðir áheyrendur.
Mér mun aldrei fymast sá
atburður, þegar Gylfi Þ. Gísla-
son menntamálaráðherra flutti
ræðu sína á aldarafmæli Þjóð-
minjasafnsins. Þama stóð hann,
æðsti embættismaður mennta-
mála, sjálfumglaður og pattara-
legur, og við honum blöstu
minjamar um lífsbaráttu Is-
lendinga í meira en tíu aldir,
þau eljuverk kynslóðanna sem
leiddu til þess að við gátum
endurreist sjálfstætt ríki á Is-
landi. Og ráðherrann lýsti yfir
því með sléttu og felldu orða-
lagi að sjálfstæðið væri einmitt
bezt geymt í Þjóðminjasafninu á-
samt hverskyns öðrum amboð-
um fornum, sem við heiðruðum
af skyldugri ræktarsemi en
þjónuðu engum tilgangi í nú-
tímaþjóðfélagi. „Bezta ráðið til
að efla sjálfstæði þjóðar er að
fóma sjálfstæði hennar". sagði
ráðherrann og hneigði sig. en
viðstaddir klöppuðu honum lof
í lófa.
Raunverulegt
vandamál
Því aðeins skiljum við þessi
ummæli ráðherrans á réttan
hátt, að við gerum okkur grein
fyrir þvi að hann er að fjalla
um raunverulegt vandamál,
viðfangsefni sem okkar kyn-
slóðir verða að útkljá með at-
höfnum sínum. Það er mikið
vandamál hvemig Islendingar
eiga að geta staðizt sem sjálf-
stæð þjóð. Hálærðir menn
hafa sagt að við búum á yztu
mörkum hins byggilega heims,
en hvað sem um það má segja,
erum við, næsta einstætt fyrir-
bæri í veröldinni; þjóðarkríli
sgm gæti rúmazt yið eina götu
í stórborg; og þjóðarframleiðsla
okkar á ári jafngildir tekjum
minniháttar atvinnufyrirtækis í
nágrannalöndunum. Hvemig á
svona örlítið samfélag að geta
tryggt þegnum sínum þá menn-
ingu og þau lífsgæði sem tækni
og vísindi nútímans bjóða upp
á? Þessa spurningu þurftu for-
feður okkar ekki að bera upp
við sig, þeir sem börðust fyrir
sjálfstæðinu og endurheimtu
það, því á þeirra tíð var hér
á íslandi bændaþjóðfélag, þar
sem hver sveitabær var heil-
steypt menningarleg og efna-
hagsleg eining, og heildarfjöldi
þeirra þurfti ekki að ráða hein-
um úrslitum. En spumingin
blasir við okkur sem nú lifum,
vegna þess að í nútímaþjóðfé-
lagi fer hinn samfélagslegi
þáttur stöðugt vaxandi. Við
þurfum að halda uppi fjölþættu
og flóknu atvinnulífi þar sem
fjármagnið þjappast saman, við
þurfum að tryggja fullkomið
skólakerfi fyrir þjóðina alla,
gróskufullt menningarlíf; og tii
þess að geta að okkar leyti
fylgzt með þróun tækni og vís-
inda þurfum við ærinn auð. Get-
um við þetta af eigin rammleik,
eða verðum við að hætta að
vera Islendingar ef við viljum
vera nútímamenn?
Ástæðan
Gylfi Þ. Gíslason og aðrir
forustumenn hemámsflokk-
anna þriggja svara þeirri
spumingu neitandi, hvort Is-
lendingar geti staðizt sem sjálf-
stætt samfélag á öld tækni og
vísinda. Ástæðan þarf ekki að
vera sú að þessa menn skorti
í sjálfu sér skilning á gildi
sögu okkar og menningar, held-
ur er það lífsskoðun þeirra
sem leiðir þá að þessari niður-
stöðu. Þeir trúa á auðvalds-
þjóðfélagið, þetta sundurvirka,
stjómlausa gróðakerfi sem ver-
ið er að reyna að rótfesta á ls-
landi með viðreisninni. En þeir
sjá jafnframt réttilega fram á
það, að slíkt kerfi getur aldrei
tryggt það til frambúðar að Is-
lendingar standi jafnfætis öðr-
um og stærri þjóðum í þróun
okkar tíma. Séum við litlir sem
heild, hversu aumkunarverðir
eru þá ekki einkaatvinnurek-
endur okkar, þótt þeir reyni að
belgja sig út hver í sínu homi.
