Nýi tíminn - 30.05.1963, Side 9
Fimmtudagur 30. maí 1963
NÝI TÍMINN
síða g
Þróunariöndin töpuðu 850
milljörðum árin 1955—61!
Þróunarlöndin töpuöu
rúmlega 850 milljörðum
króna á árunum 1955-61
vegna þess að viðskipta-
kjör þeirra versnuðu.
verð á útflutningsafurðum
þeirra, hverskonar hrá-
efnum, lækkaði, en verð
Thresher fundinn
BOSTON 28/5 — Bandarlski
flotinn tilkynnti það í gærkvöld,
að myndir, sem teknar hafi ver-
ið á 2450 m dýpi um það bil
320 km frá austurströnd Norð-
ur-Ameríku, sýni flak, sem ver-
ið geti leifar af kafbáti, er rifnað
hafi við mikinn þrýsting. Að öll-
um líkindum er hér um að ræða
hinn sokkna kafbát Thresher.
Myndirnar voru teknar með
néðansjávarljósmyndavélum frá
hafrannsóknarskipinu Atlantis
fyrir nokkrum vikum.
Tresher týndist með rá og
réiða fyrir nokkrum vikum, eða
hinn 10. apríl, og var áhöfn hans
129-manns. Er kafbáturinn fórst
var hann að djúphafsrannsókn-
um fyrir utan strönd Massa-
chusetts.
Andlátsfregnin
stórlega ýkf
LONDON 28/5 — Sovét-rússinn
Gennarik Zavodovskij lét svo um !
mælt í Moskvuútvarpinu á þriðju
dag, að stórlega væru ýktar frétt-
ir amerískra blaða þess efnis, að
hann hefði látizt í misheppnuðu
geimskoti. „Ég er sprelllifandi,
og ætla mér að vera það enn um
hríð'i sagði Zavodovskij i sím-
tali við útvarpið.
Zavodovskij kvaðst þekkja
marga þeirra geimfara, sem
amerísk blöð hafa komið fyrir
kattamef undanfarið, og væru
þeir allir við beztu heilsu. Virð-
ist hér enn sannast hið forn-
kveðna, að þeir menn lifi lengst,
sem með orðum séu vegnir.
á iðnaSarvarningi sem þau
fluttu inn hækkaði.
Framkvæmdastjóri Landbún-
aðar- og matvælastofnunar SÞ
(FAO), B. R. Sen, skýrði frá
þessu á þingi FAO sém hófst
í Róm í síðustu viku.
„Verðhækkunín á iðnaðar-
vörum varð til þess að þróun-
arlöndin urðu á þessu timabili
að greiða rúmlcga 500 milljarða
króna meira fyrir innflutning
sinn, en verðfallið á hráefnum
leiddi til þess að tek.jur þeirra
af útflutningi minnkuðu um
350 milljarða króna“.
Sen sagði að litlar horfur
væru á því að viðskiptakjörin
á heimsmarkaðnum myndu
breytast að ráði á næstu árum
þróunarlöndunum í vil. Þó virt-
ist nú sem verðlag á iðnaðar-
vamingi væri að festast og
nokkur hækkun hefur orðið á
„Ég þakka ykkur, kæru
meðhræður og systur,
fyrir þá samúð og skiln-
ing sem þið hafið sýnt mér
í mótlæti mínu meðan á
klámmálinu stóð”, stóð í
bréfi sem birtist fyrir
nokkrum dögum í Ex-
pressen, útbreiddasta blaði
Syíþjóðar, „og einnig kær-
ar þakkir til þeirra mörgu
nafnlausu sem sendu mér
peninga að gjöf svo að ég
gæti keypt mér ný ljós-
myndatæki”.
Undir bréfinu stóð „Þriggja
bama móðir", en bak við það
leyndist 38 ára gömul kona sem
dómstóll í Stokkhólml hefur
verði sumra landbúnaðarafurða,
eins og t.d. á sykri, sem hefur
hækkað mjög verulega í verði .
síðasta árið. Á það má einnig '
benda að hækkun hefur orðið
á olíum úr dýraríkinu, þannig
á bæði hval- og síldarlýsi.
Vegur upp alla aðstoð
Yfirgnæfandi hluti viðskipta
þróunarlandanna er við auð-
valdsrikin á vesturlöndum og
mjög verulegur hluti þeirra við
Bandaríkin. Ástæða er til að
benda á að hin stórversnandi
viðskiptakjör sem þróunarlönd-
in hafa búið við síðustu ár gera
mun meira en vega upp á móti
allri þeirri efnahagsaðstoð sem
bau hafa fengið frá auðvalds-
löndunum. Enn sem fyrr hafa I
þau þvi fremur verið veitendur |
en þiggjendur, enda þótt arð- I
ránið sé nú framkvæmt á ann- |
an hátt en meðan þau voru í
nýlenduhlekkjum.
dæmt í sex mánaða fangelsi ;
fyrir að búa til og selja klám-
myndir. Ljósmyndavélar henn-
ar voru gerðar upptækar.
