Nýi tíminn - 30.05.1963, Side 8
3 SÍÐA
'rw&m
I
I
I
*
OSKASTU
Ritsfjóri: UNNUR EIRÍKSDÓTTIR
GLEYMDIFÍLUNN
Júmbó, litli fíllinn, vakn-
aði i óvenju góðu skapi. Það
var glaða sólskin og fugl-
arnir sungu.
— Af hverju setli ég sé i
svona góðu skapi? sagði
Júmbó við sjálfan gig — Jú,
nú veit ég það, það er af-
mælið mitt í dag, ég er orð-
inn átta ára gamall. Gaman,
gaman, hvað skyldi ég fá í
afmælisgjöf.
Þegar hann var búinn að
klæða sig fór hann fram í
eldhús tii mömmu sinnar að
fá sér morgunverð.
— Góðan daginn, Múmbó,
sagði hann glaðlega, en
múmbó þýðir mamma á
fílamáli.
— Ósköp liggur vel á þér
HELGISAGA
Gautama kóngssonur fór út
i gkóg til þess að leita sann-
leikans í hugleiðingu Hann
varð fljótt leiður á einver-
unni og ætlaði heim í höll
sína.
Saika, konungur loftand-
anna brá sér í íkomalíki og
settist á vatnsbakka og gerði
ýmist að reka skottið ofan í
vatnið eða lyfta því uppúr.
Gautama: — Hvað ertu að
gera?
íkomi: — Ég er að reyna
að þurrka upp vatnið með
þvi að ná dropa og dropa
með skottinu.
Gautama: ■— Vatnið er
stórt, en skottið á þér lítið.
fkomi: — Satt er það, en
ég er ekki líkur Gautama
kóngssyni, sem gefst strax
upp í sannleiksleit sinni.
Kókigssonur akildi sneið-
ina. og hélt áfram hinni göf-
ugu leit, og loks kom að þvi
að úr honum varð hin bless-
aði Búddha.
i dag. Þetta sagði hún og
ekkert annað, og fór burt úr
eldhúsinu. Af hverju óskaði
hún mér ekki til hamingju
með afmælisdaginn? hugsaði
Júmbó með sér. Kannski ætl-
ar hún að láta það bíða
þangað til Dúmbó kemur. —
Dúmbó þýðir pabbi hjá fíl-
unum. — En þegar Dúmbó
kom sagði hann bara góðan
dag, og fór að lesa blöðin.
Jæja, hugsaði Júmbó, og
tárin byrjuðu að renna nið-
ur kinnamar á honum, það
er sagt að fílar gleymi aldrei
neinu, en nú hafa bæði
Múmbó og Dúmbó gleymt af-
maelinu mínu. Ég ætla ekki
að láta þau sjá að ég hafi
verið að gráta. Ég ætla að
ljúka við matinn minn, síð-
an fer ég alfarinn. héðan.
Þeim þykir hvort sem er
ekkert vænt um mig lengur.
Múmbó kom nú aftur inn
í eldhús.
— Ætlar þú ekkert út að
leika þér í dag, Júmbó minn,
spurði hún.
— Jú, ég ætla út, og ég
ætla aldrei að koma affur,
svaraði Júmbó.
— Fyrst svo er ætla ég að
smyrja nokkrar brauðsneiðar
handa þér, sagði Múmbó
hlæjandi. Hún hélt að Júmbó
væri bara að gera að gamni
sínu. Júmbó fór inn í her-
bergið sitt og tók til nokkra
smáhluti. sem hann ætlaði að
hafa með sér, batt þá í
böggul, og fór síðan aftur
fram í eldhús og tók brauð-
pakkann.
— Góða skemmtun, sagði
Múmbó.
— Það verður engin
skemmtun. Ég ætla að fara
og leita að einhverjum sem
þykir vænt um mig, og
gleymir ekki afmælisdegin-
um mínum. tautaði Júmbó
Húsgögn i brúðuhúsið
Sófi og stóll af sömu gerð,
og svo borð Qg tveir skápar.
Alla þessa hluti er auðvelt
að búa til úr einangrunar-
plasti. Á svipaðan hátt gæt-
uð þið búið til eldhúsborð,
eldavél og fleira í eldhúsið.
við sjálfan sig og hljóp af
stað.
— Halló, talaðu við mig,
heyrðist sagt veikri röddu,
og þegar Júmbó leit niður sá
hann Samma, litla froskinn.