Auðhringar stórveldanna geta
tekið tækni og vísindi og verk-
menningu í sína þjónustu, en
íslenzkir einkaatvinnurekendur
munu aldrei geta hagnýtt þekk-
ingu og tækifæri nútímans svo
sem nauðsynlegt er; og auk-
þess sem getuna skortir sýnir
framkoma þeirra við sérmennt-
aða menn á Islandi að þeir
hafa ekki einu sinni skilning til
að hagnýta sér það litla sem
þeir myndu þó ráða við. Engin
þjóð hefur jafn lítil efni á því
og við, að fjármununum sé só-
Magnús Kjartausson
að í skipulagslausa fjárfestingu
og hverskjms vanhugsað gróða-
brall, eins og Faxaverksmiðju
eða glerfjall, enda hefur reynsl-
an verið sú um langt skeið, að
þjóðartekjur vaxa hægar hér í
hlutfalli við fjárfestingu en í
nokkru öðru landi í veröldinni.
Eigi að vera stjórnlaust gróða-
þjóðfélag á Islandi hljótum við
að dragast aftur úr, eins og
Gylfi Þ. Gíslason lýsti á aldar-
afmæli Þjóðminjasafnsins, og
þjóðfélag sem dregst aftur úr
fær að sjálfsögðu ekki staðizt
til lengdar.
Við höfum fengið
frest
Lífsskoðun valdihafanna dug-
ir þannig ekki til að tryggja
sjálfstætt þjóðfélag á Islandi til
frambúðar, og þá skal sjálf-
stæðinu fómað fyrir lífsskoðun-
ina. Leiðin til þess að gera
okkur þátttakendur í þróun
umheimsins er þá sú einfalda
aðferð að láta umheiminn
gleypa okkur. Að þessu hefur
verið og er unnið markvisst,
með inngöngunni í Atlanzhafs-
bandalagið, með hemáminu,
með uppivöðslu bandaríska
sendiráðsins á Islandi, með
undanhaldssamningunum um
landhelgina, með viðreisninni
sem hefur þann tilgang að
samræma allt efnahagskeríi
okkar hinni stóru heild. Og ef
áætlun sú hefði staðizt sem
Sjálfstæðisflokkurinn. Fram-
sóknarflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn gerðu f ágúst 1961,
þegar þeir samþykktu allir þrír
að send skyldi umsókn um inn-
göngu í Efnahagsbandalag Ev-
rópu, yæri einmitt verið að
ganga frá innlimuninni þessa
dagana, þeir hefðu náð ninu
langþráða takmarki sínu. At-
vikin hafa hagað því svo að
við höfum fengið frest, en ef
innlimunarmenn halda afli sínu
í kosningum þeim sem fram-
undan eru mun fresturinn engu
breyta um áform þeirra.
Önnur lífsskoðun
Það er lífsskoðun valdhaf-
anna sem hefur knúið þá til
þess að kveða upp dauðadóm
yfir sjálfstæðu þjóðríki á Is-
landi. En það er til önnur lífs-
skoðun og Islendingar hafa
alltaf þekkt hana. Svona lítil
þjóð getur staðizt í stórum
heimi með samhjálp og sam-
vinnu, með því að menn leggi
saman krafta sína, en reyni
ekki að arðræna hver annan og
hreykja sér hver uppi á öðrum.
Allt það sem við höfum bezt
gert og miklumst af hefur ver-
ið unnið á þennan hátt á und-
anfömum áratugum. Allt það
stærsta í atvinnulífi okkar hef-
ur verið framkvæmt með sam-
eiginlegu átaki; sama er að
segja um menntakerfi okkar og
tryggingakerfi, rafvirkjanir,
samgöngur og hverskyns aðra
samfélagslega þjónustu. Þessir
einkaatvinnurekendur, sem nú
eru sagðir vera homsteinar
þjóðfélagsins og eiga að leggja
alla sameign þjóðarinnar undir
sig með svokölluðum almenn-
ingshlutafélögum, hafa í raun-
inni alltaf verið á framfæri rík-
isins og aldrei getað staðið á
eigin fótum stundinni lengur
nema hlaðið væri undir þá í sf-
fellu; það er sannarlega ekki
að furða þótt þeir telji sig
þurfa miklu stærri undir-
hleðslu.
Hólmgöngu-
áskorun
Við höfum þrátt fyrir allt
kunnað betur að vinna saman
en flestar þjóðir aðrar í ná-
grenni okkar, og þess vegna
hefur þetta örsmáa samfélag
getað þróazt eins og dæmin
sanna. En við þurfum að læra
að vinna miklu betur saman.
