Nýi tíminn - 30.05.1963, Side 10
1# síða------—-------------NÝI TlMINN -------— Fimmtudagur 30. maí 1963
Sigur Kommúnistafíokks Ítalíu og afleiðingar
hans fyrir verkalýðshreyfingu Vestur-Evrópu
■ Hinn víðkunni franski blaðamaður K. S. Karol hefur átt viðtal við Palmiro Togliatti,
leiðtoga ítalskra kommúnista, um hinn mikla sigur þeirra í síðustu þingkosningum, orsakir
hans og afleiðingar. Viðtalið birtist í „The New Statesman“ og „L’Express“, en er hér
þýtt úr málgagni Togliattis, ,,l’Unitá“. Milli fyrirsagnir og feitletranir eru Þjóðviljans.
" Flokkur yðar vann
mikinn sigur í þingkosning-
unum 28. apríl, enda þótt
flestir erlendir fréttaskýr-
endur hefðu haldið því
fram, að stjórnarflokkarnir
myndu hagnast á hinni öru
efnahagsþróun á Italíu síð-
ustu árin — hinu margum-
rædda ítalska efnahagsundri.
Hvernig skýrið þér þessi ó-
væntu kosningaútslit?
— Þessi úrslit komu aðeins
þeim á óvart, sem ekki höfðu
krufið til mergjar hið raun-
verulega þjóðfélagsástand á
Italíu og ekki kynnzt hvað ít-
ölskum almenningi býr í
brjósti.
Ör þróun
A ítalíu á sér nú stað ör
þróun sem er að gerbreyta
efnahags- og félagskerfi lands-
ins. En þessi þróun verður tví-
þætt, vegna þess að hún fer
fram i þjóðfélagi, sem auð-
hringavaldið og íhaldsöfl
drottna yfir. Á annan bóginn
búa nú hundruð þúsunda
kvenna og karla við nýjar að-
stæður og eru ekki lengur háð
þeim tengslum og höftum sem
bundu þau áður við gamalt
skipulag og þau taka nú að
hugsa ráð sitt að nýju. 1 þessu
fólki vaknar þrá eftir betra
lífi og réttlátara þjóðfélagi.
. Leið þess liggur þannig til
vinstri. Á hinn bóginn hefur
efnahagsþróunin einmitt magn-
að vandamálin, misskiptinguna,
andstæðumar, hið augljósa
ranglæti, sem kemur þyngst
niður á verkalýðnum. Hin
gömlu þjóðfélagsform eiga ekki
lengur við þetta nýja ástand.
Það verður þannig til voldug-
ur aflvaki til endumýjunar á
þessum þjóðfélagsformum. Þessi
aflvaki á rætur sínar í verka-
lýðnum, í öllum þorra bænda,
miðstéttunum í borgunum,
menntamönnum, þeim verka-
mönnum sem neyðast til að
flýja átthagana í atvinnuleit. í-
búum suðurhéraðanna og eyj-
anna. Þessi þróun stefnir jöfn-
um höndum að umbótum og
byltingu. Hún er umbótakennd
af því að hún felur í sér á-
kveðnar kröfur, lýðræðislegar
að eðli og félagslegar að inni-
haldi; hún er byltingarkennd af
því að hún rekst á andstöðu
ráðandi stéttar, sem er ramm-
íhaldssöm. Þessi þróun leiðir
þannig af sér kröfu um að
nýrri stétt verði falin forráð
fyrir landinu.
Hinn mikli sigur flokks okk-
ar er augljós afleiðing af þessu
ástandi. Flokkur okkar hefur
það markmið að koma á þjóð-
félagi sósfalismans, en við höf-
um gengið fyrir fólkið með þá
stefnuskrá að við ætlum að
ryðja því þjóðfélagi braut með
því að fullnægja kröfum þess
um aukið lýðræði og þær fé-
lagslegu umbætur sem velferð
verkalýðsins er komin undir í
dag og eru einnig forsenda
þess að hann taki stjóm þjóð-
félagsins í sfnar hendur.