„Ég hef aldrei brotið neitt af
mér“, sagði hún í bréfi sínu til
blaðanna, „heldur staðið skil
á öllum mínum sköttum í átján
ár .. Leikkonur mínar voru
líka vinnandi stúlkur. sem
lögðu sitt af mörkum til þjóð-
félagsins. Því verður þó ekki
neitað að við höfum gerzt sek-
ar um að eyöa þremur kvöld-
um til að búa til fimm kvik-
myndir sem tekur átta mínútur j
að sýna.“
Eftir eina auglýsingu í blaði,
leið ekki í heila viku klukku-
tfmi að ekki væri leitað til
okkar og falazt eftir myndun- j
um, en það sýnir þörfina fyrir
kynórakvikmyndir. Þegar ég
hafði talað við mína væntan-
legu viðskiptamenn, var ég
sannfærð um að ég hefði ekki
gerzt sek um neitt glæpsamlegt.
Hefði ég látið þá fá myndim-
ar ókeypis, hefði ég verið sýkn-
uð. En slíkt tómstundagaman
er kostnaðarsamt'*.
Það hefur komið fram í
blaðaskrifum, að margir eru
hinni dæmdu „þriggja barna
móður" sammála um þetta.
Eitt Stokkhólmsblaðanna birti
þannig áberandi uppsetta grein
eftir lækni nokkum sem sagði
Stríðsglæparéttarhöldum lokið
MorSingjar dæmdir
í þræikunarvinnu
Hlaut þakklœti og samúð
fyrir töku klámkvikmynda
KOBLENZ 21/5 — I dag Iauk
í Köblenz i V-Þýzkalandi ein-
hverjum umfangsmestu stríðs-
glæparéttarhöldum sem fram
hafa farið þar i landi. Ákærðir
voru ellefu Þjóðverjar sem sak-
aðir voru um að hafa myrt 30.000
manns, einkum Gyðinga og
kommúnista, í Sovétríkjunum á
striðsárunum. Máiaferlin hafa
staðið í hálft ár og eru þau
lengstu sem haldin hafa verið
varðandi fjöldamorð í heims-
styrjöldinni síðari.
I dag var kveðinn upp dómur
i máli nazistaböðlanna. Harðasta
dóminn hlaut 62 ára gamall mað-
ur, Franz Stark að nafni. Hann
var'dæmdur í ævilangt fangelsi
fyrir: að hafa myrt þrjá Gyðinga
með eigin hendi. Auk þess var
hann dæmdur í átta ára brælk-
unarvinnu fyrir að hafa tekið
þátt í fjölda annarra morða.
NazistaböðuII —
löi'reelnforingi
Sá glænamannanna sem mun
hafa verið hvað athafnasamastur
á stríðsárunum, SS-foringinn Ge-
ore Heuser. hlaut hin.svegar ekk*
svo harðan cjóm. Hann var
dæmdur í fimmtán ára brælkim
arvinnu og missi allra begnrét*
inda f fimm ár. Hann var fu.nd
inn sekur um að hafa tekið þátt
í níu morðum. Saksóknaramir
fullyrtu hinsvegar að hann hafi
skotið að minnsta kosti 210 Gyð-
inga með skammbyssu sinni. Á
valdatímum nazista gegndi Heus-
er háum embættum og fékkst
einkum við að útrýma Gyðingum
og Sígaunum. Núverandi vald-
hafar V-Þýzkalands hafa ekki
síður kunnað að meta hæfileika
hans. Hann var yfirmaður rann-
sóknarlögreglunnar í Rheinland
þar til ekki varð lengur komizt
hjá því að handtaka hann árið
1959. Saksóknaramir höfðu kraf-
izt þess að Heuser yrði dæmdur
í ævilangt fangelsi.
Gögn frá Sovét
Auk Heuser og Starks voru níu
aðrir nazistaböðlar dæmdir í Ko-
blenz í dag. Hlutu beir sex til
fjögurra ára þrælkunarvinnu.
Sumir voru auk þess. sviptir
þegnréttindum í fimm árí Þrír
hinna ákærðu vor.u ekki dasmdir
í dag þar sem þeir voru alvar-
lega veikir.
Við réttarhöldin hafa saksókn-
ararnir skýrt frá ótrúlega sví-
virðilegum glæpum sem hinir á-
kærðu frömdu á stríðsárunum.