— Hvað gengur að þér,
mér sýnist þú vera að gráta?
sagði Sammi.
— Ég er farinn að heiman
fyrir fullt og allt, sagði
Júmbó. — Múmbó og Dúmbó
þykir ekkert vænt um mig
lengur, þau gleymdu meira
að segja afmælinu mínu. Ég
ætla að reyna að finna ein-
hvem, sem þykir vænt um
mig og er góður við mig.
— Mér þykir vænt um
þig, komdu og vertu hjá
mér í litla húsinu mínu á
t j arnarbotninum, sagði
Sammi, og hvarf um l«ið
ofan í vatnið. Júmbó hopp-
aði út i tjömina, og hugs-
aði ekkert út í það að hann
kunni ekki að synda.
Sem betur fór var vatnið
ekki dýpra en svo, að hann
komst upp úr hjálparlaust,
en allur útataður í leðju.
— Hvað er að? spurði
Sammi og rak hausinn upp
úr vatninu
— Æ, það er bara það,
að ég er fíll en ekki frosk-
ur, og ég get ekki lifað í
vatni. Þakka þér samt kær-
lega fyrir gott boð. Vertu
blessaður, Samrni.
(Framhald.)
HÚS
Og þegar þið eruð einu sinni
byrjuð. dettur ykkur áreið-
anléga margt fleira í hug,
sem að gagni getur komið í
glænýju brúðuhúsi.
En í þessa hluti er senni-
lega betra að velja þykkara
plast.
’fcee/
Afmælisgjöí handa
drottningunni
HÚS, eftir Bergþór Pálsson,
Skaftahlíð 8, Reykjavík. —
(5 ára )
SKRlTLUR
Jón: — Þegar sonur minn
byrjaði nám í háskólanum
gaf ég honum bíl, af því
hann á svo erfitt með að
vakna í t®ka tið.
PáU: — Gengur honum þá
betur að vakna núna?
Jón: — Já hann er til-
neyddur Annars fengj hann
ekkert bílastæði.
MISSKILNINGUR
Tveir bændur komu til
sýslumanns með trippi. sem
báðir þóttust eiga.
Dómarinn sagði að þessu
máli væri þann veg farið. að
þeim værj bezt að jafna það
sín á milli
En hann iðraðist þessara
orða, því eftir nokkra stund
komu þeir aftur, og var þá
annar með glóðarauga og all-
ur marinn.
Var auðséð að þeir höfðu
misskilið orð dómarans.
Kóngurinn hugsaði sig um,
lengi lengi Og loksins fann
hann lausnina. Hann kallaði
á drottninguna og bað hana
að fara í nýja, fína náttkjól-
inn sinn Síðan varð hún að
leggjast á gólfið endilöng.
Kóngurinn tók af sér skóna,
og gekk í kringum drottning-
una, til þess að mæla hvað
mörg fet hún væri á lengd,
og hvað mörg á breidd
Hann tók kórónuna með í
reikninginn, því drottningin
svaf stundum með hana á
stórhátíðum.
— Þakka þér nú fyrir,
góða mín, sagði kóngurinn
við drottninguna. sem skildi
ekkert í þessum duttlungum.
Svo flýtti hann sér til for-
sætisráðherrans, og sagði
honum stærðina á rúminu.
Forsætisráðherrann fluttj
boðin til yfir-hirðsmiðsins,
hann sagði við uppáhald"
smiðinn sinn: — Rúmið á r'
vera sex fet á lengd og þri’
fet á breidd Þá verður b" *
mátulegt handa hennar há
tign.
— Þökk fyrir, sagði smið
urinn, tók af sér skóna op
mældi út efnið, sex fet á
lengd og þrjú fet á breidd
Síðan tók hann til óspilltr?
málanna og smíðaði rúmið
Þegar smíðinni var lokið
var kónginum boðið
koma og líta á
Honum þótti rúmið svo fal-
legt að hann gat ekki beð-
ið eftir afmælisdeginum,
heldur sótti drottninguna.
Hún varð að fara í nýja, fína
náttkjólinn -sinn og -svo mátti
hún máta rúmið.
(Framhald).