Stjórnmálakreppa
Sigur okkar getur talizt upp-
haf harðrar stjómmálakreppu
sem á vafalaust eftir að verða
afdrifarík.
— Þér hafið nýlega lýst
yfir að flokkur yðar sé fús
til þátttöku í nýrri meiri-
hlutastjórn. Hvaða skil-
yrði mynduð þér setja fyrir
stuðningi við slíka stjórn?
Að hvaða Ieyti eru kröfur
yðar frábrugðnar þeim
kröfum sem Pietro Nenni
hefur sett fram fyrir hönd
sósíalistanna?
— Til þess að við veitum
ríkisstjóm beinan stuðning
(greiðum henni atkvæði) eða ó-
beinan (sitjum hjá) munum
við krefjast fyrst og fremst, að
hún fylgi friðarstefnu. Sú
stefna gæti, eins og nú horfir,
verið fólgin í því, að hafnað sé
kjamorkuvígbúnaði á Italíu, að
fallizt sé á hugmyndina um
stórt kjamavopnalaust svæði í
Evrópu og á tillöguna um
griðasáttmála milli Atlanzhafs-
bandalagsins og Varsjárbanda-
lagsins. Hér væri einnig um
að ræða kröfu um viðurkenn-
ingu á Alþýðu-Kína og Þýzka
alþýðulýðveldinu.
Hvað viðvíkur stefnunni í
innanlandsmálum og félagsleg-
um umbótum eru kröfur okkar
og sósialista að mörgu leyti
þær sömu. Sósíalistar krefjast
þess t.d. eins og við að þau á-
kvæði stjómarskrárinnar séu
loks framkvæmd sem gera ráð
fyrir sjálfstjóm einstakra hér-
aða. Þeir krefjast eins og við
að stjómin láti semja og fram-
kvæmi lýðræðislega efnahagsá-
ætlun, að gerðar séu ráðstafan-
ir til að leysa hin miklu vanda-
mál sem skólamir eiga við að
stríða, húsnæðismálin, vandann
sem stafar af mannflóttanum
úr sveitunum; þeir vilja eins
og við að bætt séu lífskjör
verkamanna og heilsufar þjóð-
arinnar og þar fram eftir göt-
unum. A mörgum þessum svið-
um stendur Italía skör lægra
en samboðið er siðmenntuðu
þjóðfélagi. Félagar okkar, sós-
íalistamir, féllust fyrir kosn-
ingamar á áætlun um ráðstaf-
anir í landbúnaðarmálum, sem
við höfnuðum, vegna þess að
í henni var ekki gert ráð fyrir
lausn alvarlegasta vandamáls-
ins, afnámi leiguliðaþrælkunar-
innar sem öllu máli skiptir. En
nú hafa öll bændasamtökin
hafnað þessari áætlun og sós-
íalistamir lýsa líka yfir stuðn-
ingi stnum við stefnuskrá þess-
ara samtaka, sem við styðjum
heils hugar.
Þegar allt kemur til alls miða
kröfur okkar og sósíalista um
efnahags- og félagsumbætur í
sömu átt og eru oft samhljóða.
En auk þess er það á allra vit-
orði að í sjálfu forystuliði
vinstrimanna í kaþólska
flokknum gætir svipaðra við-
horfa. Ef sigrazt verður á hin-
um andkommúnistísku fordóm-
um, en það er einmitt megin-
hugsunin að baki tilboði okk-
ar um aðild að ríkisstjóm,
leiddi það af sér myndun öfl-
ugrar fylkingar sem hlynnt
væri djúptækri endumýjun
alls þjóðlífsins og opna myndi
leiðir til að tryggja fram-
kvæmd þeirrar endumýjunar.
En því miður virðist sem nú-
verandi ráðamenn Kristilegra
demókrata stefni í gagnstæða
átt. Þeir gera sér tálvonir um,
að þeir geti fundið leið út úr
ógöngunum með íhaldsþrjózku
og ofsafengnum andkommún-
isma. Það er verst fyrir þá
sjálfa. Þegar öllu verður á
botninn hvolft munum við
verða þeir sem högnumst á því
sem hinir ætlast nú fyrir.