Forseti réttarins skýrði frá því
í dag að gögn sem sovézk yfir-
völd hafa látið í té hafi komið
réttinum að miklu gagni.
„Þessi ákæra fyrir klám er
frekleg árás á persónufrelsi
hinnar ákærðu og hún leiðir
einnig af sér, að „voyeurar"
eru sviptir eina möguleikanum
til að fá kynferðislega full-
nægingu".
Járnbrautarslys
LISSABON 28/5 — 48 manns
létu lífið og 38 hlutu alvarlega
áverka þegar stejnsteypt þak yf-
ir járnbrautarpalii í Lissabon
hrundi ofan á farþega. sem þar
biðu. Talsmenn lögreglunnar
segja, að ekki geti verið um
skemmdarverk að ræða, og
sjónarvottar kveðast ekki hafa
séð neina sprengingu. er þakið
hrundi.
Taugaveiki enn
Stokkhólmi 28/5 — Taugaveiki-
faraldurinn í Stokkhólmi lægir
ekki. Nú hefur átján ára gam-
all drengur látizt af völdum veik
innar. Lézt hann á farsóttarhúsi
borgarinnar. Síðastliðinn mánu-
dag lézt kona á áttræðisaldri úr
veikinni. Eru nú sjúklingarnir,
orðnir þrír. sem látizt hafa af
i völdum taugaveiki í Svíþjóð. '
Nýtízkulegur arkitektúr í Austur-ívrópu
Húsagcrdarlist hefur tekið miklum slakkaskiptum — og það er víst óhætt að segja framförum — í
löndum Austur-Evrópu undanfarln ár. Með öllu er hætt að reisa þar rándýr „skrauthýsi” í of-
hlæðisstíl, þau hafa vikið fyrlr nytsemissjónar miðum og látlausari fegurð óbrotins forms, eáns
og myndirnar hér eru nokkurt dæmi um. Efri myndin er af líkani af fyrirhugaðri járnbrautar-
stöð og nálægum bygglngum sem reisa á i Sofia, höfuðborg Búlgaríu. Það er gert eftir teikning-
um sem hlutu fyrstu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni, en þær voru gerðar af austurþýzkum
arkitektum undir stjórn borgararkitektsins i A ustur-Berlín, Hans Görike. Neðri myndin sýnir
Iikan af Marszalkowskastræti í Varsjá, en þær byggingar hafa risið á síðustu árum.
J0M0 KENYATTA vann
giæsilegan kosningasigur
Nairobi 28/5 — Jomo Kenyatta
og flokkur hans Kanu hcfur
unnið glæsilegan sigur í kosn-
ingunum í Kenya. Brezki land-
stjórinn, Macolm Macdonald
hefur falið honum að mynda
stjórn. Þykir allt benda til þess
að Kenya verði innan skamras
sjálfstætt lýðveldi innan
Brezka samvcldisins.
Þegar talningu atkvæða lauk
í gærkvöld sýndi það sig, sem
reyndar var vitað fyrir, að
kosningasigur Kenyatta hefur
orðið hinn mesti. I fulltrúa-
deild þingsins hlaut flokkur
hans 62 sæti, helzti andstöðu-
flokkurinn Kadu 32 og hinn
svonefndi afríkanski þjóðflokk-
ur 8. Öháðir hafa hér og átta
bingsæti. I öldungadeildinni
hafa Kanu og Kadu 16 sæti
hver, en þjóðflokkurinn og ó-
háðir einn. Þrjú sæti er enn
óvist hver hljóti í öldungadeild-
Jomo Kenyatta
uini, en af þeim er þó talið
líklegt, að Kanu hljóti tvö.
Eins og að líkindum lætur
hafa þessi úrslit vakið mikinn
fögnuð með fylgismönnum
Kenyatta. Þegar talningu at-
kvæða lauk hélt stór hópur
Kanumanna kosningahátíð fyrir
utan aðalstöðvar flokksins. Var
þar glatt á hjalla, sungið og
dansað. Varaformaður flokks-
ins, Oginga Odinga sýndi þar
landsmönnum sínum hvernig
dansa skal twist. og var að því
Serður hinn bezti rómur.
Jomo Kenyatta hefur um
langt skeið verið einn kunnasti
leiðtoginn í frelsisbaráttu Af-
ríkuþjóða. Þegar Mau mau-
stríðið stóð sem hæzt var hann
fangelsaður af Bretum og hon-
um gefið að sök að standa að
baki hreyfingunni. Aldrei t.ókst
hó Bretum að sanna neitt á
Kenyatta, þeir neyddust til að
láta hann lausan, og nú er
hann seztur að .þeim völdum er
þorri landa hans hefur talið
honum bera undanfarin ár.