SKRÍTLA
Frá lesendum
Sumarbústaðurinn hans Svavars Gests, sjálfur stendur hann
fyrir framan bílinn sinn. Kær kveðja. — Ásgeir Grétai
Sigurðsson, Reyðará, Lóni. V- Skaftafellssýslu. — (10 ára)
- Fimmtudagur 30. maí 1963
Valnajökulsum-
slögin í 5. sinn
Þetta er fimmta árið, sem
Jöklarannsóknafélagið gefur út
Vatnajökulsumslögin í 5000 tölu-
settum eintökum. Auk þess eru
gefin út 1000 ótölusett umslög.
Sérstök myndskreyting er á
þessum umslögum. 1 fyrra var
mynd af Sveini Pálssyni til
minningar um tvö hundruð ára
afmæli hans, en í ár er lit-
prentuð mynd af jöklasóley,
sem er það fjallablóm okkar
er hæst leitar og hefur fund-
izt hér i blóma í 1500 metra
hæð yfir sjó.
Flestir kaupendur að tölusett-
um umslögum reyna að halda
sömu númerum ár eftir ár og
fá þannig samstæða „seríu“-
árganga. Eigendur tölusettra
umslaga frá 1962 þurfa að gefa
sig fram sem allra fyrst eða
fyrir 25. maí n.k„ ef þeir vilja
tryggja sér forgangsrétt að
sömu númerum í ár. Umslögin
verða til sölu og afgreiðslu eins
og áður í Radíóbúðinni, Óðins-
götu 2, á vegum Magnúsar Jó-
hannssonar og tekið á móti
pöntunum í síma 18275. Verð
umslaganna er eins og áður:
tölusett 10,- kr. en ótölusett
5,- krónur.
Auk þess hefur félagið látið
prenta bréfspjöld með litmynd
af jöklasóley og ýmsum fróð-
leik um Vatnajökul á ensku og
íslenzku. Eru spjöld þessi ætluð
til að setja innan i umslögin.
Spjöldin eru seld sérstaklega
með umslögunum. og er verð
þeirra tvær krónur.
Pósturinn hefur reynzt
okkur mjög velviljaður og Póst-
húsið í Reykjavík hefur sent
með okkur á Vatnajökul öll ár-
in einn sinn bezta stimplara og
skíðagarp, Grím Sveinsson, og
væntum við, að svo verði einn-
ig í þetta sinn.
Mánudaginn 20. þ.m. mun
verða settur upp á Pósthúsinu
í Reykjavík sérstakur póstkassi
fyrir Vatnajökulspóst. Þar get-
ur fólk póstlagt umslög sín til
föstudagskvölds 31. maí, en
Vatnajökulsleiðangurinn leggur
af stað frá Reykjavík þann 1.
júní og kemur til baka 12.-14.
júní. Leiðangursstjórar verða:
Magnús Eyjólfsson og Stefán
Bjamason.
í sumar er ráðgert að haldið
verði uppi veðurathugunum í
Jökulheimum á vegum Jökla-
rannsóknafélagsins. Athugunar-
menn munu dveljast f Jökul-
heimaskála, og geta ferðamenn
því alls ekki fengið gjstjngu
þar nema þeir hafi til þess sér-
stakt leyfi frá stjóm félagsins.
(Frá Jöklarannsóknafél.
fslands).
Hfbugasemd frá
dr. Unnsteini
Stefánssyni
Þjóðviljanum hefur borizt eftir-
farandi bréf frá dr. Unnstedni
Stefáussyui, sem staddur er er-
lendis:
11. maí 1963
Hr. ritstjóri.
Fyrir tveim dögum barst mér
í hendur blað yðar frá 5. þ.m.,
þar sem þér birtið á forsíðu
persónusögu mína og fjölskýldu
minnar. Án þess að leggja nokk-
urn dóm á málefni það, sem um
er fjallað, ieyfi ég mér að mót-
mæla því harðlega. að þér skulið
hafa birt nefnda skýrslu um
einkamál mín án þess að leita
samþykkis míns fyrir því.
Ég vil biðja yður að birta
þessa athugasemd í blaði yðar
nú þegar.
V irðingarf yllst,
Unnsteinn Stefánsson.
Því fer fjarri að Þjóðviljinn
vildi með birtingu „skýrslna”
þeirra sem komið hafa í blaðinu
valda hlutaðejgandi mönnurn leið-
indum eða óþægindum. En blað-
ið taldj sig burfa að sýna þessi
gögn, ef verða mætti til þess að
örðugri yrði framvegis sú njósna-
^tarfsemi um einkamái manna.
sem þessar skýrslur eru angi af.