Sókn verklýðsins
— Teljið þér að áhrifa
af sigri ykkar muni einnig
gæta í öðrum löndum? Og
hvert ætti að vera hlutskipti
kommúnistaflokka á vestur-
löndum, í rikisstjórn eða
utan?
— Ég er þeirrar skoðunar að
kosningasigur okkar hafi mikla
alþjóðlega þýðingu sem liður í
nýrri sókn vcrkalýðsins og
allra Iýðræðisafla í lðndum
Vestur-Evrópu.
Það eru miklar blikur á lofti
i þessum löndum og jafnvel
geigvænlegar hættur á ferð-
inni. Lýðræðisstjórnarfari
þeirra er ógnað bæði vegna
þess að ódulbúnar afturhalds-
stjómir sitja sem fastast að
völdum (eins og á Spáni og í
Portúgal) og hins að stjómar-
far valdboðsins færist annars
staðar í aukana svo að lýðræð-
ið er smám saman takmarkað
og fótum troðið. Á alþjóðavett-
vangi er stefnt að því að gera
öll lönd Vestur-Evrópu að
skotmörkum í ragnarökum
kjamorkustríðs. Þjóðir þessara
landa eiga þannig bæði á hættu
að glata sjálfstæði sínu og lýð-
ræðisréttindum og verða svipt-
ar þeim áhrifum sem þær hafa
haft á alþjóðastjómmál. Á
vettvangi kjarabaráttunnar
hafa hinar miklu vinnudeilur
að undanfömu sýnt mjög
glögglega hln harðnandi átök
stéttanna.
Ég tel það vera verkalýðs-
hreyfingarinnar, Iýðræðisafl-
anna og þá fjrst og fremst
kommúnistaflokkanna að beita
sér fyrir því að þcssu ástandi
sé gerbrcytt.
Það er okkar hlutverk að
benda þjóðinni á ný stefnumið
stjórnmála- og efnahagsþróun-
ar í því ákveðna skyni að hefja
nýtt þróunarskeið og endur-
nýjun lýðræðisins í óhultum
heimi og friði. Nýju lífi á að
blása í hinar gömlu stofnanir
lýðræðisins og þær vemdaðar
fyrir hvers konar ágengni. En
þær eiga að öðlast nýtt inni-
hald með ákveðnum ráðstöf-
unum sem takmarki og brjóti
niður vald hinna miklu einok-
unarhringa auðvaldsins og
greiði fyrir því að öllu efna-
hagslífinu sé stjómað í þágu
þjóðarheildarinnar. Þetta merk-
ir að sjálfsögðu spor í áttina
til sósíalismans, en það spor
verður að stíga þaðan sem við
emm nú staddir og með hlið-
sjón af öllum aðstæðum, sem
ríkja í hverju landi.
Til þess að verkalýðshreyf-
ingunni sé fært að Ieysa af
hendi það verkefni sem henni
ber, verður hún að treysta
eininguna í röðum sinum, bæði
á vettvangi stjórnmálanna og
kjarabaráttunnar. Það er hlut-
verk kommúnista að gera allt
sem nauðsyn krefur til þess að
þessi eining eflist svo fljótt sem
auðið er i öllum löndum. Það
er mín skoðun varðandi þetta
atriði að við eigum jafnan að
vera reiðubúnir til viðræðna
við þá sem aðhyllast aðrar
stjórnmálaskoðanir, einnig um
hvernig endurvekja mcgi póli-
tíska einingu verklýðshreyfing-
arinnar á grundvelli Iýðræðis-
legrar baráttu og framsóknar í
átt til sósíalismans.
Þegar fasismanum og þeim
valdboðs- og afturhaldsstjóm-
um sem nú sitja að völdum i
Vestur-Evrópu hefur verið út-
rýmt fyrir fullt og allt. þegar
verkalýðsstéttin í samvinnu við
öll lýðræðisöfl tekur við stjóm-
artaumunum, munu lönd álf-
unnar geta fengið úrslitaáhrif
til að tryggja varanlegan frið
í öllum heiminum og flýta fyrir
endumýjun allra þjóðfélaga
hans.