Þau stórfelldu þáttaskil i vís-
indum og tækni sem eru ein-
kenni okkar tíma og valda þvi
að ráðamennimir láta hug-
fallast vegna lífsskoðunar sinn-
ar, leggja okkur í staðinn þær
skyldur á herðar að sameina
orku okkar i ríkara mæli en
nokkru sinni fyrr, einbeita afli
okkar, læra að skipuleggja og
forðast sóun hins sundurvirka
gróðakerfis. Undur vísinda og
tækni eru engin líkaböng yfir
moldum íslenzks sjálfstæðis
heldur hólmgönguáskorun sem
okkur ber að mæta af fullri
djörfung. Þótt þjóðfélag okkar
sé lítið munum við í samein-
ingu einmitt geta hagnýtt upp-
götvanir okkar tíma til þess
að skipuleggja fyrirmyndar-
samfélag sem í fæstu þvi sem
máu skiptir þarf að vera eft-
irtiátur stórvelda og getur stað-
ið þeim framar á mörgum svið-
um.
íslenzkur
sósíalismi
Auðvitað eru uppi margvfs-
legar hugmyndir um það
hvemig við eigum að haga
slíkri samvinnu. Sjálfur er ég
sannfærður um, að ef okkur
auðnast að takast á við þetta
ánægjulega verkefni muni
reynslan fljótlega kenna meiri-
hluta þjóðarinnar að stefna að
því að framkvæma íslenzkan
sósíalisma, koma hér á sósíal-
istísku hagkerfi sem sé í sam-
ræmi við hinar sérstöku að-
stæður okkar, stjórnarkerfi sem
fullnægi hugmyndum okkar
sjálfra um lýðræði. mannhelgi,
félagslegt réttlæti og frjálsa
þróun lista, mennta og vísinda.
Engin þjóð á að eiga jafn auð-
velt með það og Islendingar að
framkvæma sósíalisma á eðli-
legan og sjálfsagðan hátt; Is-
lendingum er jafnréttistilfinn-
ingin í blóð borin; við erum
félagshyggjumenn, þótt okkur
sé einnig gefin sú óstýriláta
reisn einstaklingsins sem fær-
ir hverju þjóðfélagi lit og líf.
Hugsjónin um sjálfstætt ís-
lenzkt þjóðfélag og hugsjónin
um íslenzkan sósíalisma eru að
minni hyggju samofnar, og
hvorug mun fá staðizt án hinn-
ar.
Að vera
íslendingur
Sumum kunna að virðast
þetta næsta hátíðlegar hugléið-
ingar og fjarlægar þeim nær-
tæku verkefnum sem kosið
verður um eftir hálfan mánuð,
verðbólgu, kaupgjaldi, vinnu-
þrælkun og öðrum þeim verk-
efnum sem móta daglegt líf
manna. En við skulum minnast
þess að því aðeins mun okkur
takast að leysa úr þeim við-
fangsefnum sem nærtækust eru
að við skiljum hvemig þjóðfé*
lagið í heild þróast og hvað
gera þurfi til þess að stefnt sé
í rétta átt. Til þess að geta
metið fyrirbæri lífsins burfa
menn að hafa lífsskoðun. Ef
við reynum að fást við vanda-
mál hins daglega lífs án þess
að hafa nauðsynlega yfirsýn
hættir okkur stundum við því
að draga rangar ályktanir og
stefnum þá kannski í aðra átt
en við vildum. Og sjálf hin
stóru vandarhál eru nú komin
upp i fangið á okkur öllum,
hvort sem við viljum eða vilj-
um ekki. Við höfum orð sjálfs
Gylfa Þ. Gíslasonar • fyrir bvi
hvað gerast muni ef við leyf-
um valdhöfunum að rótfesta
hér að fullu það þjóðfélags-
kerfi sem getur ekki tryggt
sjálfstæði þjöðarinnar til fram-
búðar.
Það hefur þannig aldrei ver-
ið brýnna en nú að menn láti
ekki hin nærtækustu vandamál
kaffæra sig, hversu mikilvæg
sem þáu kunna að vera, held-
ur hugsi djúpt og horfi lárígt.
Þegar lífsskoðun valdhafanna
knýr þá til þess að boða bá
kenningu, að bezta ráðiö til að
efla sjálfstæði þjóðar sé að
fóma sjálfstæði hennar. er
skoðanaágreiningurinn kominn
langt út fyrir allar hversdags-
legar deilur um fyrirkomulags-
atriði í þjóðfélaginu. Hver Is-
lendingur sem lætur sig nokkru
varða framtíð sína og afkom-
enda sinna neyðist þá til að
staldra við og skyggnast fram
í tímann. 1 rauninni má segja
að í kosningunum i sumar sé
eitt atriði svo stórt að það feli
í sér öll önnur, sú einfalda
spuming sem hver einasti begn
verður að gera upp við sig af
alvöru og einlægni: Vil ég
halda áfram að vera lslending-
ur.
Ræða Magnúsar Kjartanssonar
á G-listafundinum í Háskólabíói