Sköpunarfrelsi
— 1 kosningabaráttunni
skýrðuð þér oft viðhorf yð-
ar í menningarmálum, sem
eru frábrugðin sjónarmiðum
hinna sovézku íélaga yðar.
Forsíða „rUnitá“ eftir sigurinn mikla,
Palmiro Togliatti
Palmiro Togliatti, formaður
Kommúnistaflokks Italiu,
varð sjötugur fyrir nokkrum
vikum. Hann er þannig af
þeirri kynslóð sem hóf á loft
merki hinnar róttæku verka-
lýðshreyfingar eftir gjaldþrot
sósíaldemókratismans í fyrri
heimsstyrjöldinni. Að loknu
laganámi varð hann ásamt
Antonio Gramsci frumkvöðull
að stofnun kommúnistaflokks-
ins eftir hið sögufræga þing
í Livomo 1921 og frá þeim
tíma hefur hann verið í for-
ystu flokksins og arftaki
Gramscis eftir fangelsun
hans. Hann flýði land þegar
fasistar tóku völdin, hafði
fast aðsetur í Moskvu þar sem
hann gegndi mikilvægum
störfum í Alþjóðasambandi
kommúnista (Komintem), en
var stöðugt á ferðinni og
stjómaði leynibaráttu ítalskra
kommúnista gegn fasismanum
frá Sviss og Frakklandi og
gekk þá jafnan undir dui-
nefninu Ercoli (Herakles). 1
borgarastríðinu á Spáni kom
hann einnig mjög við sögu.
1 Komintem var hann hægri
hönd Dimitroffs og þeir tveir
fluttu framsöguerindin á sjö-
unda og síðasta þingi þess 1937.
Leynistarf ítalskra komm-
únista undir forystu Togliattis
bar ríkulegan ávöxt, hin sigur-
sæla andspymuhreyfing gegn
fasismanum á Italíu var þeirra
verk og þegar stríði lauk og
ævinlega síðan hafa komm-
únistar verið óumdeilanleg
forystusveit ítalsks verkalýðs.
Enginn núlifandi maður hef-
ur mótað sögu hinnar al-
þjóðlegu verkalýðshreyfingar
meira en Palmiro Togliatti.
En hann er ekki aðeins frá-
bærlega ötull og kænn stjóm-
málamaður, sem andstæðing-
amir óttast og bera virðingu
fyrir í senn. Hann er orator
í landi mælskulistarinnar,
penni hans getur verið beitt-
ur, háð hans napurt, en hann
heldur sér jafnan við efhið.
Umfram allt er hann rökfast-
ur, einstakur dialektiker. sém
alltaf er reiðubúinn að vega
og meta aðstæður og kryfja
til mergjar af þekkingu og
rökfimi. Hann er einkar ljóst
dæmi um, að marxismi. hin
marxistíska aðferð að taka á
vandamálunum verður aldrei
lærð að gagni við heimspeki-
deild neins háskóla, heldur
aðeins í reynsluskóla hinnar
daglegu baráttu.
ás.
Þetta hefur vafalaust í för
með sér viðræður milli
flokka ykkar beggja?
— Það er rétt, viðhorf okkar
til menningarmála eru önnur
en okkar sovézku félaga. Við
getum ekki skilið vissar árásir
sem gerðar hafa verið á sov-
ézka menntamenn eins og
Nekrassoff, Vosnesénskí og
Évtúsénko. Það hefði glatt
okkur mikið, ef Évtúsénko
hefði getað komið til Italíu í
marzmánuði, eins og fyrirhug-
að hafði verið.
Sköpunarfrelsi Iistamanns-
Ins er geysimikilvægt mál og
við væntum þess að það verði
rætt í þaula á næstu alþjóða-
mótum kommúnista.
Við höfum þegar birt all-
margar greinar þessu viðkom-
andi, einkum í tímaritinu
„Rinascita", sem ég er ritstjóri
fyrir, einmitt sem upphaf slíkra
túðræðna.
Sjálfræði flokka
— Leiðir ekki af þessu að
enn augljósari verður nauð-
synin á auknu sjálfræði
hvers kommúnistaflokks?
— Kommúnistaflokkarnir
eiga að vera og eru i dag al-
gerlega sjálfráðir hvernig þeir
móta stefnu sína, birta hana
alþýðunni i hverju landi,
hverja þeir gera bandalag við
o.s.frv. Þetta er nauðsynleg
forsenda þess að hreyfing okk-
ar sæki fram. Við höfum mikil
sameiginleg markmið og fræði-
kenningar. Við viljum skapa
heim án stríðs og sósíalistísk
þjóðfélög. En það cr verkefni
hvers flokks að móta með hlið-
sjón af þcim markmiðum og
fræðikenningum stcfnuna sem
þjóð hans hentar, sem sam-
svarl fyllilega aðstæðum i
hverju Iandi, pólitísku og
efnahagslegu þróunarstigi þess,
Iýðræðisþróun, mcnningu þess
og þjóðlegri hefð, skipulags-
formum bæði ríkisvaldsins og
vericalýðshreyfingarinnar.
'AHt þetta getur haft og hefur
í för með sér að leiðiinar verða
ýmsar og ólíkar að því marki
sem við höfum sett okkur. um-
sköpun þjóðfélagsins. Og það
væri miður ef þessi marg-
breytni leiddi af sér illdeilur,
sem aðeins mjmdu rugla mehn
í ríminu.
Sem dæmi má nefna að þeg-
ar hinir kínversku félagar okk-
ar tóku að setja sveitakomm-
únur sínar á laggimar, þá virt-
ist okkur þar vera um að ræða
nýmæli, sem styngi í stúf við
uppbyggingu sósíalismans í öðr-
um löndum. Við kynntum okk-
ur því mjög náið þetta frum-
kvæði, en við töldum ævinlega.
að það væri ekki okkar, heldur
kínversku félaganna að taka á-
kvörðun um það og framfylgja
þeirri þróun sem af því leiddi.
Alveg á sama hátt teljum við
að okkar kínversku félagar hafi
ekki heimild til að kveða uþp
sleggjudóma um einstök atriði
í stefnuskrá okkar eða póli-
tísk frumkvæði okkar.
En þótt hver flokkur sé sjálf-
ráður, eiga þeir auðvitað að
hafa með sér náin og tið sam-
skipti, læra hver af reynslu
annars og gera með sér samn-
inga, þegar um er að ræða áð
stefna að ákveðnum sameigin-
legum markmiðum, sem náiæg
eru. Það er á grundvelli þessa
sjálfræðis, þessarar sameigin-
legu reynslu og sameiginlegu
baráttu fyrir ákveðnum stefnu-
málum, sem við byggjum og
eflum alþjóðahyggju okkar. en
sjálf fræðikenning okkar getur
tekið stöðugum breytingum
með hliðsjón af þeirri öru þró-
un sem í dag á sér stað bæði
á ytri aðstæðum og innan
hreyfingarinnar, á skipulags-
háttum hennar og viðhorfum
hins vinnandi fjölda.
— Teljið þér að þessar
mismunandi leiðir til sósi-
alismans muni hafa i för
með sér að hln ýmsu sósíal-
istísku þjóðfélðg muni einn-
ig verða frábrugðin hvert
öðru?
— Ég er alveg sannfærður
um það. En það er einnig sann-
færing min að ekld sé tíma-
bært að ætla sér nú að segja
fyrir nnt f einstökum atriðum
hvaði teiða mun af þróun hreyf-
ingarinnar og baráttu verka-
lýðsstéttarinnar. Sagan er æv-
Inlega margslungnari og hug-
kvæmari í sköpunarstarfi sínn
en okkur er auðið að sjá fyrir.